Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Síða 27
r
FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 27
DV Fókus
.-svtNTtRi i:iní STÓRT
oc LITIÐsiAift
REGfWOGinn
SÍMI 553 2075
SÝND kl. 5.20, 8 og 10.40
□□ Dolby /DD/ .'SS' Iihx'
SÝND kl. 5.40, 8 Og 10.20
SÝNDkl. 5.30, 8og10.30 B i 16 ára
[MONA LISA SMILE S.30, 8 oglO.30
|master & co.
kl. 5.20 ogTo.40 B i 14 ára[
SÝND kl. 5.40, 8 og 10.20
B i 14 ára SÝNDkl. 5og9
Kvikmyndin Lost in Translation er frumsýnd í Smárabíó, Regnboganum og Borgar-
bíó á morgun. Með aðalhlutverkið fer Bill Murray og var hann tilnefndur til ósk-
arsverðlauna fyrir leik sinn á dögunum. Ferill Murray hefur verið í öldudal sið-
ustu ár en nú virðist framtíðin björt hjá honum.
| Ferillinn á uppleið
I 6/7/ Murray i óskars-
1 hlutverkirru í Lostin
Draugabanarnir
Murray fór með aðal-
hlutverkið í einni vin-
sælustu mynd 9. ára-
tugarins.
Translation
Rushmore Myndin
sem hóf endurreisn
Murray.
Það þótti til tíðinda þegar Bill Murray var til-
nefndur til óskarsverðlauna fyrir aðalhíutverk fyr-
ir leik sinn í myndinni Lost in Translation, þar
sem ekki er algengt að gamanleikarar hljóti til-
nefningar. Murray er þó vel að tilnefningunni
kominn, og mætti mögulega halda því fram að
hann sé einn besti gamanleikarinn £ Hollywood í
dag. Meðan félagar hans úr Saturday Night Live
og National Lampoons hópunum eru annaðhvort
látnir (John Candy, lohn Belushi), hættir að vera
fyndnir (Steve Martin), voru aldrei fyndnir til að
byrja með (Dan Ackroyd), eða farnir að tala fyrir
hunda í myndum sem bera nöfn eins og „Karate
Dog," (Chevy Chase), þá tekst Bill Murray bæði að
vera enn fyndinn og að vaxa sem leikari. Hann
hefur ekki alltaf leikið í góðum myndum svo sem,
en honum hefur yfirleitt tekist að vera góður í
þeim myndum sem hann hefur leikið í.
Draugabaninn
Ferill hans hófst með Saturday Night Live þátt-
unum um miðjan 8. áratuginn, þar sem hann þó
féll að einhverju leyti í skuggann á lohn Belushi
sem þá var á miklu flugi. Jafnframt því fékk hann
að spreyta sig í unglingamyndum eins og Meat-
balls, Caddyshack og Stripes. Stóra breikið kom
loksins árið 1984, þegar hann fór með aðalhlut-
verkið í Ghostbusters, sem varð með vinsælli
myndum áratugarins. Ári síðar reyndi hann að
sýna á sér alvarlegri hlið í The Razors Edge, en
myndin kolféU, og hann hélt sig á kunnulegri
slóðum næstu ár í gamanmyndunum Little Shop
of Horrors, Scrooged og svo Ghostbusters II, sem
náði ekki hæðum fyrri myndarinnar. Næst leik-
stýrði hann hinni ágætu gamanmynd Quick
Change, sem þó telst líklega ekki til meistaraverka
kvikmyndasögunnar, og reyndi ekki mikið á sig
við að fara í taugarnar á Richard Dreyfuss £ What
About Bob. Hann virtist nú lfklegur til að verða
annarrar deildar grfnleikari, sem hefði aðaUega
það hlutverk að vera fyndinn við hlið aðalleikar-
ans, einmitt á þeim tima sem mesta púðrið virþsi
úr Saturday Night Live genginu.
Jarðrottur og fílar
Næsta mynd, Groundhog Day frá árinu 1993,
áttEþó eftir að gefa öllum slíkum spádómum langt
nef. Hann sýndi þar að hann var einn besti gam-
anleikari heims, og hélt uppi mynd sem mörgum
þykir enn með betri myndum áratugarins. Erfitt
reyþdist þó f fyrstu að fylgja velgengninni eftir. I
næ#tu mynd, Mad Dog and Glory, á hann að leika
harðskeyttan glæpamann, en erfitt er að taka
hann alvarlega sem slíkan, sérstaklega þar sem
mjúki maðurinn sem stendur andspænis honum
er Robert De Niro. Þær myndir sem hann lék að-
alhlutverk í voru misheppnaðar, svo sem fíla-
myndin Larger than Life. Það er gömul speki og
ný að maður eigi aldrei að leika gegn dýrum, og
þetta hlýtur að eiga enn betur við þegar um er að
ræða fíla. Hann átti þó betri stundir sem aukaleik-
ari í hinum stórgóðu Ed Wood og Kingpin.
