Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2004, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2004, Blaðsíða 31
DV Síðast en ekki síst MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 31 No Name konur íslands hittast og koma með tillögur um nýja í sinn hóp. Sjálfstæðar konur sem láta drauma sína rætast er það sem Kristín Stefánsdóttir vill sjá .. 2 píjf : Svií/S ; ■ ý;.: •' •'sá B p, | f 'í '‘V'i I ■ „í valinu á No Name andlitunum í gegnum tíðina hef ég miðað við að þetta séu þroskaðar konur sem hafa sterkan og mikinn persónu- leika. Láta sér fátt fyrir brjósti brenna og sjá ekki hindranir í veginum fyrir því að láta drau- ma sína rætast," segir Kristín Stefánsdóttir snyrti- og föðrunarmeistari. Hún er framleið- andi No Name snyrtivaranna sem eru íslensk- um konum að góðu kunnar - og njóta sívax- andi vinsælda hér heima og í Skandinavíu. Eru vörurnar enda sérhannaðar fyrir ljósa húð norrænna kvenna. Á besta skeiði ævinnar Allt frá árinu 1990 hefur sérstakt andlit þessara vara verið valið fyrir ár hvert. Fyrstu árin tvær konur á ári en aðeins ein nú í seinni tíð. Alls eru þetta orðnar átján konur og sl. fimmtudagskvöld hittust þær á veitingahúsinu Caruso við Bankastræti, sem bauð þessum kvennablóma íslands til málsverðar. No Name konurnar halda hópinn og hittast meðal annars þegar nýtt andlit hvers árs er kynnt, það er í marsmánuði á ári hverju. Krist- ín Stefánsdóttir hefur til þessa valið þá konu sem þennan sæmdartitil fær, beitt þar eigin innsæi jafnframt því sem hún fær ábendingar víða frá. „Fyrstu árin valdi ég helst konur sem höfðu verið í fyrirsætustörfum. Svo sem fyrsta árið valdi ég Elínu Reynisdóttur föðrunarfræðing Framleiðandinn Kristin Stefándóttir er framleiðandi No Name varanna sem njóta vinsælda víða um lönd. Konursem hafa sterkan og mikinn persónuleika. Láta sér fátt fyrir brjósti brenna og sjá ekki hindranir í vegin- um fyrirþví aðláta drauma sína rætast og fyrirsætu og Jónu Björk Helgadóttur. Seinni árin hef ég svo breytt stefnunni í þessu og ekk- ert síður valið eldri konur svona til að undir- strika að besta skeið ævinnnar kemur þegar maður er aðeins farinn að fullorðnast. I fyrra valdi ég Bryndís Schram sendiherrafrú og árið 2001 Kristínu Rós Hákonardóttur sundkonu, sem heldur betur hefur sýnt þjóðinni hve langt má komast þrátt fyrir hindrandir einsog hún sjálf þekkir vel,“ segir Kristín. Ýmsar tillögur Gamalt loforð til kvennanna er að eitthvert árið kæmi í þeirra hlut að velja andlit ársins, það er að koma með tilnefningarnar enda þó svo úrslitavaldið sé í höndum Kristínar. Var til- efni fundar kvennanna sl. fimmtudagskvöld einmitt að setja á flot nöfn kvenna sem þær telja falla í hópinn. „Þarna komu fram ýmsar tillögur um konur sem ég tel allrar athygli verðar. í öllum tilvikum eru þetta frambæri- legar konur sem falla líka að hugmyndafræði okkar; það er að vera sjálfstæðar og þora að láta drauma sína rætast," segir Kristín Stefáns- dóttir. Þær konur sem nefndar hafa verið til sög- unnar sem No Name andlit ársins eru allar þjóðinni að góðu kunnar, en þær eru Rannveig Rist forstjóri Alcan, Svava Johansen kaupmað- ur í Sautján, Siv Friðleifsdóttir umhverflsráð- herra, Ragnhildur Gísladóttir söngkona, Sig- ríður Arnardóttir sjónvarpskona á Skjá einum, Björk Jakobsdóttir leikkona, Sigrún Eðvalds- dóttir fiðluleikari og Vigdís Grímsdóttir. Kristín Stefánsdóttir tekur fram að fleiri konur muni efalítið koma til greina í þessu vali, en úrslitin verða kunngerð undir lok ntarsmánaðar næstkomandi. sigbogi@dv.is Andlitin í áranna rás Þessar konur hafa allar verið valdar No Name andlitið og hérsést hópurinn sem kom saman sl. fimmtudagskvöld. Lengst til vinstri er Nanna Guðbergsdóttir sem var valin 1993, en síðan koma Kolbrún Björgólfsdóttir, Selma Björnsdóttir, Þórunn Lárusdóttir, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Jóna Björk Helgadóttir, Elín Reynisdóttir, Laufey Bjarna- dóttir, Valgerður Matthíasdóttir, Kristín Rós Hákonardóttir og Unnur Steinsson. DV-myndir: Valli Brosandi við borðið Næst er Nanna Guðbergdóttir, þá Jóna Björk Helgadóttir og svo koma margar fleiri - iðilfagrar islenskar konur. Kvennablómi Þórunn Lárusdóttir, Kolbrún Björgúlfsdóttir og Kristin Stefánsdóttir. Tvær plús ein ólétt Frá vinstri talið Kristin Rós Hákonar- dóttir, Jóna Björk Helgadóttir og Nanna Guðbergsdóttir, fyr- irsæta og kaffihúsaeigandi, sem er kona eigi einsömul. fslenskar konur Diddú, Vala Matt og Laufey Bjarna- dóttir. ' C! ■■ ' j lljíBl; §ii .. . Þrjár í sófanum Unnur Steinsson, Selma Björnsdóttir og Elin Björnsdóttir lengst til hægri. ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★* JANÚARÚTSALA * allt að 35% afslátftur Gítarinn ehf. Stórhöfða 27, sími 552-2125 og 895 9376 www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.