Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004
Fréttir DV
Útgáfufélag:
Frétt ehf.
Útgefandl:
Gunnar Smári Egilsson, ábm.
Ritstjóran
lllugi Jökulsson
MikaelTorfason
Fréttastjórar
Kristinn Firafnsson
Kristján Guy Burgess
DV: Skaftahlið 24, Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm:
550 5020 - Aðrar deildin 550 5749
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing-
an auglysingar@dv.is. - Dreifing:
dreifing@dv.is
Setning og umbrot Frétt ehf.
Prentvinnsla: Isafoidarprentsmiðja
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagna-
bönkum án endurgjalds.
15aukarúm
Heilbrigðisráðherra
hefur samþykkt að
fjölga
hjúkrunar-
rýmum á
Akureyri
um 15 og
er unnið að
því að út-
búa til
bráðabirgða nýja hjúkr-
unardeild í Skjaldarvík
vegna þessa. Þykir ráð-
stöfunin til mikilla bóta
fyrir norðan.
17. júníá
Reyðarfirði
Bæjarráð Fjarðabyggðar
hefúr samþykkt að 17.
júní hátíða-
höldin í ár
fari fram á
Reyðarfirði.
Er ákvörðun-
in tekin með
tilliti til þess að sjó-
mannadagurinn er veg-
legur bæði á Eskifirði og
í Neskaupsstað og því sé
rétt að Reyðflrðingar fái
sitt. Þeir eigi skilið að fá
17. júní.
Bannað börnum
Barnaverndaryflrvöld á
fsaflrði hafa komist að
þeirri niðurstöðu að
leikritið fsaðar gellur,
sem Litli leikklúbbur-
inn er að æfa, sé ekki
við hæfl barna. Þó
munu skiptar skoðanir
hafa verið í nefndinni
og menn tvístígandi
áður en komist var að
niðurstöðu.
Minna vatn
Sala á heitu vatni hefur dregist • v:~\
saman um 10
prósent í Sveitar- Æ,
félaginu Árborg á l.W/'
síðastliðnum
mánuðum vegna m.
góðs tíðarfars. -
Selfossveitur hafa ekki °
breytt gjaldskrá sinni “
eftir tíðarfari og verður
svo áfram þar til annað ^
kemur f ljós. 2
[ pósthúsið !
Hafnarfjarðardeild
Rauða kross fslands hef- Z
ur fest kaup á tveimur =
hæðum í
öðrum enda
gamla póst-
hússins við
Strandgötu
oghyggst
flytja þang-
að starfsemi
sína í mars eða aprfl. ™
Um er að ræða rúmlega
400 fermetra húsnæði ™
en rýmið sem Hafnar- »
fjarðardeildin starfar nú «
í við Bæjarhraun er rétt ^
innan við 100 fermetrar. >-
Skrytið!
1 r ekki eitthvað skrýtið við vort land, ís-
|H land?
Eða geta menn ímyndað sér eitthvert það
annað land í hinum svokallaða siðmenntaða
heimi þar sem upp gæti komið annað eins
mál og það upphlaup sem varð hér vegna
heimastjórnarhátíðarinnar og ríkisráðsfund-
arins?
Væri það hugsanlegur möguleiki að eitt-
hvað þvíumlíkt gæti átt sér stað í... segjum
Danmörku? Svíþjóð? Noregi? Eða Bretlandi
eða Hollandi eða Þýskalandi?
Ég hygg að svarið hljóti að vera nei, nei,
nei, nei, nei og nei.
Eða mál eins og „stóra bolludagsmálið" í
fyrra? Að forsætisráðherra trommi upp í fjöl-
miðlum með þá ásökun að helsti bissnissjöf-
ur landsins hafi ætlað sér að múta honum
með 300 milljónum og svo gangi á með stór-
skrýtnum ásökunum á alla bóga í eina viku
en svo gufi málið bara algerlega upp, án þess
að nokkur fái að vita hver var sannleikurinn í
málinu og hvort það var yfirleitt einhver
sannleikur einhvers staðar eða hvort það var
kannski ekki einu sinni neitt mál neins stað-
ar.
Sjá menn fyrir sér að þetta - eða eitthvað
þessu líkt - gæti hugsanlega gerst í Sviss? Eða
í Finnlandi? Eða í Frakklandi?
Nei, nei og aftur nei - það fer varla mjög
milli mála að svona boila gæti hvergi í vest-
rænum löndum sprungið framan í almenn-
ing án þess að krafist yrði almennilegra skýr-
inga á því hvað var eiginlega á seyði. Hver var
sekur um hvað?
Fleiri mál mætti nefna, sem engin leið er
að ímynda sér að gætu gerst annars staðar í
siðmenntuðum löndum, en þessi tvö verða
látin duga að sinni. Og áhyggjuefni að slíkum
málum virðist fara fjölgandi heldur en hitt.
