Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Page 30
r
V ? >DOr, 0/' ' W' , tKC: -.Tv.f
30 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004
•»? n\,Ar ‘ 2 >
Síðast en ekki síst DV
Eiður og frumbygginn
Ha?
Eiður Guðnason afhenti trúnað-
arbréf sitt sem sendiherra Islands á
Nýja Sjálandi fyrir skömmu. Við þá
athöfn horfðist hann í augu
við Maori-frumbyggja en
fyrir slíku er hefði í Nýja
Sjálandi og til marks um að menn
komi með friði og séu velkomnir
standist þeir þá þraut að taka upp
laufblað með frumbyggjann yfir sér
með tunguna úti og stríðstól í hendi.
Samkvæmt fréttaskeytum stóð Eið-
ur sig vel í þessari þraut og leit aldrei
undan íbyggnu augnaráði Maori-
mannsins. Urðu aðrir sendiherrar,
sem afhentu trúnaðarbréf sitt við
sama tækifæri, að gera slfkt hið
sama en tókst ekki jafnvel upp og
Eiði. Voru það sendiherrar
Indónesíu og Grikklands.
Auk þess að vera sendiherra ís-
lands á Nýja Sjálandi er Eiður sendi-
herra í Kína, Ástralfu, Mongólíu, Ví-
etnam, Norður-Kóreu og Suður-
Kóreu með aðsetur í Peking.
• Sædýrasafnið í Oregon áformar
að halda minningarathöfn um hval-
inn Keikó sem dvafdi á safninu ffá
1996-98. Hvalurinn
lést sem kunnugt er úr
lungnabólgu skömmu
fyrir jól og fór útför
hans fram í kyrrþey til
að forðast fjölmiðlafár
líkt og alvöru
Hollywoodstjörnu
sæmir. Minningarat-
höfnin í Bandaríkjunum fer fram
þann þann 20. febrúar næstkomandi
og þar munu fyrrum gæslumenn
Keikós tala um samskipti sín við dýr-
ið auk þess sem teikningar af brons-
Síðast en ekki síst
styttu sem gera á af hvalnum verða
sýndar. Ekki er víst hvort almanna-
tengill hvalsins, ís-
lendingurinn Hallur
Hallsson, muni vera
viðstaddur en hann
hefur sfðustu daga
unnið hörðum hönd-
m um að undirbúningi
Heimastjórnarafmæl-
isins. Hafa menn þó haft á orði að
Hallur geti vart sýnt hvalnum það
virðingarleysi að vera staddur í öðm
landi á stórviðburði sem þessum og
því er talið líklegt að hann mæti...
• Um fátt er nú meira rætt en hvort
hið meinta upphlaup forseta íslands,
herra Ólafs Ragnars Grímssonar, í
tengslum við hátíðarhöld vegna
hundrað ára afmælis heimastjórnar,
mun hafa áhrif á væntanlegar for-
setakosningar. Ólafur Ragnar hefur
- v- enn ekki gefið upp hvort hann fari
fram eða ekki. Það er þrátt fyrir að í
sextugs affnæli sínu hafi hann gefið
út yiirlýsingu þess efnis að hann
hygðist segja um fyrirætlanir sínar í
haust sem leið - fyrir löngu. Em að-
dáendur forsetans
famir að hafa af þessu
verulegar áhyggjur en
einn þráður á kjafta-
síðunni malefnin.com
er undir yfirskriftinni
„Er forsetinn á för-
um?, fslands óham-
ingju allt að vopni.“ Þar ritar maður
- ^ sem kallar sig caramba og fer mik-
inn: „Það er vel hugsanlegt að forseti
íslands gefi ekki kost á sér aftur í
embætti. Hann er vel kvæntur, þarf
ekki að kvíða féleysi og hefur klifið
hæstu tinda frama og virðingar á ís-
landi. ísland er of lítið fyrir mann af
hans kalíber, hér er mikið af gjamm-
andi hælbítum og pólitískum öfund-
armönnum sem hafa gert honum líf-
ið leitt allt frá því hann tók við emb-
ætti...“
Aðdáendur Ólafs Ragnars Gríms-
sonar forseta segja að allt lykti af
samsæri Sjálfstæðismanna sem gekk
út á að halda honum utan hátíða-
haldanna og teikna hann jafnframt
upp sem fordildarinnar samkvæmis-
mann sem láti sig litlu varða sögu
þjóðarinnar. Og fáir ef nokkrir sem
nærri komu dagskránni í Þjóðmenn-
ingarhúsinu voru ekki í flokknum,
meira að segja Gunnar Guðbjöms-
son tenór er mikill Sjálfstæðismaður
en bróðir hans er listmálarinn Daði
Guðbjömsson sem löngum hefur
verið í á lista Sjálfstæðismanna þegar
^ kosningar eru. Hins vegar er ekki vit-
að um hvort undirleikari Gunnars er
Sjálfstæðismaður eða ekki...
