Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Qupperneq 3
r W Fréttir : píö5V>-y3 > ryi'—.: '"■: rp ■ ■■ f,\ i FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 Fokkmerki í lopavettlingi Sumir gætu haldið að það lægi mjög einföld og alls ekkert gildis- hlaðin ákvörðun að baki því að setj- ast upp á hjól og hjóla í bankann eða búðina, en það er alls ekki rétt. Sú ákvörðun að fara hjólandi ferða sinna er mjög pólitísk, næstum trú- arleg, og á háskalegustu dögunum getur þessi ferðamáti spilað á allan tilfmningaskalann eins og hann leggur sig. Það er hrein gleði þegar maður dólar á fáförnum slóðum síðla kvölds og þorir að sleppa höndunum af stýrinu; skömmin eft- ir að hafa óvart svínað fyrir bíl og sent saklausan ökumann heim til sín í kvöldmat með starandi augu, hárið beint upp í loft og blóðslettur í ímyndunaraflinu; montið yfir því að bruna fram úr jeppunum á Lauga- veginum; hræðslan á miðjum gatna- mótum þegar það rennur upp fyrir manni að það gleymdist að líta á umferðarljósin; sjálfsupphafningin þegar maður ber sig saman við leti- bikkjurnar í gormasætunum með súran reykinn aftan úr sér - og svo framvegis. Óvinsældir En með því að láta sjá sig á hjóli í Reykjavík skipar maður sér í óvin- sælan minnihlutahóp sem er eigin- lega hvergi velkominn, nema þá kannski á sérstökum hjólreiðastíg- um, en þangað sækja bara þeir sem hjóla sér til heilsubótar. Ég er hins vegar að tala um okkur sem stóla á hjólið sem samgöngutæki. Gang- andi vegfarendum er illa við okkur á gangstéttunum, sem er enda skilj- anlegt því hjól eiga ekki heima á gangstéttum. ökumenn, aftur á móti, þyrftu sumir að fara aftur í sex ára bekk í umferðarskólanum af því að þeir eru greinilega búnir að gleyma að hjól eru hluti af umferð- inni og eiga samkvæmt lögum að ferðast eftir sömu götum og bflarn- ir. Þegar ökumenn flauta á mig, af engri ástæðu annarri en að þeim finnst ég vera að þvælast fyrir þeim á götunni þeirra, er mér skapi næst að senda þeim fokkmerki - og hef Guðrún Eva Mínervudóttir fór út að hjóla. Kiallari raunar tvisvar sinnum látið það eft- ir mér. Að vísu var ég með lopavett- linga í bæði skiptin, en það er hug- urinn á bak við verkið sem skiptir máli, eða er ekki svo? Dekurrassar Raunar finnst mér að þegar það er skítkalt úti eða mígandi rigning eða hífandi rok, ættu að gilda sérstakar reglur um gangandi og hjólandi hetj- ur sem hika ekki við að ögra berum himni án þess að hafa blikkþak yfir sér eða miðstöðvarblástur framan í sig. Hetjur ættu ekki að þurfa að bíða eftir grænu ljósi. Fólkið sem lætur fara vel um sig í hlýju bflunum sín- um, með útvarpið á fullu til að passa að því leiðist ekki eitt augnablik, er ekkert of fi'nt til að hægja ferðina og hleypa sönnum ferðalöngum yfir göturnar, undantekningarlaust. Mik- ið er gott að olíufélögin skuli taka að sér að refsa þessum þægindasjúku dekurrössum. Það getur verið að þessar línur beri þess merki að eftir óteljandi daga með frostköldum vindi sé farið að næða inn um eyrun á sumum, en það verður þá bara að hafa það. Samúð með óvininum Hvað um það, eftir nokkrar vikur verður eiginlega komið vor (febrúar er nú svo stuttur) og þá verð ég far- in að vorkenna öllum þeim sem neyðast til að slíta sér út fyrir pen- inga- gleypi á hjólum og sitja síð- an í umferðarteppu með gervileð- urslykt í nösunum, innilokunar- kennd, mengunarsamviskubit ein- hvers staðar í bakheilanum og aft- ursætið fullt af innkaupapokum og pirruðum börnum. Úff, eiginlega er ég strax farin að vorkenna þeim. (Samúð með óvininum er auðvitað hámark hræsninnar, en maður læt- ur sig kannski hafa ýmislegt til að ríghalda í trúna á eigið göfuglyndi.) Alþingi og eftirlaunalögin „Augljóstað ætlunin er að treysta á lélegt minni kjós- enda," segir bréfritari. Mótmælum svívirðunni Þórarinn Már Baldursson, Stutt- gart í Þýskalandi: Mér finnst vægt tekið til orða á vefsíðunni www.almenningur.is, en þar er sagt að tilviljun gæti hafa ráðið því að forréttindalögin um eftirlaun þingmanna og ráðherra vom sam- þykkt við fýrsta tækifæri eftir kosning- ar. Það er augljóst mál að ætlunin er að treysta á lélegt minni kjósenda og auka^með þeim vanmáttartilfinningu gagnvart þeirri svfvirðu sem lögin em. Lesendur Undir tilmælin á síðunni tek ég hins vegar heilshugar: „Alþingismenn. Við mælumst til þess að lög um eftirlaun forseta ís- lands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara