Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Qupperneq 15
YrtlVfl DV Fréttir M30S HAVJflæT .a flUÐ^QUTMMH M FIMMTUDAGUR 5. FEBRUAR 2004 75 Prinsessa ístraffi Yngri dóttir sænsku kon- ungshjónanna, Madeleine, er í straffi og verður næstu þrjátíu dagana. Madeleine mun hafa lent í stymping- um við fyrrum unnusta á skemmtistað í Stokkhólmi. Prinsessan var að skemmta sér ásamt núverandi kærasta, Jonasi Bergström, þegar sá gamli kom aðvífandi. Orðaskipti urðu milli fólksins og fór svo að ungu mennirnir döngl- uðu hvor í annan. Þetta þykir konungshjónunum langt í frá góð hegðun og því hefur prinsessan verið sett í útgöngubann. Gefa kjúklinginn Taflensk yflrvöld gefa nú þegnum sínum kjúklinga eins og hver getur í sig látið. Kjúklingadreifingin er liður í að draga úr hræðslu fólks við fuglaflensuna sem nú geisar í Asíu. Fimmtán manns hafa látist af völd- um flensunnar það sem af er, síðasta fórn- arlambið var sex ára dreng- ur í Taflandi. Hinir látnu eru allir taldir hafa smitast með því að snerta sýkta fugla. Japanirsafna skeggi Japanskir hermenn, sem dvelja í frak, láta sér nú vaxa yfirskegg í gríð og erg. Þetta gera þeir víst til að falla bet- ur inn í fjöldann í Irak en yf- irskegg eru algeng meðal þarlendra karl- manna. Yfirskegg japönsku her- mannanna er þegar farið að vekja athygli og lét íbúi í Samawa í írak þau orð falla að hann sjaidan sé feg- urra yfirskegg þegar hann heilsaði japönskum her- manni. „Harm h'tur bara út eins og fraki," sagði íbúinn. flestir - neistandi heili, hlýtt hjarta og svo glæsilegur ásýndar að fleiri en konur tóku eftir. Fyrir nokkrum árum kastaði Matthías myrka hjúpnum og varð glæsilegri en fyrr; bjartari og öflugri - og uppskar fal- legt vor. Þessi breyting bar með sér að Matthías myndi rjúfa fleiri múra og finna fyrir okkur nýja hugsun. Á þessum degi getum við bæði sakn- að þess sem Matthías var og þess sem hann vildi skapa úr sér.“ Annar vinur Matthíasar Viðars var Elísabet Jökulsdóttir skáld. Hún segir um vin sinn: „Einu sinni fór- um við Matthías Viðar í bfltúr til Krýsuvíkur og útí hraun. Við klifruðum ofaní eldgíg, hann var einsog lítill strákur. Hann sagði mér frá Krýsunum sem upphaflega hefðu numið hér land og þaðan kæmi nafnið Krýsuvík. Hann var alltaf að reyna finna réttu nöfnin yfir hlutina því hann vissi að þannig öðluðust þeir mátt sinn. Ég trúði sögunni um Krýsana og spurði: Er þetta satt? - Matthías Viðar var þannig að hann lét allt hljóðna í kringum sig. Ef hann er hljóðnaður er ekkert hægt að segja, bara hlusta. En hann getur ekki verið hljóðnað- ur, ef hlustað er heyrist rödd hans.“ Kona Matthíasar Viðars var Steinunn Ólafsdóttir leikkona. Saman áttu þau dótturina Jóhönnu Steinu. Dóttir Steinunnar og stjúp- dóttir Matthíasar er Nanna Elísa Jakobsdóttir. Viðskiptaráðherra efast um skynsemi tilrauna til að flytja út lambakjöt. Þorrablót í stað kjötútflutnings Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra varpar þeirri hugmynd fram í pistli sínum að ef til vill sé affarasælla og lfldegra til ár- angurs að markaðssetja íslensk þorrablót en að eyða milljónatugum í að reyna fyrir sér á erlendum mörk- uðum með sölu á lambakjöti. „Það er ekki bara að njóta þess að borða þennan gamaldags mat, sem mér finnst í öllum aðalatriðum góður. Það er lfka svo frábært að sjá allar þessar afurðir af sauðkindinni renna ljúflega ofan í landann. í því felst sú pólitík að vilja byggð í landinu upp til dala og inn til sveita,“ segir Val- gerður í pistli sínum. Valgerður segir að fáir háldi því fram að íslenskt lambakjöt sé ekki gott. Hinsvegar hafi skyndibitagerð úr lambakjöti hefur ekki náð að þró- ast nægilega vel og sala á lambakjöti á erlenda markaði hefur ekki náð ár- angri og muni ekki ná árangri sem nokkru nemur. Enda hefðu íslend- ingar ekkert kjöt til þess að mæta slflcum mörkuðum ef að það mundi allt í einu verða að lambakjötið mýndi slá í gegn. sigbogi@dv.is Valgerður Sverrisdóttir Eftilviller affarasælla að markaðsetja islensk þorrablót en islenskt lambakjöt. Furðufu$lar og fylgifiskar | Bteikargróf 15 og Flafnarstrœti 17 | Símar : Bleik.gr. - 581-1191 Hafn.str. - 552-9191 ink hönnunarhús

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.