Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Blaðsíða 25
DV Fókus FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 25 ViO komuna til Bandarikjanna Bítlarnir á fréttamannafundi á JFK flugvelli 7. febrúar 1964. mmi Nú í febrúar eru 40 ár liðin frá fyrstu heimsókn Bítlanna til Banda ríkjanna, en sá atburður breytti bandarísku tónlistarlífi og gerði Með Sullivan Bitlarnir ásamt sjónvarpsmanninum Ed Sullivan. egar Bítlamir lentu á IFK-ílugvelli í New York 7. febrúar 1964, í sinni fyrstu heimsókn til Bandarfkjanna, biðu þeirra þúsundir öskrandi unglingsstelpna. Fjölmiðla- geggjunin og múgæsingin, sem fylgdi tveggja vikna dvöl þeirra í landinu, var með ólíkindum og óhætt að segja að hvorki Bandarfldn né Bídamir hafi orðið söm eftir. Hélt að fólkið fagnaði drottningunni Það lá alltaf fyrir að Bítlamir fæm vestur um haf, en það var samt tilviljun að það gerðist nákvæmlega svona. Vinsælasti skemmtiþáttastjómandi Bandaríkjanna á þessum tíma var Ed Sullivan. Hann var fyrir tilviljun staddur á Heathrow-flugvelli 31. október þegar Bítlarnir vom að koma heim úr heimsókn til Svíþjóðar. Hann þekkti þá ekki og hélt fyrst að allur þessi æsti mannskari ,sem beið á flugvellinum, væri að taka á móti drottning- unni. Þegar hann komst að hinu sanna ákvað hann að bjóða þeim umsvifalaust tO Bandaríkjanna tO þess að spOa í Ed Sullivan Show. Skiptiborðið hrundi vegna Bítlaaðdáenda Fyrstu þrjár smáskífur Bítlanna (From Me To You, She Loves You og Please Please Me) vökm litía athygli vestan- hafs. Þegar sú fjórða - og sú fyrsta sem plöturisinn Capitol gaf út -1 Want To Hold Your Hand, kom út varð hins veg- ar allt vitíaust. Þegar lagið var spOað í fyrsta sinn á WWDC- útvarpsstöðinni í Washington DC bað útvarpsmaðurinn Carroll James hlustendur að hringja ekki heldur skrifa og segja sér hvað þeim fyndist um lagið. Nokkrum mínúrnm seinna hrundi sfmaskiptiborð stöðvarinnar vegna of mikOs álags frá æstum unglingsstúlkum sem gátu ekki beðið með að segja CarroU hvað þeim fyndist lagið æðislegt. I Want To Hold Your Hand fór beint á topp bandaríska smáskífulistans og sat þar þegar Bítíamir komu í fyrsta sinn tO Bandaríkjanna. Þeir héldu fréttamannafundi, komu þrisvar fram á Ed SuUivan Show í New York og Miami og spOuðu tónleika í Washington DC. í tOefni af 40 ára afmæUnu kemur myndin First US Visit, sem Albert Maysles gerði um heimsóknina, út á DVD 9. febrúar. Auk myndarinnar sjálfrar er aukamynd um gerð hennar með nýjum viðtölum og áður óbirtum myndskeið- um úr heimsókninni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.