Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 Fréttir OV DV Fréttir FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 17 „Lifi forseti vor og fósturjörð. ísland lifi, húrra, húrra, húrra, húrra!" sterkara orð um þetta en móðgun við forsetaembættið. Davíð sagði hins vegar enga persónulega óvild af sinni hálfu í garð Ólafs. Þetta væri upphlaup út í himinnblámann; for- setinn hefði sjálfur ákveðið að vera í skíðafríi á þessum tíma. Flokksbræður Davíðs segja nær að forsetinn hefði verið heima yfir afmælið, enda hefðu hátíðahöldin verið fyrirséð í hundrað ár. Og mál- inu er ekki lokið, enda segist Ólafur ætla að ræða það við Davíð þegar hann kemur heim. Aðrir stjórnmála- menn hafa hins vegar beðið þá sem hlut eiga að málinu að hlífa þjóðinni við því að verða vitni að uppákom- um sem þessum. brynja@dv.is Það olli nokkrum úlfaþyt þegar Ólafur Ragnar lýsti efa- semdumí ræðu á Hólahátíð um áform íslenskrar erfðagreiningar og stjórnvalda undir forsæti Davíðs Oddsson- ar um miðlægan gagnagrunn á heilbrigð- issviði. Stirðleiki milli Ólafs Ragnars Grimsson- ar og Davíðs Oddssonar hefur skotið upp kollinum nokkuð oft á undanförn- um árum. DV rekur hér ýmsar uppá- komur í samskiptum þeirra og segir frá erfiðum húrrahrópum, flutningi skrif- stofu forsetans úr Stjórnarráðinu og þeg- ar Ólafur og Davíð lokuðust saman inni í lyftu. Þeir eru á gjörsamlega önd- verðum meiði í stjórnmálum, en báðir lifandi og fasmiklir menn með skap. Saga samskipta þeirra Ólafs Ragnars Grímssonar og Davíðs Oddssonar nær langt aftur. Þeir voru samtíða á þingi í nokkur ár, eftir að Davíð var kjörinn formað- ur Sjálfstæðisflokksins 1991 og varð forsætisráðherra. Þá þegar hafði Ólafur Ragnar staðið í eld- línu stjómmálanna í hátt í aldar- fjórðung, var formaður Alþýðu- bandalagsins og hafði jafnan verið umdeildur og litrfkur stjórnmála- maður. Allt frá því að Ólafur sakaði Davíð um að hafa skítlegt eðli, fyrir tólf ámm, og fram til dagsins í dag, hafa þeir sent hvor öðmm skeytin við og við. Hefur almenningur oft- ast getað skemmt sér við að fylgjast með samskiptum þeirra og grín- leikarar þjóðarinnar gert sér úr þeim endalausan mat. Þótt sumum hafi blöskrað nýjasta uppákoman varðandi ríkisráðsfundinn virðist sem óvildin á milli þeirra, ef óvild skyldi kalla, risti ekki mjög djúpt. Það hefur vissulega líka komið fyrir að þeir tali fallega hvor til annars og jafnvel hrósi. Þá er enn í minnum höfð nærgætnisleg og falleg ræða sem Davíð flutti þegar hann til- kynnti þjóðinni andlát Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur forseta- frúar, haustið 1998. Skítlegt eðli Upp úr sauð fyrst í sam- skiptum þeirra Davíðs og Ólafs með eftirminnilegum hætti þegar verið var að ræða auglýsingakostnað fjármálaráðuneytisins, í tíð ríkisstjórnar þegar lafur Ragnar var fjármála- ráðherra. Ólafur var sakaður 1992 segja eKKi - og vona að mér fyrirgefist að ég segiþað - að svona skítlegt eðli væri inni í hæstvirt- um forsætisrað- herra." um að hafa hyglað póli- tískum sam- herjum sínum á auglýsinga- stofunni Hvíta húsinu með samn- ingum við ráðuneytið og var Davíð meðal þeirra sem héldu því fram. Ólafur Ragnar brást hart við og sagði orðrétt: „Þetta leikrit Sjálfstæðisflokksins hér í þingsalnum er satt að segja orðið mjög ómerki- legt. Og lengi skal mann- inn reyna ... Að hæstvirtur forsætisráðherra skuli taka þátt í þessu leikriti með svo ómerkilegum hætti sem hann gerði hér. Ég hélt satt að segja ekki - og vona að mér fyrirgeflst að ég segi það - að svona skítlegt eðli væri inni í hæstvirtum forsætisráð- herra, en það kom greinilega fram hér." Þingmaður greip fram í og spurði: „Hvað sagði ræðumaður?" „Ég sagði: Svona skítlegt eðli," ít- rekaði Ólafur Ragnar. Forseti bað hann að gæta orða sinna. Davíð brást að vonum illa við orðum Ólafs Ragnars, gekk í ræðustól og sagði þungur á brún að hann myndi aldrei sitja sem forsætisráðherra í skjóli háttvirts þingmanns. Aldrei! Þá voru orð hans túlkuð þannig að Davíð hefði í