Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2004, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2004, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 Fréttir DV Landnemar á lista Lítið bólar á efndum á áformum Israela um að rífa landmemabyggðir á Vest- urbakkanum. Um helgina var þremur byggðasvæðum bætt á lista yfir þær byggðir sem ætlunin er að rífa. Fyr- ir voru sex landmema- byggðir á lista. Engin þess- ara byggða hefur þó verið fjarlægð vegna lagalegra álitaefna. Líkfljóta við Kanarí Lfk drukknaðra flótta- manna fljóta nú í sjónum nærri Kanaríeyjum. Fyrir helgina drukknuðu þar að minnsta kosti 16 flótta- menn, en talið er að flótta- mennirnir nú séu ekki í þeim hópi. Fjöldi flótta- manna frá Afríku drukknar í hverjum mánuði nærri Spáni við tilraunir til að komast til Evrópu. Kýr gleypir demanta Demantssali íVestur Indlandi hefur unnið hörð- um höndum að því að end- urheimta demanta sem kýr á bænum hans át. Dem- antssalin, Dilubhai Rajput, gleymdi poka með 1722 demöntum inni í hlöðu og kýrin hans gleypti pokann í sig. Dilubhai vildi ekki drepa kúna heldur gefur hann kúnni laxerandi lyf og fygist grannt með ferðum hennar. I Indversku dag- blaði, Hindustan Times, var Dilubhai spurður af hverju hann dræpi einfald- lega ekki kúna. „Ég vildi ekki reyta dýravini til reiði," svaraði DUubhai og kvaðst vera viss um að endur- heimta alla demantana á innan við viku. Guðfinna Tryggvadóttir, íþróttakennari. „Nú í upphafi ársins hafa atlir það gott, að minnsta kosti fólkið sem er að efna ára- mótaheitið um að hreyfa sig svolítið og taka á hlutunum," segir Guðfinna Tryggvadóttir Hvernig hefur þú það? íþróttakennari hjá Eflingu. „Fólk kemur í stöðvarnar og fer í æfingatækin, í spinning eða á bretti - eða hvað sem það telur hentar sér best. Fjöldi fólks fer alltafað æfa strax eftir nýár, en það er markmið okkar sem störfum á þessum vettvangi að hópur- inn stækki til lengri tíma litið en að fólki hætti ekki eftir einn mánuð. Það er að þetta verði lífsstíll en ekkiskyndisókn." Mohammed Zahawi var aðeins 18 ára gamall þegar hann gekk í her Saddam Hússein. Hann barðist í stríðinu milli írak og íran en gekk svo til liðs við skæru- liða Kúrda. Mohammed vissi frá upphafi að íslensku sprengjuleitarmennirnir hefðu gripið í tómt. Enda barðist hann á sama svæði og þeir leituðu á. „Ég trúði því aldrei að þeir hefðu fundið sinnepsgas í þessum sprengjum," segir Mo- hammed Zahawi, klæðskeri hjá íslensku óper- unni. „Þessar sprengjur drífa aðeins 150 metra sem er augljóslega allt of stutt vegalengd fyrir eiturgassprengjur." Mohammed er íraskur Kúrdi og fyrrum liðsmaður í her Saddam Hussein. Hann tók sjálfur þátt í átökum á sama svæði og sprengjurnar fundust og neitar því alfarið að eit- urgas hafi verið notað. „Kannski hafa íslensku sprengjuleitarmennirnir verið að japla á harðfisk og haldið að lyktin af honum væri hættulegt eitur- gas." í fremstu víglínu Mohammed var 18 ára gamall þegar hann gekk í fraska herinn. „Þetta var árið 1977 og eftir tveggja ára herskyldu braust stríðið milli Irak og íran út. Þá neyddist ég til að halda áfram í hern- um." Mohammed var oft á tíðum á fremstu víg- línu en aðspurður vildi hann sem minnst tala um þá reynslu. Þó minnist hann á að hafa eitt sinn þurft að horfa upp á nánast alla herdeildina sína veraþurrkaða út. „Eg leit einfaldlega á þetta sem hvert annað verkefni," segir Mohammed. „Þegar þú upplifir hörmungar á hverjum degi er eins og þú dofnir og hættir að finna til. Maður sendir út dánartilkynn- ingar og veit að þúsunda manna er saknað," segir hann. „Það er í raun engin leið til að lýsa blóðpoll- unum, nályktinni og fjöldagröfunum. Þetta er stríð." Gekktil liðs við kúrdíska skæruliða Eftir að Mohammed hafði þjónað Saddam í sex ár lét Saddam reka alla kúrda úr hernum. „Okkur var ekki treyst," segir Mohammed sem fór til Norður íraks og gekk til liðs við kúrdíska upp- reisnarmenn. „Þetta var erfiður tími. Leyniþjón- ustan var með mikinn þrýsting á fjölskyldu mína og til dæmis var pabbi settur í fangelsi," segir Mo- hammed sem flúði til Irans eftir að hafa barist með skæruliðum. „Þá fékk ég þau skilaboð að annað hvort þyrfti ég að fara aftur til frak eða flýja til Evrópu og ákvað að taka síðari kostinn." Pólitískur flóttamaður Mohammed flúði til Þýskalands eftir að hafa nánast misst allt sitt. „Stjórnarliðar Saddams hirtu allar eigur mínar og fjölskyldunnar," segir Mohammed. „Mér tókst að útvega mér falsað vegabréf og átti aðeins fötin utan á mér þegar ég flúði til Þýskalands." Þar var Mohammed tekið sem pólitískum flóttamanni og útvegað hæli og síðar þýskt vegabréf. „Ég er Þýskalandi mjög þakklátur en þaðan gat ég séð fyrir fjölskyldu minni sem var enn búsett í írak," segir Mo- hammed hafði starfað sem klæðskeri í Basra áður en hann gekk í íraska hernum. í Þýskalandi fór hann í framhaldsnám í klæð- skerasaumi og kynntist kynntist íslenskri stúlku. Hann flutti í kjölfarið til íslands og vinnur nú sem klæðskeri hjá íslensku óperunni. Á endanum aðeins gröfin „Það er gott að vera á íslandi en stundum er „Maður sendir út dánartil- kynningar og veit að þúsunda manna er saknað, það er í raun engin leið til að lýsa blóðpollunum, nályktinni og fjöldagröfunum. Þetta er stríð." erfitt að fylgjast með öllum þessum fréttum frá Irak," segir Mohammed. „Irak er ríkt land með mikið of olíulindum og Bandaríkjamenn verða að gefa fólkinu það sem það þarfnast." Mo- hammed bindur vonir við að komandi kosning- ar muni takast vel og leggur áherslu á að sam- eina verði mismunandi trúarhópa í landinu. „Mér fannst það líka afar slæmt hvernig þeir niðurlægðu Saddam með að birta myndir af honum skömmu eftir handtökuna," segir Mo- hammed. „Það á enginn skilið að vera niður- lægður svona." Þrátt fyrir að hafa neyðst til að flýja heimaland sitt segist Mohammed ekki vera með mikla heim- þrá. „Ég er flökkusál og get búið nánast hvar sem er í raun," segir Mohammed og bætir við að kannski sé heimaland okkar allra aðeins gröfin. „Þar til þangað kemur lít ég á sjálfan mig sem heimsborgara." simon@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.