írá 15. desember 2003, verði endurskoðuð. Við endur- skoðun laganna verði haft að leiðar- ljósi að almenningur og kjörnir full- trúar almennings búi í gmndvallarat- riðum við sömu eftirlaunaréttindi. - Forréttindi ganga gegn réttíætis- og lýðræðishugmyndum þorra lands- manna, sérstaklega forréttindi kjör- inna fulltrúa. Þeir sem kjömir eru til að setja lögin mega hvorki búa sjálf- um sér alrnenn réttindi umfram þau sem umbjóðendur þeirra njóta né af- marka aímenningi grundvallarrétt- indi sem þeir sjálfir vilja ekki una við og telja ófullnægjandi." Þessi tilmæli fela í sér svo hógværa og einfalda kröfu um sanngirni að all- ir sanngjamir menn hljóta að styðja þau. Ég hvet fólk til að fara á almenn- ingur.is og andmæla eftirlaunaólög- unum. Njóti virðingar Ingibjörg Gísladóttir hringdi: Mér finnst DV fara offari, ekki síst í ýmsum molum og smáfréttum þar sem Gísli Marteinn Baldursson, og raunar ýmsir fleiri sem skipa sér til hægri í stjórn- málunum, em allt að því lagðir í einelti. Þetta er ekki heiðarlegt, því þessir ungu menn hafa hug- sjónir sem þeir em að berjast f>'rir- 08 tleir Gísli Marteinn Lagð- sem bjoða sig urleinelti fúsir fram til starfa í þágu almennings eiga að njóta virðingar - en ekki þess að blaða- menn skrattist í viðkomandi. Það er líka skref langt aftur í tímann að pólítíkin sé öll á persónulegu plani og illkvitnisleg um leið. MeistariJakob? Jóhann Ámason hringdi: Ég las í Viðskiptablaðinu í gær at- hyglisverða grein eftir Jakob F. Ásgeir- son þar sem hann varar við hættunni af fjölmiðlaeign Baugs og almennt sterkri stöðu félagsins á markaðnum. Hlakka til að næstu grein Jakobs, sem verður væntanlega um veldi Moggans fyrr á tíð en það var var einn hlekkur- inn í kærleikskeðju Kolkrabbans. Ær- legur maður eins Jakob mun væntan- lega skrifa um það, ekki síst í ljósi þess að hann er glöggur sagnfræðingur og þekkir muninn á aukaatriðum og að- alatriðum. Einnig ætti hann sem fyrr- um blaðamaður á Mogga að þekkja þessi ffæði út og inn. DV tekur við lesendabréfum og ábendingum á tölvupóstfanginu lesendur@dv.is. DV áskilur sér rétt til að stytta allt það efni sem berst til blaðsins og birta það í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Spurning dagsins Á að markaðssetja íslensk þorrablót? Hluti afmenningu þjóðar „Slíkt þætti mér gáfulegt, því þær upphæð- ir sem varið hefur verið til markaðssetn- ingar á íslensku lambakjöti erlendis eru skuggalega háar. Erlendir ferðamenn sem eru á ferðinni hér um þetta leyti eru áhuga- samir og koma margir hingað í Múlakaffi að fá að smakka þennan framandlega mat og þorrablótin eru vissulega hluti afmenningu þjóðarinnar. Allar nýjungar í ferðaþjónustu er af hinu góða." Jóhannes Stefánsson, veitingamaður í Múlakaffi _ * • „Hugmyndin er ágæt og á Sel- fossblótið síð- ustu ár hafa komið gestir sem hafa heill- ast mjög af hinum þjóð- legu þorrablót- um. Hins vegar er lambakjötið okkar ágætt og óþarfi að hætta markaðssetningu þess fyrir þann skemmtilega sið að blóta þorra." Kjartan Björnsson, þorrablótshaldari á Selfossi „Efskoðaðar eru magntöiur, þá hefur sorg- lega lítill ár- angur náðst í sölu lamba- kjöts til Banda- ríkjanna. Ég tel að erlendir markaðir muni seintskila sauðfjárbændum viðunandi skilaverði. Að markaðssetja þorrablót er hins vegar mjög góð hugmynd, sem hægt er að nýta í menningartengdri ferðaþjónustu." Katrín Andrésdóttir dýralæknir „Það er stór- góð hugmynd að fá menn til þess að koma hingað og rifa í sig súra hrúts- punga og óblandað ís- kalt brennivín, það er á þeim tíma þegar minnst er að gera í ferða- þjónustunni. Mæli síðan með að Geir Ólafsson söngvari verði gerður að um- boðsmanni þorrablóta." Einar Bárðarson tónleikarhaldari „Ég er ekki bjartsýnn á að slíkt gangi upp, við þurf- um að vera alin upp við þorramat til þess að við vilj- um borða hann. Þetta er ámóta og ætla að ætla að seija Islend- ingum ferðir til að borða hunda, ketti og rottursem þykja herramannsmatur í sumum löndum." Özur Lárusson, Landssamtökum sauðfjárbænda Valgerður Sverrisdóttir ráðherra varpar tillögunni fram á heima- síðu sinni. Segir þetta jafnvel árangursríkara en markaðssetning erlendis á íslensku lambakjöti. -v;\ % ■> ■ .■ ,-;V- ■ V ■ ■ 10.000 lesendur frítt með Fréttablaðinu U á föstudögum ( Auglýsingasímar 515 7518 og 515

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.