Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Blaðsíða 12
72 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004
Fréttir DV
Bæjarstjórn
sögð ráðalaus
Snjólaug Ásta Sigur-
finnsdóttir og félagar henn-
ar í minnihluta K-listans í
bæjarstjórn Ólafsfjarðar
segja sveitarfélagið ekki
nógu fjárhagslega stöndugt
til þess að standa undir
kröfum og skyldum.
K-listamenn segja veru-
lega skuldasöfnun væri
áhyggjuefni með tilliti til
þess að framkvæmdir á
vegum sveitarfélagsins séu
nánast engar.
„Það verður að horfast í
augu við það, að með
óbreyttu gengur þetta ekki
upp lengur. Hér verður að
koma til stórlegrar upp-
stokkunar og viðhorfs-
breytinga," segir í bókun
sjálfstæðismanna í K-list-
anum sem vilja lækka
skuldir með sölu á eignum
sveitarfélagsins.
Fulltrúar Ólafsfjarðar-
listans, sem er ffamboð fé-
lagshyggjufólks, segja á
hinn bóginn að fjárfesting í
grunngerð og þjónustu
muni skila sterkari stöðu til
framtíðar. „Við höfum trú á
Ólafsfirði og framtíðinni,“
segja Jóna Vilhelmína Héð-
insdóttir og aðrir í Ólafs-
fjarðalistanum í bókun
sinni.
i
Fara offari
í sparnaði
Starfsmönnum við
sjúkrahús Suðurlands verð-
ur gert að greiða sérstak-
lega fyrir allt kaffi, mjólk og
sykur ef sparnaðartillögur
stjórnar stofnunarinnar
ganga eftir. Tillögurnar em
til athugunar í heilbrigðis-
og tryggingaráðuneytinu og
ættu niðurstöðumar að
liggja fyrir í lok vikunnar.
Eru margir starfsmenn
óánægðir og lýsti einn
þeirra yfir við DV áhyggjum
sínum af því að næst á dag-
skránni væri líklega að láta
greiða sérstaklega fyrir
notkun á salernispappír.
Viðkomandi taldi að með
þessu væri farið offari í
sparnaðaraðgerðum.
Hættir ekki í
pólitík
Fyrmm forsætisráðherra
Frakídands, Alain Juppé,
neitar að hætta í pólitík en
hann var í liðinni viku
dæmdur í 18 mánaða skil-
orðsbundið
fangelsi. Juppé
var fundinn
sekur um spill-
ingu sem fólst
í því að hann
lét nokkra
starfsmenn
Gaullista-
flokksins þiggja laun hjá
Parísarborg í byrjun 10.
áratugarins. Samkvæmt
dómnum er Juppé meinað
að gegna opinbemm störf-
um næstu tíu árin. Juppé
telur sig ekki eiga slíkt skil-
ið og hefur forseti landsins,
Jacques Chirac, tekið í
sama streng. Dómnum hef-
ur verið áfrýjað til Hæsta-
réttar.
Tveim starfsmönnum póstkröfudeildar Rúmfatalagersins grunaði að ekki væri allt
með felldu þegar viðskiptavinur þeirra svaraði hvorki heimasíma né dyrabjöllu
f
Arvekni þeirra
bjargaði mannslífi
„Okkur fór strax að gruna að eitthvað gæti
verið að konunni,“ segir Sæþór Steingrímsson,
starfsmaður í póstkröfúdeild Rúmfatalagersins.
Viðbrögð hans og Heimis Arnar Hannessonar
urðu til þess að eldri kona sem hlotið hafði
heilablóðfall í íbúð sinni fannst í tæka tíð og er á
batavegi á sjúkrahúsi.
„Hún hringdi hingað og pantaði svefnsófa og
vildi fá hann sendan til sín sem fyrst. Skömmu
síðar hringdi hún aftur og bað okkur um að
koma síðar þar sem hún væri með mikinn haus-
verk.“
Sæþór segir að sendibíll hafi þá þegar verið
farinn af stað með sófann en enginn ansað
dyrabjöllunni þegar til kom.
„Ég fletti henni upp í þjóðskránni og sá að
hún bjó ein svo við prófuðum að hringja aftur
daginn eftir. Hún svaraði ekki heldur þá en við
ákváðum að hringja í 112 og benda þeim á að
mögulega gæti eitthvað hafa komið fyrir kon-
una. Síðan hringdi lögreglumaður í okkur og
sagði okkur að ekki hefði mátt tæpara standa.
Þá hafði hún legið á gólfinu í heilan sólarhring
án þess að geta nokkra björg sér veitt.“
Þakkaði lífgjöfina
Einkasonur konunnar sem um ræðir hafði
samband við þá félaga og þakkaði þeim lífgjöf-
ina og viðurkennir Sæþór að þá hafi honum
hlýnað um hjartaræturnar. „Það er í raun skrýt-
ið hversu mikið við tókum þetta inn á okkur.
Svona lagað kemur oft upp á í okkar starfi en við
höfum hvorugir fengið slæma tilfinningu áður
vegna þess að viðskiptavinur svarar ekki þegar
von er á okkur.“
Konan sem um ræðir er á góðum batavegi og
áttu læknar von á að hún yrði flutt á almenna
deild síðar í dag.
„Ég prísa mig sælan að þeir héldu vöku sinni
í þetta skipti," segir Haraldur Gunnarsson, son-
ur konunnar en hann hafði dvalið hjá henni og
var nýfarinn þegar áfallið reið yfir.
albert@dv.is
Heimir Örn og Sæþór Þegar
konan svaraði hvorki síma né
dyrabjöllu fengu þeir á tilfinn-
inguna að eitthvað væri að.
Byggðastofnun úthlutaði nýlega Qölda ærgilda til hinna verst settu bænda í landinu.
Þingeyingar mótmæla úthlutun
„Það er augljóslega gert upp á
milli bænda með óréttmætum
hætti,“ segir Hermann Herberts-
son, bóndi og stjómarmaður í
stjórn sauðfjárbænda í Suður-Þing-
eyjarsýslu. Þeir gagnrýna hart út-
hlutun Byggðastofnunnar á 7.500
ærgildum sem gengið var frá fyrir
skemmstu. Em ærgildin hluti af
uppkaupum ríkisins undanfarin ár
en þeim átti að dreifa til hinna
dreifðu byggða þar sem ekki er um
önnur atvinnutækifæri að ræðafyr-
ir bændur.
Hermann segir að flestar aðrar
sýslur í landinu en Suður-Þingeyj-
arsýsla fái sinn skerf þrátt fyrir að
margir bændur í sýslunni búi við
bág kjör. „Þótt að ekki sé mikið til
skiptanna þá telur þetta fyrir marga
sem ekki hafa neina möguleika
aðra en reka sitt bú. Okkur finnst að
Byggðastofnun hefði getað tekið
tillit til allra við úthlutunina."
Ari Teitsson, formaður stjómar
Bændasamtaka íslands, segist ekki
vera hissa á ályktun sauðíjárbænda
í Suður-Þingeyjasýslu. „Þeir em óá-
nægðir með að fá ekki sinn skerf
eins og aðrir," segir Ari Teitsson,
formaður stjórnar Bændasamtaka
íslands. „Hins vegar er staðreyndin
sú að bændur þar geta flestir sótt
annað ef í harðbakkann slær en sú
staða er ekki uppi á mörgum þeim
stöðum sem fá úthlutað þessum
kvóta núna
Úr Þingeyjasýslu Bændurþartelja
ástandið þar síst betra en annars staðar.