Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004
Fréttir 0V
Meint Qármálamisferli Karls Benediktssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Líf-
eyrissjóðsins Framsýnar, er talið vera umfangsmikið. Kveikjan að lögreglurann-
sókn sem er að ljúka var 72 milljóna króna lánveiting til sonar Karls sem byggði
reiðhöll og lúxusmótel.
Alsæla lækkar
Verð á alsælu fer lækk-
andi eftir því sem fram
kemur í mánaðarlegri verð-
könnun SÁA á ólöglegum
vímuefnum fyrir janúar-
mánuð. í janúar var meðal-
verð á hverri töflu 1.430.-
krónur og hefur aldrei verið
lægra. Hæst var verðið í
september árið 2000 en þá
kostaði hver tafla 3.000.-
krónur. Allt síðast liðið ár
kostaði taflan á bilinu
1.730.- til 2.500.- krónur.
Verð á öðrum efnum
stendur að mestu í stað en í
janúar seldist grammið af
kókaíni á rúmar 10.000,-
krónur, af amfetamíni um
4.000.- krónur og hassi
2.200.- krónur. Verð á þess-
um efnum hefur nánast
staðið í stað allt frá því SÁÁ
hóf að gera könnun sína í
febrúar 2000.
Símakostnað-
ur 1,4 millj-
arðar
Síma- og fjarskiptakostn-
aður ráðuneyta og ríkis-
stofhana árið 2002 var 1,4
milljarðar, samkvæmt svari
fjármálaráöherra
við fyrirspum Ás-
geirs Friðgeirsson-
ar, þingmanns
Samfylkingar.
Kostnaður við
kaup og leigu á
símabúnaði og
varahlutum nam
þar af 164 mifljón-
um króna. Árangur
af útboðum á símaþjónust-
unni hefur ekki verið kann-
aður, en fjarskiptaþjónustan
er ekki útboðsskyld.
Hækka ekki
heita vatnið
Sala á heitu vatni á
svæði Selfossveitna hefur
dregist saman um 10% á
síðustu mánuðum vegna
góðs tíðarfars. Þrátt fyrir
þetta hafa Selfossveitur
ekki breytt gjaldskrá sinni
og vill stjórnin halda þeirri
stefnu óbreyttri. Orkuveita
Reykjavíkur hækkaði sem
kunnugt er fyrir skemmstu
verð á heitu vatni um 5%
vegna samdráttar í sölu.
Hávaði í
þolfimi
Margir þeirra sem sækja
líkmasræktarstöðvar kvarta
sáran yfir miklum hávaða á
stöðunum vegna tónlistar
sem spiluð er í botni. Á
heimasíðu Neytendasam-
takanna er greint frá mikl-
um kvörtunum vegna há-
vaða í þolfimitímum og séu
dæmi þess að fólk fari með
eyrnartappa í tíma til þess
að hlífa eyrunum. Greint er
frá því að þetta sé ekki sér
íslenskt vandamál og að í
Bandaríkjunum hafi verið
gefnar út leiðbeiningar um
að hávaði í þolfimitímum
eigi að vera á bilinu 70 til
80 db og megi ekki vera
hærri.
Meint misferli fyrrverandi framkvæmda-
stjóra Lffeyrissjóðsins Framsýnar, Karls Bene-
diktssonar, með fjármuni sjóðsins er sagt vera
umfangsmikið. Málið er enn til rannsóknar hjá
efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra.
Bjarni Brynjólfsson, núverandi fram-
kvæmdastjóri Framsýnar, segir stjórn sjóðsins
hafa vísað máli Karls til Fjármálaeftirlitsins
seint á árinu 2001. Fjármálaeftirlitið hafi eftir
skoðun sína á málinu vísað því til ríkislögreglu-
stjóra.
Sonurinn fékk 70 milljónir í reiðhöll
Bjarni játar því að kveikjan að ósk stjórnar
sjóðsins um skoðun á Karli hafi verið lánveit-
ingar sem Karl stóð fýrir til sonar síns, Axnar
Karlssonar, á jörðinni Ingólfshvoli í ölfusi.
Samkvæmt heimildum DV lánaði sjóðurinn
að minnsta kosti 72 milljónir króna til Ingólfs-
Reiðhöllin og mótelið Lifeyrissjódurinn Fromsýn fjár
magnaði meðal annars reiðhöll og mótel á jörðinni Ing-
ólfshvoli sem skráð var eign Arnar Karlssonar, sonar Karls
Benediktssonar. DV-Myndir GVA.
„Bjarni segir enga samantekt
vera til hjá Framsýn yfir meint
misferli Karls eða hversu háar
fjárhæðir málið snúist um."
hvols. Þar hefur meðal annars verið byggð stór
reiðhöll og svokallað mótel með 18 íbúðum
sem hver um sig hefur heitan pott.
Sjálfur býr Karl á jörð sinni Gljúfurárholti
sem er einnig í ölfusinu, rétt hjá Ingólfshvoli.