Hápunkturinn
Annað endurreisnartfmabil Murray hófst svo
með mynd Wes Anderson og Owen Wilson,
Rushmore, þar sem hann fer á kostum sem mað-
ur sem keppir um ástir kennslukonu við unglings-
strák. Murray er alltaf bestur þegar gamanleikur
hans er á hófsamari nótunum og kaldhæðni hans
fær að njóta sfn, og gamanhlutverk hans hér var á
margan hátt alvarlegra en áður. Gæfusamlegt
samstarf hans við Wilson og Anderson hélt áfram
með The Royal Tenenbaums, og, þrátt fyrir ein-
staka vafasamari ákvarðanir inni á milli, er ekki
ólíklegt að hann sé á hátindi ferils síns með Lost
in Translation.
valur@dv.is
• Veguriim brennur eftir Bjarna
Jónsson er sýnt á Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins klukkan 20.
• Einleikurinn Sellófon eftir Björk
Jakobsdóttur er sýndur í Iðnó
klukkan 21. A
Opnanir • Sýning á ljóðum
Unnar Sólrúnar Bragadóttur verður
opnuð á CEifé Borg í Kópavogi
klukkan 20.
Sveitin • Dj Andri verður í
búrinu á Dátanum á Akureyri.
Fundir og fyrirlestrar •
Guðrún Helgadóttir rithöfundur
stjórnar umræðum um íslenskrar
bamabækur á Bókakaffi á Súfist-
anum klukkan 20. Við pallborðið
verða barnabókaverðirnir Sigríður
Gunnarsdóttir, bókasafninu á Sel-
tjarnarnesi, Sigríður Matthíasdótt-
ir, bókasafninu á Selfossi, og Þor-
björg Karlsdóttir, Borgarbókasafn-
inu, og Einar Falur Ingólfsson,
ljósmyndari. Áhugafólk um ís-
lenskar barnabækur er hvatt til að
fjölmenna.
• Tourette-SEuntökin verða með
opið hús kl. 20.30 að Hátúni lOb, í
Þjónustusetri líknarfélaga á 9. hæð.
Þessi opnu hús eru mánaðarlega að
vetrinum, yfirleitt fyrsta fimmtudag
hvers mánaðar, og gefst fólki þá
tækifæri til að hlusta á fyrirlestra
eða kynningar, horfa saman á
myndband, fjalla um bækur varð-
andi TS heilkennið, og spjalla sam-
an yfir kaffibolla um Tourette mál-
efni.
• ÆskulýðsstarfsÁmaSigui]'óns-
sonar (1916-1999), sem var til fjölda
ára einn aðalburðarásinn í starfi
KFUM í Reykjavík, verður minnst á
fundi í aðaldeild KFUM að Holta-
vegi 28 klukkan 20.
• Ný dögun, samtök um sorg og
sorgarviðbrögð er með opið hús í
safnaðarheimili Háteigskirlgu f um-
sjá sr. Halldórs Reynissonar klukk-
an 20. Allir velkomnir.
Spilar af
ástríðu
„Þú hefur ekkert til að fela þig á
bakvið nema einn kassagítar," segir
Ingólfur Þór Árnason úr hljómsveit-
inni Indigo, en þau eru að spila
ásamt Tenderfoot á Jóni forseta,
sem hét áður Vídalfn, á Austustræti
12 í kvöld. Báðar hljómsveitirnar til-
heyra hópi kassagítartónlistar-
manna, sem hafa verið að spila víðs-
vegar um borgina undanfarið og
spila frumsamda tónlist.
Hverjir aðrir eru íhópnum?
„Krummi úr Mínus og Franz úr
Ensími eru saman f hljómsveitinni
Moody Company, Rúnar úr Náttfara
spilar einn, og svo eru fleiri eins og
Aggi úr Klink, og Kristófer, sem hef-
ur einfaldlega fallegustu rödd á ís-
landi."
Hvernig byrjaði þetta?
„Þetta byrjaði bara á stofugólfinu
í partýum og þróaðist út frá því."
Flestir sem koma nálægt þessu
eru einnigí öðrum hljómsveitum. Er
þetta fyrst ogfremst afslöppun?
„Nei, allir sem koma nálægt
þessu gera þetta fyrst og fremst af
ástríðu."
Tilefni tónleikanna er að Tender-
foot fékk styrk frá Loftbrú með far-
gjöldum til Bandaríkjanna, og eru
þeir að fara að spila þar.
„Fyrir hljómsveitina er þetta fyrst
og fremst pílagrímaferð. Þeir eru
bókaðir á tónleika á Sin’é, sem er
nokkurskonar Graceland áhuga-
manna um kassagítartónlist. Jeff
Buckley tók þar upp live plötu einn
með gítarinn rétt áður en hann dó
sem er ein besta plata allra tíma að
mínu mati. En þeir eiga einnig eftir
að spila annars staðar, svo sem í
einkapartý útgefanda Noru Jones.
Allur aðgangseyrir fer í að sjá til þess
að þeir geti haft í sig í New York, og
ég hvet alla til að mæta og styrkja
góðan málsstað. Tíminn á svo eftir
að leiða í ljós hvort þetta fer allt í
bjór eða hvað." Tónleikarnir heijast
klukkan 22, og kostar 500 krónur
inn.
%
Ingólfur úr Indigo
Spilar á Jóni forseta i
kvöld ogerá leið i píla-
grimsför út ilönd.