Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2004, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 19.JANÚAR2004
Fréttir DV
Örn Bárður Jónsson var nýverið ráðinn sóknarprestur í Neskirkju. Hann hefur tekið virkan þátt í þjóð-
félagsumræðunni með blaðaskrifum og smásögum. Hann lenti í deilum við forsætisráðherra vegna um-
deildrar sögu sem birtist í Morgunblaðinu þar sem fegurðin var um^öllunarefnið.
„Ég varð fyrir trúarlegri reynslu 27 ára
gamall sem varð til þess að ég ákvað að ger-
ast prestur," segir Örn Bárður Jónsson, sem
var á dögunum skipaður sóknarprestur í
Neskirkju. „Ég var leitandi ungur maður og
sannfærðist um að í trúnni væru ýmis hulin
verðmæti sem vert væri að gefa meiri
gaum.“
Guðfræðin er vinna
Örn Bárður er Vestfirðingur að uppruna
og fæddur á ísafirði. Hann fór í Verslunar-
skólann og kláraði nám sem endurskoð-
andi. Eftir það rak hann fyrirtæki en 31 árs
ákvað hann að söðla um og hefja nám í guð-
fræði við Háskóla íslands. „Tíminn sem ég
var við nám í Háskólanum var afar anna-
samur og þá skipti miklu máli að skipuleggja
sig vel. Að ná árangri í námi er auðvitað
vinna og í því samhengi er guðfræðin engin
undantekning," segir örn, sem hóf nám við
Háskóla íslands, áður en hann hafði nokkra
reynslu af starfi prestsins.
„Ég kynntist guðfræðinni fyrst úti í
Englandi og var síðan ráðinn sem djákni við
Grensárskirkju árið 1979, skömmu áður en
ég byrjaði í Háskólanum," segir örn Bárður.
„Það er alltaf gaman þegar maður fær tæki-
færi til að praktísera það sem maður lærir og
ég var því í ágætis stöðu þegar ég hóf námið
við Háskóla Islands." Eftir guðfræðina var
örn Bárður ráðinn sem aðstoðarprestur í
Garðabæ og seinna sem prestur í Grindavík.
„Það var yndislegt að búa á Suðurnesjun-
um,“ segir hann.
Kirkjan endurmetur stöðu sína
„Þegar nálgaðist síðasta áratug liðinnar
cildar ákvað kirkjan að fara í mikla stefnu-
„Mesta áskorunin ersamt
ekki hve mikið maður skrif-
ar heldur hvernig manni
tekst að túika orð krists
þannig að þau eigi erindi
við okkur í dag."
mótunarvinnu," segir örn Bárður. „Starf
mitt hjá Biskupsstofu snerist því um að efla
safnaðarstarf og vinna ákveðna stefnumót-
un fyrir kirkjuna." Myndarlegur bæklingur
sem sýnir afraksturinn af þessari vinnu ligg-
ur á borðinu hjá Erni og hann segir það eðli-
legt að kirkjan endurmeti stöðu sína innan
samfélagsins endrum og eins. „Til dæmis er
stærsta breytingin á fslenskri kirkjumenn-
ingu sú að líklega þjóna færri prestar þjóð-
inni í dag en fyrir 150 árum, þrátt fyrir að þá
var fólksfjöldinn aðeins brot af því sem
hann er í dag.“
Presturinn og skáldið
Örn Bárður hefur sinnt ritstörfum af
krafti í gegnum tíðina. Hann hefur tekið
virkan þátt í þjóðmálaumræðunni með tíð-
um blaðaskrifum og árið 2002 gaf hann út
smásagnasafnið íslensk íjallasala og fleiri
sölur. „Ég held það fari ágætlega saman að
vera prestur og skáld því stór hluti af starfl
presta er að vinna markvisst með orð og
texta." Örn minnist á að eitt sinn flutti hann
einar átta frumsamdar ræður á sextán dög-
um. „Mesta áskorunin er samt ekki hve mik-
ið maður skrifar heldur hvernig manni tekst
að túlka orð Krists þannig að þau eigi erindi
við okkur í dag.“
Ein af smásögum Arnar, sem birtist í
Morgunblaðinu, fjallaði um þegar Esjan er
seld úr landi. Sagan vakti hörð viðbrögð,
meðal annars brást forsætisráðherra hinn
versti við og Örn Bárður missti í kjölfarið
stöðu sína í Kristnihátíðarnefnd. „Að sjálf-
sögðu sé ég ekki eftir að hafa skrifað þessa
sögu,“ segir Örn. „Með henni var ég að fjalla
um það grundvallaratriði að ákveðin svið
tilverunnar má ekki gera að söluvöru, sér-
staklega fegurðina sem nauðsynlegt er að
standa vörð um.“ Örn bætir við: „Þess vegna
notaði ég Esjuna sem dæmi því hver gæti
ímyndað sér að hún yrði nokkum tíman
seld.“
Örn Bárður segir að umrædd saga tengd-
ist einnig hálendisumræðunni, gagna-
grunnsmálinu og hinni óheftu frjálshyggju
sem var að ryðja sér til rúms. „Sagan fjallaði
um allt þetta en var hins vegar túlkuð af for-
sætisráðherra sem einsleit árás á gagna-
grunninn hans Kára," segir Örn og tekur
fram að stundum sé nauðsynlegt að staldra
við og hugsa sinn gang.
Afturhvarf til góðra gilda
Neskirkjan stendur við Hagatorg og er at-
hyglisverð fyrir margar sakir. „Hér er öflugt
kirkjustarf, góð kirkjusókn og margþætt
safnaðarstarf," segir Örn Bárður og minnist
á að Neskirkja sé einnig fyrsta kirkjan sem
var hönnuð í nútímastfl á íslandi. „Nú erum
við að byggja okkur safnaðarheimili þar sem
starfrækt verður kaffihús, bókabúð, veit-
ingasalur og netkaffi," segir Örn og greina
má tilhlökkun í rödd hans. „Það má því
segja að við séum að byggja fyrsta nútíma
safnaðarheimilið líka."
Sumir segja að samfélagið hafi aldrei tek-
ið jafn ömm breytingum og á síðastliðnum
árum. Bankarán em tíð og ofbeldisverk hafa
færst í aukana. Örn Bárður segir í því sam-
hengi að við slíkar aðstæður sé nauðsynlegt
að við gleymum ekki hinum dýpri gildum.
„Það má segja að við séum að tapa okkur í
hraða og neysluhyggju. Gamla stórfjölskyld-
an hefur verið sett í skilvinduna og nú er út-
lit fyrir að kjarnafjölskyldan sé einnig að
breytast," segir örn og bætir við: „Á slflcum
stundum hugsa ég að afturhvarf til guðs og
góðra gilda sé okkur gríðarlega mikilvægt."
simon@dv.is