Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Page 23
DV Fókus
FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 23
>
Borð og stólar úr ull eru nokkuð sem ekki hefur sést hér á landi áður. Ingólfur
Guðmundsson og Anna Gunnarsdóttir eru á fullu í að hanna nýja línu húsgagna
undir vörumerkinu Kind design.
Ingólfur Guðmundsson er einn fremsti iðnhönnuður okkar fslendinga og er
að gera mjög sniðuga hluti. Hann hannar stóla, borð, ljós og vínrekka, svo fátt
eitt sé nefnt. Sérstaða þessara hluta er sú að þeir eru allir úr ull. Hann vinnur
þessa hluti í samvinnu við Önnu
Gunnarsdóttur, sem sér alfarið
um að vinna ullina.
Það hefur hvergi sést áður að húsgögn séu gerð úr íslenskri ull, enda ekki all-
ir sem kunna að vinna ull þannig að hún verði glerhörð og geti haldið einhverj-
um þunga. Ingólfur segist í raun óvart hafa farið að vihna með ullina. „Ég var
Tískan kl. 12 á hádegi
búinn að vera fimm ár í Bandaríkjunum. Kom heim í júní í fyrra og var búinn
að ganga með hugmynd að stól í maganum og mig langaði að nota íslenskt hrá-
efni í hann. Seinnipart sumars var ég á gangi í Listagilinu á Akureyri og sá þar
skúlptúr úr ull eftir Önnu Gunnarsdóttur. Ég varð svo heillaður af þessu að ég
ákvað að kíkja inn og fá að handfjatla þennan skúlptúr sem var eins og kuðung-
ur. Upp frá því hófst þessi samvinna okkar Önnu," segir hann.
„Eg teikna og hanna og Anna vinnur ullina. Hlutirnir eru allir úr ull að ein-
hverju eða öllu leyti. Hún tengir hlutina og gerir þá að heilsteyptri línu. Allt sem
við vinnum saman vinnum við undir vörumerkinu Kind design," segir Ingólfur.
Húðflúrið ekki á niðurleið Fjölnir
segir tattúin vera i stööugri sókn á ís-
landl.
Þrír
þingmenn
með tattú
Draugaleg ull Borðlampinn ermjög skemmtileg nýjung og gefur
óneitaniega skemmtiiega birtu.
Kind design Ingólfur Guðmundsson ogAnna Gunnarsdóttir á vinnustofu sinni. Allt sem þau
gera er undir nafninu Kind design.
Geymsluhólf Lítil hilla sem er tilvalin fyrir lykla, sima og fleiri nauðsynjahluti.
Stofuborð með ullarvasa Borðið, sem Ingólfur hefur hannað, er með ullarvasa fyrir smádót.
L
Púpa í lofti Loftljósið er eins og púpa i lag-
inu og er í stil við græna geymsluhólfið.
Tyllir Skemmtilega hannaður stóll sem
hefur fengið nafnið tyllir.
Matarmusteri á kvöldin
Maturinn er frábær í fásinninu á
kvöldin á Vox, nýjum matsal Nordica
hótels. Verðlaunakokkar hafa skipað
staðnum í eitt af allra efstu sætum
matargerðarmustera landsins, studd-
ir látlausri þjónustu úrvals fagmanna,
sem vita allt um mat og vín staðarins.
Minna er varið í ofurvinsælt 2100
Veitingarýni
króna hlaðborð í hádeginu, þar sem
bragðgæði víkja fyrir skreytilist. I bið-
röðum hanga þar unglingar úr við-
skiptalífinu og ráfa um með diska
sína. Hrár fiskur með hrísgrjónum á
japanska vísu er þar skástur og sætir
eftirréttir fegurstir.
Matreiðslan á kvöldin er há-
timbruð og nýklassísk. Nákvæm
kryddnotkun gleður bragðlauka og
ílókin uppsetning gleður augu, án
r
þess að fórnað'sé eðlisbragði hráefna.
Steiktur kálfavöðvi í salvíu og spínati
komst í upphæðir listar og lystar.
Ofnbakaður þorskur í parmasldnku
var toppur tilverunnar.
