Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 Fréttir DV 15. júní 1999 FBA og Landsbanki skrifa bréfum milli- göngu bankanna í viðskiptum með bréf Decode. 16. júní1999 Skrifað undirsamn- inga í Listasafni ís- lands um kaup ís- lenskra fjárfesta á 17% hlut í Decode. 29. júní 1999 Biotek Invest SA stofnað í Lúxemborg. 30. júní 1999 Skrifað undirsamn- inga milli Decode og Biotek um sölu á 17% hlut í Decode. 8. ágúst 1999 Biotek nær markmið- um með sölu á bréf- unum. 24. feb. 2000 Viðaukasamningur milli Decode og Biot- ek þar sem 5,2 millj- ón dollara þóknun er staðfest. 12. des. 2000 Biotek Invest SA leyst upp í gegnum fyrir- tæki í Panama. Decode genetics greiddi óþekktu fyrirtæki í Lúxemborg 5,2 milljónir dollara í þókn- un fyrir sölu á hlutabréfum félagsins til íslenskra banka. í gögnum FBA og Lands- bankans segjast þeir hafa tekið að sér viðskiptin og heimildarmenn DV þekkja ekki annað en að viðskiptin hafi verið milli íslendinga. Lúxemborgska fyrirtækið var leyst upp einu og hálfu ári síðar í gegnum Panama. Decode genetics Inc. móðurfélag íslenskrar erfðagreiningar greiddi fyrirtæki í Lúxemborg 5,2 milljónir dollara eða rúmlega 400 milljónir króna fyrir að selja hlutabréf í Decode sumarið 1999. Þá keyptu ís- lenskir fjárfestar 17% hlut í Decode fyrir 6 milljarða króna sem var eina stóra hlutafjárútboð félagsins það ár. f bréfr FBA og Landsbanka ís- lands kemur fram að þessir bankar hafi tekið að sér milligöngu um við- skipti á bréfum Decode til ís- lenskra fjárfesta. -I skráningarlýsingu Decode á Nasdaq er birtur samningur Decode við Biotek Invest SA ásamt viðauka. Þar var samið um kaup og sölu á 17% hlut. Biotek var skráð í Lúxemborg þar til í desember 2000 þegar það var leyst upp. Fyrirtækið sem leysti það upp heitir Damato Enterprises Inc. og er skráð í Panama talsmaður þess fyrirtækis var hinn sami og samdi við Decode fyrir hönd Biotek. FBA og Landsbanki með miliigöngu í bréfí FBA og Landsbankans frá 15. júní 1999 segir að íslensk erfða- greining hafi lagt á það áherslu að auka hlut íslenskra íjárfesta í hópi hluthafa í móðurfélaginu Decode genetics Inc. „í því skyni hefur félag- ið nú beitt sér fyrir því að bandarískir áhættuijár- festar, sem þátt tóku í stofnun Decode selji hluta bréfa sinna til íslenskra fjárfesta. FBA og Landsbanki fs- iands hafa tekið að sér milligöngu um þessi viðskipti,“ seg- ir í bréfinu. í bréfinu kemur fram að fimm milljónir hluta í Decode verði seldir með þessum hætti. Daginn eftir að ^ bréfið er stílað, „íþví skyni hefur félagið nú beitt sér fyrir því að bandarískir áhættufjárfestar, sem þátt tóku i stofnun Decode selji hluta bréfa sinna til íslenskra fjárfesta. FBA og Landsbanki ís- lands hafa tekið að sér milligöngu um þessi viðskipti." kynntu forsvarsmenn íslenskrar erfðagreiningar samning um stærstu einstöku hlutafjárviðskipti sem fram höfðu farið hér á landi. FBA, Landsbankinn, Búnaðarbank- inn og Hof keyptu þar 17% hlut í Decode genetics fyrir 6 milljarða króna. Fundur var haldinn í Lista- safni íslands þar sem viðskiptin voru kynnt og skrifað undir samn- inga. Eftir viðskiptin voru 70% af hlutafé Decode í eigu íslendinga. Viðskipti milli íslendinga Heimildir DV herma að það hafi verið íslendingar sem sáu um þessi viðskipti þar sem Kári Stefánsson forstjóri Islenskrar erfðagreiningar og Hannes Smárason aðstoðarfor- stjóri hafi séð um samningana fyrir hönd Decode genetics. Fremstur í flokki bankamanna var Bjarni Ár- mannsson, þáverandi forstjóri FBA en undir samningana skrifuðu einnig Stefán Pálsson þáverandi bankastjóri Búnaðarbanka Islands, Halldór J. Krist- jánsson Landsbanka- stjóri og Sigurður Gísli Pálmason forstjóri Hofs. Gengið í við- r. skiptunum $ var a bil- > inu 13,95 dollarar á hlut til 15. Gengi bréfanna hækkaði mikið á næstu vikum og mánuðum og seldu íslensku bankarnir hluti sína með hagnaði. Á fundinum f Listasafninu kom fram að FBA, Landsbankinn, Búnað- arbankinn og Hof keyptu nærri helming af eign áhættufjárfestanna sjö sem hjálpuðu fyrirtækinu á legg. Bankarnir lýstu því yfir að þeir ráð- gerðu að selja hlutabréfin áfram f áföngum. Viku síðar höfðu þeir lok- ið við að selja 45% af sínum hlut til innlendra fagfjárfesta. Hver og einn gat keypt bréf fyrir að lágmarki 50 milljónir króna. Ekki erfitt að sannfæra fjár- festa í samtali við DV 17. júní 1999 sagði Kári Stefánsson að það hafi ekki verið erfitt að sannfæra erlendu stofnfjárfestana um að selja....ís- lensku fjárfestarnir komu hreinlega sjálfkrafa inn í þetta mál og þeim leist vel á þetta,“ sagði Kári. Svanbjörn Thoroddsen sem var framkvæmdastjóri markaðsviðskipta FBA sagði að fjárfestar hefðu fengið í hendur mjög ít- arlegar upplýsingar frá íslenskri erfðagreiningu Kári Stefánsson og Hannes Smárason Kári skrifaði undir samning við Biotek um sölu á hlutabréfum í Decode hálfum mán- uði eftir að hann skrifaði undir samning við isienska banka sem keyptu hlutinn.Að- stoðarforstjóri Islenskr- ar erfðagreiningar, Hannes Smárason, skrifaði undir við- auka við samn- ing við Biotek sem færði lúx- emborgska fé- laginu yfir 400 milljónir I þóknun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.