gremju sinni úti- lokað í framtíðinni stjórnarsamstarf við Ai- þýðubandalagið meðan Ólafur Ragnar væri þar forystumaður. (ísland í aldanna rás 1900-2000, bls. 1129) 1996 irnir gátu stigið út og andað léttar. Erfið húrrahróp Það þótti ljóst að það var Davíð Oddssyni lítið gleðiefni að Ólafur Ragnar skyldi vera kosinn forseti ís- lands. Þegar leið að því að Ólafúr ávarpaði Alþingi í fyrsta sinn veltu menn nokkuð vöngum yflr því í blöðum hvemig Davíð myndi leysa það verkefni sem forsætisráðherra að stýra ferföldu húrrahrópi fyrir hinum nýja forseta. Davíð reyndi raunar að létta sér tilhugsunina með því að benda á að húrrahrópin gætu mögulega átt við um ís- land eitt en ekki forsetann. Það væri tómur mis- skilningur að forsætisráðherra þyrfti endilega að hrópa: „Lifi forseti vor og fósturjörð, ísland lifi, húrra, húrra, húrra, húrra!" í staðinn mætti allt eins setja punkt fyrir aftan fóst- urjörðina og hrópa svo húrra fyrir ís- landi einu: „Lifl forseti vor og fósturjörð. ís- land lifi, húrra, húrra, húrra, húrra!" Allt þetta þótti þjóðinni töluvert fyndið. (ísland í aldanna rás 1900-2000, bls. 1129) 1996 Skrifstofa forsetans flutt úr Stjórnarráðinu Skömmu eftir að Ólafur tók við embætti vom forsetaskrifstofurnar fluttar úr Stjórnarráðinu, en þar höfðu forseti og forsætisráðherra skipt með sér neðri hæðinni. Ákvörðunin um flutninginn var tek- in í forsetatíð Vigdísar Finnboga- 1998 dóttur, en eigi að síður þótti aðskiln- aðurinn táknrænn fyrir lida kærleika milli þeirra Ólafs og Davíðs. 1997 Davíð og Ólafur lokast saman inni í lyftu Davíð og Ólafur Ragnar, ásamt fleiri æðstu mönnum íslenska lýð- veldisins, lokuðust saman inni í lyftu og sátu þar fastir nokkra stund sumarið 1997. Þetta gerðist í hús- næði biskupsembættisins þegar þeir voru að koma af fundi biskupsins. Festist lyftan og varð fljótlega loft- laust þegar svo margir önduðu þar í einu. Ekki er vitað hvað þeim fór á milli þennan tíma sem lyftan var lokuð eða hvernig návígið fór í þá Ólaf og Davíð, en slökkviliðinu var fljóilega gert viövart og Gagnrýndi gagna- grunnínn Það olli nokkmm úlfaþyt þegar Ólafur Ragnar lýsti efasemdum í ræðu á Hólahátíð um áform íslenskrar erfða- greiningar og stjórnvalda undir forsæti Davíðs Odd- ssonar um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðis- sviði. Sagði hann þar að íslendingar mættu ekki láta þröngsýni eða hagnaðarvon fjárfesta blinda sig svo teknar væru ákvarðanir í skyndi. Davíð var hins vegar viss í sinni sök, þótt ekkert bóli á gagna- grunninum enn þann dag í dag. 2000 Þótti gera lítið úr al- þingis- mönnum Þegar Ólafur var settur inn í emb- ætti öðru sinni haustið 2000 flutti hann verulega umdeilda ræðu, þar sem hann þótti lýsa vantrú á gildi Al- þingis. Sagði hann meðal annars að tæknin væri að breyta eðli lýðræðis- ríkisins, og nú gæti hver einstakling- ur látið í ljós álit sitt hvar sem væri og hvenær sem væri. Nú væri mögu- leiki á endurreisn hins raunvirka lýðræðis þar sem fólkið sjálft færi með valdið. Það væri nú aðeins rammi frá liðinni tíð að veita al- menningi aðgang að ákvörðunum með kosningum á nokkurra ára fresti. Þetta vakti nokkra gremju alþing- ismanna sem þótti forsetinn gera lítið úr hlutverki þeirra. 2003 Davíð og Ólafur kallast á í áramótaræðum Ekki voru forsetinn og forsætis- ráðherrann sammála um viðskipta- frelsi í síðustu áramótaræðum sín- um. Davíð vék að viðskiptafrelsi bæði í áramótaávarpi sínu og í grein í Morgunblaðinu, þar sem hann sagði að nauðsynlegt virtist að setja lög gegn vaxandi hringamyndun, því ef frelsinu væri misbeitt þrengdi að því. A nýárs- dag varaði Ólafur Ragnar hins veg- ar við að ef tökin yrðu hert um of gagnvart at- hafnamönnum kynnu þeir að flytja starfsemi sína úr landi. 