En séu nú allir sammála um að svona fífla-
gangur gæti hvergi átt sér stað nema hér, hver
er þá skýringin á því að hér á landi spretta
upp svona mál eins og gorkúlur?
Er einfaldlega eitthvað skrýtið við okkur?
Og er eitthvað skrýtið við „okkur" í merk-
ingunni almenningur, eða við stjórnar-
herrana í landinu?
Það segir væntanlega einhverja sögu að í
hvert sinn sem upp koma verulega skrýtin
mál á íslandi, þá er sami maðurinn alltaf í að-
alhlutverki.
Davíð Oddsson forsætisráðherra.
Er þá eitthvað skrýtið við hann?
Ja... hann er náttúrlega búinn að sitja ansi
lengi í embætti. Sé valdsmaður lengi í emb-
ætti segir sagan okkur að viðkomandi valda-
kerfi fari óhjákvæmilega að stjórnast um of af
honum, miðast við hann og mótast af duttl-
ungum hans.
Eitthvað kann að vera til í því. En við tök-
um auðvitað öll þátt í vitleysunni. Látum
hana að minnsta kosti yfir okkur ganga.
Það hlýtur að vera eitthvað skrýtið við
okkur.
lllugi Jökulsson
„Moðgun við íslensku
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður
skrifaði grein í Morgunbiaðið í gær og
vakti athygli að greinin var í útliti ná-
kvæmlega eins og sjálfúr prófessor
Jón Steinar væri á ferðinni; hún var
stutt og í svörtum ramma og skar sig á
allan hátt frá öðrum aðsendum grein-
um í blaðinu. Grein Sveins Andra
svipaði lika til greina Jóns Steinars að
því leyú að hún snerist um að spæla
þá sem Davíð Oddsson forsætisráð-
herra á í höggi við þá stundina, f þessu
tilviki Ólaf Ragnar Grímsson, forseta
íslands. (Nú mun Davíð að vísu láta
svo um mælt að hann eigi síður en svo
í höggi við forsetann - en þið vitið
samt hvað við eigum við.)
Það má reyndar ætla að þetta verði
talin sérstök bókmenntagrein á ís-
landi í framtfðinni - smágreinar til
stuðnings Davíð - og okkur þykir fal-
legt að Jón Steinar skuli nú hafa eign-
ast lærisvein í greininni. Hann hefúr
hingað til verið nánast einn og einráð -
ur á þessu sviði, þótt vissulega hafi
komið fyrir að nákvæmlega eins
greinar hafi birst í Mogganum til vam-
ar Davíð í einhverjum málum, en þær
hafa þá undantekningarlaust verið
skrifaðar af Hannesi Hólmsteini Giss-
urarsyni.
Bókmenntafræðingar okkar full-
yrða að Sveinn Andri stökkvi nær al-
skapaður fram úr höfði Jóns Steinars á
þessu nýja bókmenntasviði og við
stöndumst því ekki mátið að birta
hana hér eins og hún leggur sig. Fyrir-
sögnin er: „Var forsetinn í Aspen?" og
síðan skrifar Sveinn Andri:
„Undarleg hefúr mér þótt..."
Þetta upphaf - ef við megum strax
brjótast inn í greinina - þetta upphaf
er glæsiiegt og sver sig ffábærlega í ætt
við greinar Jóns Steinars. Svona grein-
ar skulu nefnifega jafnan skrifaðar í
dálitlum undmnartón ffernur en
hneykslunartón. Sá sem skrifar skal
vera skorinorður en má þó ekki taka of
fast til orða, því það getur virkað öfugt,
heldur á hann fyrst og ffemst að vera
standandi bit á þeim vitleysum og
mgli sem mótstöðumenn Davíðs hafa
ætíð og ævinlega gert sig seka um.
Það má reyndar ætla að þetta
verði talin sérstök bókmennta-
grein á íslandi íframtíðinni -
smágreinar til stuðnings Davíð
- og okkur þykir fallegt að Jón
Steinar skuli nú hafa eignast
lærisvein í greininni.
Fyrst og fremst
Þessi byrjun á greininni sýnir glögg-
lega hversu vel Sveinn Andri hefur
stúderað stíl og blæbrigði Jóns Stein-
ars. Tekið skal þó skýrt fram að með
þessu er Sveinn Andri ekki sakaður
um ritstuld af neinu tagi-jafnvel ekki
þótt hann látí hjá líða í þessu tilfelli að
geta fyrirmyndarinnar að skrifum sín-
En nóg um það. Sveinn Andri skrif-
ar sem sé: „Undarleg hefur mér þótt
umræða um ríkisráðsfund sem hald-
inn var þann 1. febrúar sl. og fjarveru
Ólafs Ragnars Grímssonar á fundin-
um. Aðalatriði málsins hefur verið í
skugganum, sem er það hvers vegna
maðurinn sem lqörinn var til að gegna
embættí forseta íslands var fjarver-
andi við hátíðahöld í tilefni þess að
100 ár em liðin frá því að ísland fékk
sinn eigin ráðherra, Hannes Hafstein.
