Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Side 32
Fréttaskot Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða
er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. 550 5090
SKAFTAHLÍÐ 24 W5RBYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMiSSOSQÖO
• Verslunarstjóri í einni af
verslunum 11-11 íhöfuð-
borginni stöðvaði búðarþjóf í
byrjun vikunnar og hafði af
honum kókdós sem átti að
stela. Heyrir það ekki til tíð-
inda nema vegna þess að
verslunarstjórinn er
ófrísk kona sem
komin er átta
mánuði á leið.
Las hún búðar-
þjófnum pistilinn
en honum tókst
þó vegna afls-
munar að slíta sig lausan og
komast á brott. Verslunar-
stjórinn vill ekki láta nafns
síns getið af fjölskylduástæð-
um en ættingjar hennar og
barnsfaðir yrðu líklega ekki
hrifin af því að hún væri að
standa í handalögmálum í
vinnunni svona á sig komin.
Skal það virt...
Ég hef bara drukkið
konur undir borðið!
Hættulegir stólar Rann undir
hnrð hjá Davíð
Sá fáheyrði atburður varð við
ríkistjórnarborðið í Stjórnarráðinu
við Lækjargötu í fyrradag að Þór-
unn Sveinbjörnsdóttir, varaforseti
Eflingar, rann undir borðið þegar
hún ætlaði að setjast við það. Var
Þórunn mætt í Stjórnarráðið ásamt
fulltrúum ýmissa samtaka til að
mótmæla sparnaði í heilbrigðis-
kerfinu og koma sjónarmiðum sín-
um á framfæri við Davíð Oddsson
forsætisráðherra og Jón Kristjáns-
son heilbrigðisráðherra.
'Þegar Þórunn ætlaði að setjast í
einn af ráðherrastólunum sporð-
reistist hann að aftan með þeim af-
leiðingum að Þórunn rann með
leifturhraða undir borðið. Var Jóni
Kristjánssyni heilbrigðisráðherra
brugðið, en hann sat við hlið Þór-
unnar, og reyndi að grípa til henn-
ar. Forsætisráðherra kipptist
einnig við þar sem hann sat við
borðendann og sama má segja um
aðstoðarmann hans, Uluga Gunn-
arsson.
„Stólarnir eru mjög lúnir en við
erum ýmsu vön í verkalýðshreyf-
ingunni og bregður ekki við allt,"
sagði Þórunn eftir fundinn en hún
lét atvikið ekki á sig frá.
Fundinn sat einnig Einar Odds-
son, læknir og formaður starfs-
mannafélags Landspítalans, og
honum brá þegar Þórunn rann
undir borðið: „Þetta eru lífshættu-
legir stólar," sagði hann. Og Sigur-
steinn Másson, formaður Geð-
hjálpar, var þarna líka: „Það var
eins og stólarnir væru nýsmurðir.
Þeir dönsuðu undir manni."
Ekki er vitað til þess að ráðherr-
ar hafi dottið úr stólunum á ríkis-
stjórnarfundum.
Stóllinn gefur sig Þórunn rennur undir borðið. Jón, Davið og lllugi horfa forviða á.
Lið Versló Tryggði sér sæti i fjórðungsúrslitum með sigri á MH sem komst þó lika áfram sem
stigahæsta tapliðið.
Örvar Amors
í Gettu betur
Nú er komið í ljós
hvaða átta skólar munu
etja kappi í Gettu betur í
sjónvarpinu á næstu vik-
um en undankeppninni í
útvarpinu lauk á þriðju-
dag. Skólarnir sem munu
mætast eru Menntaskól-
inn Hraðbraut og FG, MH
og MR, Fjölbrautarskóli
Vesturlands og Versló og
loks Borgarholtsskóli og
MK. ' Keppnirnar munu
fara fram í Vetrargarðin-
um f Smáralind nema
viðureign Fjölbrautarskóla Vestur-
Iands og Versló sem fer fram á Akra-
nesi. Fyrsta sjónvarpsviðureignin
verður á milli Hraðbrautar og Fjöl-
brautar í Garðabæ fimmtudaginn
19. febrúar.
Sem fyrr verður það
Logi bergmann Eiðsson
sem stjórnar keppninni
og spyr. Dómari verður
Stefán Pálsson og stiga-
vörður Steinunn Vala Sig-
fúsdóttir. Hlutverk stiga-
varðar í þessari keppni
hefur oft dregið dilk á eft-
ir. Þegar Davíð Þór Jóns-
son var spyrill var stiga-
vörður Katrín Jakobsdótt-
ir varaformaður Vinstri
grænna. þau felldu hugi
saman. Svanhildur Hólm
Valsdóttir var svo stigavörður í fyrra
og hún býr nú með spyrlinum Loga
Bergmann. Hún ætti ekki að vera í
hættu vegna örva Amors því Logi
Bergmann er frátekinn frá því í
fyrra...
Steinunn Vala Sigfús-
dóttir Stigaverðirhafa
orðið fyrir örvum Amors i
þættinum en hún ætti að
sleppa.
2 OG 3 HERBERGJA ÍBÚÐIR í MIÐBORGINNI
Glæsilegar fullbúnar íbúðir
VERÐ FRÁ 14,6 - 24,6 MILUÓNIR KR.
ggHHHÉnm
Sv' 25 ‘
mm
m
Verðdæmi:
69 m2 2 herb.
14,6 m kr.
73 m2 2 herb. 17,2 m kr.
95 m2 3 herb. 19,9 m kr.
102 m2 3 herb. 21,7 m kr.
117 m2 3 herb. 24,5 m kr.
123 m2 3 herb. 24,6 m kr.
Bílastæöi í lokaðri bílageymslu fylgir.
Viö bjóöum m.a. vandaðar, nýtískulegar og vel
hannaðar 2ja og 3ja herbergja íbúðir í 101 Skugga-
hverfi. íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án gólfefna.
Hverri íbúö fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu.
Gerið samanburð á gæðum og verði
við aðrar eignir á svæðinu.
HUSAKAUP
Sími 530-1500
EIGNAMIÐLUN
Sími 588-9090