2004 Á skíðum meðan hinir fund- uðu Ræðurnar á undanförnum árum eru þó ekkert miðað við nýjasta kafl- ann í samskiptasögu forsetans og forsætisráðherrans. Ólafur varð íjúkandi reiður yfir því að hafa ekki verið boðaður á hátíðafund í ríkis- ráði um síðustu helgi, og sagði að nota mætti Forseti segir að forsætisráðuneytið hafi ekki óskað eftir sér í heimastjórnarafmælið, og ekki gert ráð fyrir sér sérstaklega í neinum atburði í dagskránni. Þess vegna hafi hann gert aðrar áætlanir og verið í útlöndum á afmælinu. Atburðir síðustu daga eru ekki taldar hafa áhrif á komandi forsetakosningar. Ekki óskað eftir forsetanum „Forsætisráðuneytið ákvað að undir- búa dagskrána án nokkurs samráðs við forsetaembættið. Ég áiyktaði þá að forsæt- isráðuneytið óskaði hvorki eftir beinni framgöngu né sérstakri þátttöku forseta íslands í atburðum sem tengdust þessum tímamótum," segir Ólafur Ragnar Gríms- son í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær. Þess vegna hafl hann ákveðið að skipuleggja tímaáætlun sfna í sam- ræmi við það og ekki verið á land- inu þegar afmælishátíð vegna hundrað ára afmæli heimastjórn- ar var haldinn í Þjóðmenningar- húsinu. „Það var greinilega afstaða forsætisráðuneytisins að ekki væri ástæða til að forseti ís- lands kæmi sérstaklega að neinum þeirra 20-30 at- burða sem á dag- skránni væru.“ Hann segir að samráðsleysið um dagskrána séu önnur vinnu- brögð en áður hafl verið viðhöfð varðandi merk- isafmæli í sögu þjóðarinnar. „Að halda ríkisráðsfund fól hins vegar í sér beina þátttöku forsetans en áformum um fyrirhugaðan fund í ríkisráði var hald- ið leyndum fyrir forsetanum." Ólafur segir að það hafi ekki verið ætl- un sfn að tjá sig frekar opinberlega um þessa atburði en hann telji óhjákvæmilegt að þetta komi fram vegnaýmissa ummæla undanfarna daga. Ekki talið hafa áhrif á forsetakosn- ingar Menn velta því nú fyrir sér hvort þessir atburðir muni hafa áhrif á komandi for- setakosningar, og jafnvel leiða til þess að sterkt mótframboð komi fram. Fæstir virð- ast telja að svo fari. „Það er erfitt að leggja mat á það hvort þessi framkoma forsetans hafi áhrif á forsetakosningarnar, en ég efast um að þetta ráði úrslitum," segir Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins. „Ég myndi ekki tala fyrir mótframboði gegn Ólafi Ragnari," segir Drífa Hjartar- dóttir, og telur að þetta atvik muni ekki hafa áhrif þar á. „Ég vil ekki dæma embættið í heild sinni vegna þessa atviks," segir Einar K. Guðflnnsson, þingflokksformaður Sjálf- stæðisflokksins. Hann segist ekki hafa velt því fyrir sér hvort skipta þurfl um forseta. „Hefðin hefur verið sú að sitj- andi forseti hefur ekki fengið mótfram- boð.“ „Mér finnst ekkert í þessu máii vera af þeirri stærðargráðu að það kalli á ýkt við- brögð," segir Guðlaugur Þór Þórðarson. Leggja ber niður forsetaembættið Atburðirnir undanfarna daga hafa hins vegar orðið til þess að á ný heyrast raddir um að leggja beri forsetaembættið niður. „Það kom mér mjög á óvart hversu æst- ur Ólafur Ragnar Grímsson var og orð- hvatur. Hann talaði ekki eins og forseti ís- lands, heldur eins og formaður Alþýðu- bandalagsins," segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði. „Ég setti fram þá skoðun árið 1987, löngu áður en Ólafur Ragnar Grímsson varð forseti, að leggja ætti niður forseta- embættið. Forseti Alþingis gæti sinnt þeim „Það var greinilega afstaða forsætisráðuneytisins að ekki væri ástæða til að for- seti íslands kæmi sérstak- lega að neinum þeirra 20-30 atburða sem á dag- skránni væru." skyldum sem forseti hefur, en þær eru að- allega að taka á móti tveimur eða þremur þjóðhöfðingjum á sumrin og hengja fálka- orðuna tvisvar á ári á fólk. Núverandi for- seti er að vísu ekki oft á Bessastöðum, því að fram hefur komið að hann var 101 dag erlendis á síðasta ári." „Ég er persónulega mjög tilbúinn að sjá mannabreytingar á Bessastöðum, en þetta upphlaup sem slíkt er ekki sjálfstæð ástæða til að skipta um forseta. Ég hef reyndar talað fyrir því lengi að embættið verði lagt niður. Þessir atburðir síðustu daga ýta vonandi undir umræðuna um það hvort víð þurfum yfirleitt á þessu embætti að halda," segir Sigurður Kári Kristjánsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.