Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2004, Page 30
30 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004
Síðast en ekki síst DV
Þrjú bréf af beikoni, krukka af jarðarberjasultu og
önnur af hnetusmjöri. Glópagullssamlokan eins og
Elvis vildi hana, búin til á 69 ára afmæli kóngsins á dögunum.
Rétta myndin
Þekktu ekki Ástu Ragnheiði
Ha?
Popppunktur á laugardags-
kvöldið var afar áhuga-
verður en þá mættust þrír
fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna og
þrír frá stjórnarandstöðunni. Fyrir
hönd stjórnarinnar mættu Sigurð-
ur Kári Kristjánsson, Jónína Bjart-
marz og Guðlaugur Þór Þórðarson
en fyrir stjórnarandstöðuna Mörð-
ur Árnason, Magnús Þór Haf-
steinsson og Kolbrún Halldórs-
dóttir. Þingmennirnir stóðu sig
misvel þrátt fyrir að spurningar
Dr. Gunna hafi verið í léttari kant-
inum. Stjórnarandstaðan stóð sig
afar vel í glímunni; bæði Mörður
og Magnús Þór vörpuðu Sigurði
Kára sérlega léttilega úr „hringn-
um“. Að sjálfsögðu kom ein spurn-
ing um Árna Johnsen en önnur
spurning vakti þó sýnu meiri at-
hygli. Það var í liðnum þar sem
mynd birtist smám saman af
hljómsveit eða manneskju. Þar
hlupu stjórnarliðar aldeilis á sig og
giskuðu á að myndin væri af Willie
Nelson. Það reyndist ekki rétt og
smám saman birtist afgangurinn
afÁstu Ragnheiði Jóhannesdóttur,
plötustýru í Glaumbæ...
Ásta Ragnheiður í dag
Stjórnin þekkti hana ekki á mynd
frá Gtaumbæjarárunum.
• Idol - Stjömuleit er aðal um-
ræðuefnið meðal fólks eftir úrslita-
Síðast en ekki síst
kvöldið á föstudaginn. Kalli Bjami
tók þetta eins og flestir bjuggust við
og þegar úrslitin lágu fyrir kepptust
viðstaddir við að
óska honum til
hamingju, bæði
þeir keppendur
sem duttu út sem
og dómararnir og
fleiri. En það var
eitthvað sem vant-
aði þetta kvöldið
og það var án efa
að enginn gesta-
dómari mætti til
leiks. Sögur höfðu
verið uppi um að
Simon Cowell,
breski dómarinn
margfrægi, myndi
mæta á svæðið og
eins höfðu heyrst
af því sögur að
Norðmaðurinn
Kurt, sigurvegari
World Idol, myndi
setjast í dómara-
sætið. Nafn Jónsa í hljómsveitinni í
svörtum fötum hafði líka heyrst
enginn af þessum mætti til leiks.
Ekki hafa heyrst neinar útskýringar
á gestadómaraleysinu frá Stöð 2,
hvort um mistök hafi verið að ræða
eða hvort stöðin hafi viljandi ákveð-
ið að breyta út frá venju sem tíðkast
hefur í öllum löndum til þessa...
• Hermann Gunnarsson hefur
gengið í gegnum súrt og sætt og átt
marga sigrana. Sagan segir að hann
hafi fundið kyrrð-
ina, og þar með
sjálfan sig, í skjóli
vestfirskra fjalfa.
Hemmi starfaði
sem kynningar-
stjóri Vestflrska
forlagsins um jólin,
en nú þegar jóla-
bókaflóðið hefur fjarað út er óljóst
með starfsvettvang hans. Hann
liggur undir feldi, en hefur þó mörg
járn í eldinum. Sagan fyrir vestan
segir að Hemmi ætli að taka að sér
að stýra veislu Flateyringa á Stút-
ungshátíðinni, sem er annáluð fyrir
óheftan gleðskap að hætti sjávar-
byggða. Þykir ekki verra að gömul
kempa eins og Hemmi messi þar
yfir fólki boðskapi kyrrðarinnar og
náttúrufegurðarinnar...
• Hallur Hallsson, fyrrum frétta-
maður og einkavinur háhyrningsins
Keikó, hefur þessa dagana, svo sem
kunnugt er, með að gera kynningar-
mál vegna Heimastjórnarafmælis-
ins. Vegsemd hans þykir heldur
betur aukast með þessu embætti
enda er afmælið sérstakt óskaverk-
efni Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra. Gárungarnir hafa líka nefnt
Hall í sam-
ræmi við hvað
hann er að
sýsla þessa
dagana, og er
þess nú beðið
að með form-
legum hætti
verði kynntur
til sögunnar
Hallur Haf-
stein...
Ingi Jensson er teiknisjúkur.
Hann hefur verið teiknandi frá því
að hann var barn og er í dag aktí-
vasti teiknimyndasöguhöfundur
íslands. Verk hans sjást víða í blöð-
um og tímaritum en nú ætlar hann
að miðla þekkingu sinn til ann-
arra. Þess vegna hefur hann
ákveðið að efna til námskeiða í
teknimyndasögugerð sem hefjast í
byrjun febrúar.