Langskóluð kunnátta var að baki
hægeldaðs kjúklingalæris í krydd-
mauki með kolsýrðri og vel rjómaðri
kartöflustöppu, svo og þéttum rjóma-
ostabúðingi með rabarbarabitum,
rabarbara-ísfrauði og þunnri rabar-
barasósu. Geitaostur og gorgonzola
gráðostur voru nákvæmlega hæfilega
gamlir. Bragðsterk blómkálsfroða var
einfaldur og skemmtilegur forréttur.
Flóknari og fallegri voru hreindýra-
þynnur með andalifrarþynnum,
rauðrófum, heslihnetum og lerki-
sveppum. Útreiknanlegri en engu
lakari voru villigæsabringur með
blóðbergskrydduðum rjóma og blá-
berjasósu.
Vínlistinn á Vox er ákaflega vel
valinn og virðulegur. Hann telur yfir
500 frægar tegundir, ótrúlega hóflega
verðlagðar með tilliti til gæða. í miðj-
um matsal er voldugt glerbúr, þar
sem flöskurnar eru geymdar
við jafnt hitastig.
íshúsið hæfir ekki lista-
verkum eldhússins. Norræn
naumhyggja hefur leikið
lausum hala í innréttingum.
Gengið er til hægri úr víðri
og nakinni hótelmóttöku
inn langan gang, þar sem nokkrir
veitingakrókar og háir gluggar eru til
hægri, en burðarsúlur, fatahengi og
eldhússkenkur til vinstri.
Ég skildi ekki, hvers vegna veit-
ingahús voru kölluð Rex og Metz og
enn síður skil ég, hvers vegna matar-
gerðarmusteri fær hallærislegt Vox í
skírnargjöf. Það hlýtur að vera upp-
■■ 1 1 3e A
Vox ★ ★★' k
finning ímyndar-
stofu, sem er úti að
aka í þessurn
bransa og ætti frek-
ar að finna nöfn á blandaða kóra.
Hér kostar þrfréttað með kaffi án
víns um 7000 krónur á kvöldin.
Fimm rétta matseðill árstíðarinnar
kostar7500 krónur ánvíns og 11.500
krónur með sérvöldu vínglasi með
hverjum rétti. Allt er þetta verð við
hæfi matargerðarmusteris.
Jónas Kristjánsson
„Táknin eru mjög vinsæl
núna og rúnir eru að koma
sterkar inn, sem og íslenskir
galdrastafir," segir Fjölnir
Bragason, betur þekktur sem
Fjölnir tattú, sem hefur verið
helsti boðberi húðflúrmenn-
ingarinnar hér á landi síðustu
árin. Hann hefur nú nýverið
opnað nýja og glæsilega stofu á
Laugavegi 54, við hliðina á
Svarta kaffi. Á nýju stofunni
ræður hönnun Fjölnis ríkjum.
Fjölnir segir fólk óhrætt við
að prófa nýja hluti. „ökklinn og
mjóbakið eru vinsæiust hjá
stelpunum en handleggir,
herðar og kálfar eru að ryðja
sér til rúms hjá strákunum,"
segir Fjölnir þegar hann er
spurður hvað sé heitast í dag.
Er þessi tíska ekkert á niöur-
leið?
„Nei, þessi tíska er í mikilli
sókn núna, þótt klisjurnar séu á
hægu undanhaldi, og fólk kem-
ur mikið með sínar pælingar og
ég teikna sérstaklega fyrir það,"
segir hann.
Svo virðist
sem allar týpur
fólks í þjóðfé-
laginu fái sér
húðflúr."
Nú, ertu að
scgja að meira
að segja al-
þingismcnn séu Trú, von og
kærleikur Grét-
arMarJónsson er
með tattú d hand-
leggnum sem
stendur fyrir trú,
von og kærleik.
með tattú?
„Já, ég veit
alla vega um
þrjá þingmenn
með tattú. Svo
eru auðvitað
bæjarfulltrúar og aðrir rnerkis-
menn víða um landið með
myndir eða tákn á líkaman-
um,“ segir Fjölnir tattú. Einn
þeirra þingmanna sem skarta
húðflúri er Grétar Mar Jónsson,
skipstjóri úr Sandgerði. Grétar
sagðist í samtali við DV vera
með húðflúr á handleggnum
og merkti það trú, von og kær-
leik. Hverjir hinir flúruðu þing-
mennirnir eru er ekki vitað, né
hvort þeir eru jafnvel enn fleiri.
Uppstoppaður hrafn Nýjatattú-
stofan á Laugavegi er mjög óhefð-
bundin, að sögn Fjölnis.