Þar er nú uppi áform um sölu stórra einbýlis-
húsalóða.
Tap verkalýðssjóðsins ekki vitað
Rannsókn lögreglunnar mun vera umfangs-
mikil og beinast að mun fleiri þáttum en lánun-
um til Ingólfshvols. Bjarni segir enga samantekt
vera til hjá Framsýn yfir meint misferli Karls eða
hversu háar fjárhæðir málið snúist um. „Málið
er í rannsókn hjá ríkislögreglustjóra," svarar
ffamkvæmdastjórinn slíkri spurningu.
Lífeyrissjóðurinn Framsýn hét áður Lífeyris-
sjóður Dagsbrúnar og Framsóknar. Sjóðurinn
er því sameign þessara félaga verkamanna og -
kvenna.
Efnahagsbrotadeildin mun nú vera náiægt
lokum rannsóknar sinnar á meintu misferli
Karls Benediktssonar.
gar@dv.is ■
Gljúfurárholt Gljúfurárholt i Ölfusi er eign og dvalar-
staður Karls Benediktssonar. DV-Mynd GVA.
Karl Benediktsson Hætti hjá
Lifeyrissjódnum Framsýn i
skugga rannsóknar á meintu
misferli með fjármuni sjóðs-
ins. Karl er sjötugur i dag.
Forsetinn vanvirðir Gísla Martein!
Svarthöfði verður að viðurkenna
að það hefur tekið hann marga daga
að átta sig á aðalatriðunum í „stóra
forsetamálinu" eins og kalla má
upphlaupið sem orðið hefur verið
vegna ijarveru Ólafs Ragnars Gríms-
sonar forseta bæði frá hátíðahöld-
unum um hinn mikla Hannes Haf-
stein og ríkisráðsfundinum víð-
fræga. Málið er eitt af þeim sem eru
svo sérkennileg að þau hefðu hvergi
getað komið upp í hinum siðmennt-
aða heimi, þar sem Svarthöfði þekk-
ir til, ekki einu sinni í spaugstofu-
þáttum þeim sem útlendingar una
sér væntanlega við að búa til.
En nú hefur Kunningi Svarthöfða
bent honum á sjálft aðalatriði máls-
ins. Um er að ræða mjög djúpt hugs-
að plott hjá Davíð Oddssyni til að lít-
illækka Ólaf Ragnar; það var reyndar
niðurstaðan hjá Svarthöfða sjálfum,
en Svarthöfði hafði hins vegar ekki
Wfmmm
1 Svarthöfði
áttað sig á því hversu hyldjúpt þetta
plott er - og hversu djöfullega út-
spekúlerað - fyrr en Kunningi hans
benti honum á það.
Það liggur fyrir að Ólafur Ragnar
átti ekki að fá að koma neins staðar
nærri Hannesarhátíðinni miklu,
ekki svo mikið sem flytja þriggja
mínútna ávarp, ekki svo mikið sem
vera viðstaddur hátíðina í sínum
heimabæ ísafirði. Þannig vildi Davíð
niðurlægja Ólaf Ragnar og Ólafur
Ragnar gekk beint í gildruna, rauk í
fýlu og fór til útlanda. Til að vekja
nógsamlega athygli á fjarveru hans
flautaði Davíð svo til ríkisráðsfund-
arins svo allir tækju eftir því að for-
setinn væri bara að frílista sig í út-
löndum þegar hann ætti að vera
heima að hylla Hannes Hafstein.
Aðeins með uppistandi vegna fjar-
veru forsetans á ríkisráðsfundinum
taldi Davíð sig nefnilega geta beint
athygli þjóðarinnar að hinum mesta
glæp Ólafs Ragnars - að hann var
ekki viðstaddur litlu listahátíð Sjálf-
stæðisflokksins í Þjóðmenningar-
húsinu. Davíð vissi nefnilega sem
var að þrátt fyrir alla þá persónu-
dýrkun sem hann hefur staðið fyrir
að hafin væri á Hannesi Hafstein, þá
er þjóðinni eiginlega alveg sama um
Hannes og hefði ekki kippt sér upp
við það þó Ólafur Ragnar væri hvergi
nærri. Fyrst honum var hvort sem er
ekki ætlað neitt hlutverk.
En með því að vekja rækilega at-
hygli á ljaiveru forsetans úr Þjóð-
menningarhúsinu, þá tókst Davíð
að koma því inn hjá þjóðinni að það
hefði verið höfuðglæpur að vera ekki
viðstaddur þessa litlu listahátíð
Sjálfstæðisflokksins, því forsætis-
ráðherra veðjaði á að þó þjóðinni
væri alveg sama þótt Ólafur Ragnar
nennti ekki að sitja undir einhverri
lofogprís-dagskrá um Hannes Haf-
stein, þá fer fólk líta á það sem höf-
uðglæp, næstum dauðasynd, að
vanvirða sjálfan Gísla Martein!
Því Gísli Marteinn var - ótrúlegt
nokk - kynnir í Þjóðmenningarhús-
inu.
Svarthöföi.