Krumpað blað og brotinn
blýantur
„Þegar ég byrjaði að fást við
þetta komst ég fljótt að því að ég
átti í miklum vandræðum með að
koma hugmyndum mínum á blað.
Ég var oft að fá fínar hugmyndir en
endaði oft eftir nokkra tíma vinnu
með brotinn blýant, krumpað blað
einhverstaðar úti í horni og vont
skap," segir Ingi sem hefur starfað
við myndskreytingar og teikni-
myndasögurgerð frá 1998.
„Ég er loksins búinn að ná tök-
um á því hvernig maður á að gera
þetta núna eftir að hafa verið að
vinna við þetta í nokkurn tíma.
Þess vegna er kominn tími til þess
að gefa aðeins af mér því ég efast
ekki um að margir eigi í sömu
vandræðum og ég átti á sínum
tíma.“
Um nokkur námskeið er að
ræða fyrir ólfka aldurshópa og svo
eru framhaldsnámskeið einnig í
boði fyrir lengra komna. Allar nán-
ari upplýsingar um námskeiðin og
hvað þar verður um að vera er
annars að finna á heimasíðunni
www.skurinn.ingi.net. Einnig er
Ingi með vefsvæðið www.ingi.net
þar sem hægt er að skoða verk
hans. Þar er meðal annars að finna
sitthvað af sögum um Heim
Sjonna sem hafa birst í tímaritinu
Bleiku og bláu síðstu árin auk ann-
arra verkefna sem hann hefur
fengist við.
Vakning í teiknimyndasög-
unum
„Ég var með námskeið fyrir jól
sem gekk alveg þrusu vel. Það er
eins og það sé að verða einhver
vakning í þessum hlutum hér á
landi og myndasögugerð hefur
fengið byr undir báða vængi á síð-
ustu árum. Tilkoma verlsunarinn-
ar Nexus hefur haft mikið að segja
og mikið af krökkum leitar þangað
til að ná sér í teiknimyndasögur.
Þess vegna datt mér í hug að halda
þessi námskeið enda eru flestir
krakkar eitthvað að teikna og mörg
þeirra búa yfir fullt af góðum hug-
myndum. Þau þurfa samt leiðsögn
sem ég vonast til að geta veitt
þeim,“ segir Ingi sem segist verða
ánægur með starf sitt þegar ein-
hver fyrrverandi nemandi hans
mun hafa af honum pláss í teikni-
myndasögublaði.
„Margir hætta hins vegar að
teikna þegar þeir komast á ákveð-
in aldur því þá fer sjálfsgagnrýnin
að segja mikið til sín. Ég vona hins
vegar að sem flestir haldi þessu
áfram enda er þetta mjög
skemmtilegt. Sumir hafa líka kall-
að þetta bíómynd fátæka manns-
ins því það kostar náttúrfega ekki
jafn mikið að gera teiknimynda-
sögu og kvikmynd. Ég held að það
sé ágætis lýsing á þessu,“ segir
Ingi.
Eins og áður sagði er hægt að
náfgast upplýsingar um námskeið-
in á áðurnefndum vefsvæðum auk
þess sem hægt er að nálgast ein-
hver verka hans í versluninni Nex-
us að Hverfisgötu 103.
mma
Teiknisjúkur Ingi segist hafa verið teikn-
andi alla sina ævi ognúsé komið að miðta
reynslunni til annarra. Hann hefur haft
myndskreytingar og teiknimyndasögugerð
að atvinnu frá 1998 og ætiar núað haida
námskeið í greininni.
Lárétt: 1 lyftiarmur,4 fer-
líki, 7 óskertur, 8 jörð, 10
pár, 12 eira, 13 ískur, 14
kvabb, 15 kaðall, 16
bugt, 18 dysja, 21 drolla,
22 veldi,23 hættuleg.
Lóðrétt: 1 eldur, 2 þræll,
3 dauði, 4 víðavangs, 5
púki, 6 skagi, 9 duglegur,
11 ræsi, 16 hæfur, 17
beiðni, 19 heydreifar, 20
ábata.
Lausná krossgátu
'9JB 03 '>|bj 61 '>|so
L L g i 'gjmp i l j|eie 6 'ssu 9 'ue s 'sjn6uejaq þ j|!ijnp|e £ 'ueuj z j?q L :H3Je91
'Qssjs £Z jj.u ZZ 'ejo|s iz'EQm g 1 jo|j
91 '601 sl 'eneu trl 'JJeuj £i 'eun zi 'ssjj ql 'pue| 8 'js6|e l 'u>|eq ^'eiuoq l
Veörið
Nokkur
vindur
+1*‘r /~v
C-P +0**Gol.
O-
ife é Nokkur
vindur
-1 HS^L-
Gola
/~S_
+3*‘gST
+0
»3 * ♦Strekkingur
+5*é4*Gola
+4
4é4é V
Cbf
+44*4é
♦ é Nokkur
Gola vindur
+3* é* áNokkur
* 0 4 4vindur
Nokkur
vindur
Nokkur
vindur