Maður sem titlaður er „sérfræð-
ingur á skrifstofú forseta íslands"
skýrir fjarveru forsetans með því að frá
lokum fostudagsins 20. janúar til miðs
febrúar dveldi forsetinn í einkaerind-
um í útíöndum. Sérfræðingurinn seg-
ir síðan að „ráðstafanir varðandi frí
forsetans" hafi verið gerðar með
nokkuð löngum fyrirvara og áður en
borist hefðu upplýsingar um hátíða-
dagskrána.
í hverju er þessi sérfræðingur sér-
fræðingur ef hann getur ekki séð það
Svart á hvítu..."
Athugið - ef við megum aftur
trufla Svein Andra - að það em ekki
mistök eða innsláttarvilla að hann
hafi stórt „s“ í Svart Þetta er bók-
menntaleg tilvísun af lymskulegra
taginu og sýnir ótvfrætt að Sveinn
Andri hyggst fara af stað með miklum
metnaði í þessari bókmenntagrein -
við erum ekki einu sinni viss um að
Jón Steinar hefði sýnt þvílíkt tilþrif.
Sveinn Andri er nefnilega hér á þenn-
an bráðskemmtilega hátt að vísa til
ömólfs Thorssonar, eins helsta að-
stoðarmanns Ólafs Ragnars, en hann
starfaði hér áður meðal annars við að
gefa út íslendingasögumar fyrir
bókaforlag sem hét Svart á hvítu. Þótt
það forlag væri afar metnaðarfullt og
útgáfa ömólfs og félaga hlyti einróma
lof, þá fór á endanum illa fyrir fyrir-
tækúiu og það fór á hausinn. Það er
einmitt eitt það atriði sem Ólafur
Ragnar var í sfnu fyrra lífi sem póli-
tflcus gagnrýndur hvað mest fyrir, að
meðan hann var fjármálaráðherra
fyrir margt löngu skyldi hann kaupa
gagnagrunn af Svörtu á hvítu fyrir háa
upphæð - en sá grunnur reyndist síð-
an hvorki fúgl né fiskur og fénu á glæ
kastað.
Það er þetta sem Sveinn Andri er
að vísa til og við verðum að gefa hon-
um prik fyrir uppátækið, þótt Ömólf-
ur Thorsson hafi reyndar (eftir því
sem við best vitum) lítt eða ekki kom-
ið við sögu gjaldþrots útgáfufyrirtæk-
isins og hafi áreiðanlega ekkert fé
þegið fyrir gagnagrunninn. En með
þessu stóra „s-i“ hefúr Sveinn Andri
sem sagt rifjað upp það mál, að
minnsta kosti í hugum þeirra sem
það þekkja.
En sem sagt: „'... ef hann getur ekki
séð það Svart á hvítu að haldið verði
upp á 100 ára afmæli heimastjórnar á
Islandi? Fyrrverandi prófessor í
stjórnmálafræði [Ólafur Rangar]
þekkir einnig fullkomlega þýðingu
þessa dags í íslandssögunni og það er
móðgun við íslensku þjóðina að hann
skuli hafa tekið frí í Bandaríkjunum
fram yfir hátíðahöld í tilefni dagsins.
Hvar verður Ólafur Ragnar á 60 ára af-
mæli lýðveldisins í sumar? Á Stam-
ford Bridge með Abramovich?“
Önnur tilvísun - að þessu sinni
augljós og þarf ekki að fjölyrða um
hana.
Við ítrekum að við gleðjumst yfir
því að Sveinn Andri skuli nú hafa stig-
ið ffam og auðgað þessa bókmennta-
grein. Hann sýnir vissulega góða
spretti. Við verðum að vísu að viður-
kenna að okkur þykir hann skjóta all-
nokkuð yfir markið undir lokin, þegar
hann segir að frí Ólafs Ragnars hafi
verið „móðgun við íslensku þjóðina".
Við tökum undir raddir margra sem
herma að fjarvera Ólafs Ragnars sé
einkennileg, jafnvel ósmekkleg. En
„móðgun við íslensku þjóðina" -
svona talar maður ekki lengur. Þetta
gæti verið upp úr íslandssögubók
Jónasar frá Hriflu.
Eða hvaða liluta þjóðarinnar hefur
Sveinn Andri hitt sem er voöalega
móðgaður?