Umboðsmaður íslenska hestsins er nýkom-
inn úr kynnisferð til Los Angeles þar sem hann
lagði á ráðin um markaðssetningu íslenska
hestsins með heimamönnum:
„Þarna eru miklir möguleikar enda markaður-
inn stór og peningarnir miklir. En þetta á eftir að
takast og gerast á næstu 15-20 árum,“ segir Jónas
R. Jónsson, nýkominn til landsins aftur. „Það
sem helst vanlar þarna úti eru tamningamenn til
að standa undir þeirri sérhæfðu þjálfun sem ís-
lenski hesturinn þarf. I Bandaríkjunum er að
finna öll hestakyn heims og talið að hestar í land-
inu séu um sjö milljónir talsins. Þar af eru aðeins
um þrjú þúsund íslenskir hestar. Þannig að hér
er mikið verk að vinna en allt hægt,“ segir Jónas
sem heimsótti hestabúgarða í Los Angeles og
ræddi við mann og annan.
Engin skipulögð ímyndarvinna vegna íslenska
hestsins hefur farið fram í Bandaríkjunum held-
ur hafa sölumenn unnið þar hver í sínu horni.
Lítur umboðsmaður hestsins einmitt á það sem
eitt sitt helsta hlutverk í starfi að koma skikki á
þau mál. Markaðurinn bíður hreinlega svo gott
sem óplægður eftir að vinnan hefjist.
„Nei, ég seldi engri kvikmyndastjörnu íslensk-
an hest þarna úti enda ekki mitt hlutverk. Ég
stend hvorki í hestasölu eða ræktun því ég er
hlutlaus fulltrúi hestsins sjálfs," segir Jónas R.
Umboðsmaður íslenska
hestsins Jónas R.Jónsson
sér möguleika í hverju horni
i Bandaríkjunum en vinnan
á eftir að taka 15-20 ár.
Krossgátan
Lárétt: 1 nauðsynleg, 4
hvatning, 7 mastur, 8
högg, 10 hretið, 12 kaun,
13 sjór, 14 ástundun, 15
frag, 16 tröll, 18 léttúðar-
drós, 21 sundraði, 22
skurn,23 afturhluti.
Lóðrétt: 1 stía, 2 fisk, 3
svelgur, 4 óframfærinn, 5
kostur,6 veðrátta,9 múr-
stein, 11 stundar, 16
hækkar, 17 gerast, 19
þjálfa, 20 þakskegg.
Lausná krossgátu
’sjn 07 'Uæ 61 's>|s
71 'su 9 L 'Jer|g! 11 jn6ii 6 '6)1 9 '|ba s 'Jn6æjp6|g jiepngiu £ 'nsX z 's?q L
•ssej £z js>|s zz jne|>| tj'njæ6 8L
'esu 91 'æj; st j>|æj 'j|6æ £i 'pun 3t 'Qliaoi 'Cnis 8'B|6|s z'ioali tr'uAjq t