Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2004, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2004, Side 4
4 MÁNUDAQUR 23. FEBRÚAR 2004 Fréttir DV Bílstjórar boðnir út Undirskriftalistar hafa verið lagðir fram frá íbúum á Mýrum til bæjarstjórnar Borgarbyggðar þar sem skorað er á bæjarstjórn að endurnýja samninga við skólabflstjóra. Óskað er eft- ir áliti bæjarlögmanns á því hvort nauðsynlegt sé að bjóða skólaaksturinn út með tillití til stjórnsýslulaga og laga um opinber inn- kaup. Páll S. Brynjarsson, bæjarstjóri í Borgarbyggð, segir að verið sé að skoða hvort bjóða eigi út starfið. „Við erum að skoða hvað lögin segja og ákvörðunin liggur ekki ljós fyrir ennþá," segir Páll. Lögregla rannsakar líkamsárás Lögreglan á Selfossi rannsakar tildrög þess að hún fann á föstudagskvöld liggjandi mann á götu í bænum. „Hann hafði legið þarna í einhvern tíma áður en hann fannst því hann var talsvert kaldur," segir Svan- ur Kristinsson lögreglu- maður. Kom í ljós að fjórir ntenn höfðu ráðist á mann- inn. Var maðurinn fluttur á heilsugæsluna á Selfossi en þaðan á Landspítalann til frekari rannsókna. Lögregl- an telur sig vita hverjir voru þarna að verki og er málið í rannsókn. Einnig var ein kona færð í röntgenmynda- töku vegna gruns um að hún væri með ffkniefni á sér sem hún væri að flytja á Lida-LIraun og hún framvís- aði því við handtöku en efnið reyndist vera amfeta- mín. John Kerry í rokkinu John Kerry virðist vera kominn í hóp manna sem dreymdi um að verða rokk- stjörnur en enduðu sem stjórnmálamenn. Bill Clint- on spilar á saxófón og Tony Blair á gítar, en nú hefur komið í ljós að Kerry spilaði á bassa í Jfljómsveitinni The Electras. Hljómsveitin tók upp 13 laga plötu árið 1961 á eigin kostnað og gaf hana út í 500 eintökum. Hefur eintak nú selst á 60.000 krónur. Andrew Gagarin, stofnandi hljóm- sveitarinnar, sagði að hug- niyndin væri að kynnast fleiri stelpum. Kannski ættu þeir Clinton, Blair og Kerry að láta drauminn loksins rætast og stofna saman band? Verslunarstjóri Essoskálans á Hornafirði taldi mennina sem nú sitja í gæsluvarðhaldi vegna líkfundarins í Neskaupstað hafa verið í samfloti við tvo menn í öðrum jeppa. Menn irnir voru veðurtepptir í tvo daga á Djúpavogi, þar sem þeir létu bera ísig vistir á hótel- herbergi. 1. Jónas Ingi Ragnarsson Tölvusnillingurinn hefur enn ekki ákveðið hvort hann áfrýi gæsluvarðhaldsúrskurði. 2. Grétar Sigurðarson Þrautþjálfaður lifvörður sem unir gæsluvarðahaldsúrskurðinum. 3. Hinn látni, Vaidas Jucevicius Lést með innyflin full afamfetamini. 4. Litháinn Tomas Malakauskas Hefur áfrýjað gæsluvarðhalds- úrskurðinum. 5. Sveinn Andri Sveinsson Jónas Ingi hefurráðið stjörnu- lögfræðinginn 5vein Andra. Grái Pajero-jeppinn í Neskaupstaðarmálin var ekki einn á vegferð sinni austur á Neskaups- stað föstudaginn fyrir rúmum tveimur vikum. Lúðvík Gunnarsson, verslunarstjóri í sölu- skála Essó á Höfn í Hornafirði, segir tvo menn á dökkum jeppa hugsanlega hafa verið í samfloti með tveimur mönnum sem voru í Pajero-jepp- anum frá bflaleigunni Alp. Annar mannanna í Pajero-jeppanum hafi verið útlendur. Hinir mennirnir þrír hafi verið íslenskir. Klukkan var á milli átta og nfu um kvöldið þegar jepparnir renndu í hlað. „Þeir fengu sér eldsneyti og nesti og fóru svo bara. Veðrið var snarvitlaust og ég sagði þeim þeim að það þýddi ekkert að halda áfrarn - að þeir kæmust aldrei. En ef eitthvað er að marka það sem maður heyrir komust þeir við illan leik á Djúpavog," segir Lúðvík, sem telur öruggt að Pajero-jeppinn sé sá sem lögreglan síðan lýsti eftir. I honum munu hafa verið þeir Jónas Ingi Ragnarsson og Litháinn Tomas Malakauskas, sem nú sitja í gæsluvarðhaldi ásamt Grétari Sig- urðarsyni, grunaðir um að hafa sökkt Litháanum Vaidas Jucevicius í sjóinn við Netabryggjun í Neskaupstað. Grétar hafði flogið austur þennan föstudag. Þegar mennirnir fjórir í jeppunum stöldruðu við hjá Lúðvík taldi hann víst að þeir væru sam- an á ferð. „Þeir komu og fóru báðir burt um leið og töluðu saman hér inni. En eftir á að hyggja er ég ekki alveg öruggur. Þeir gætu bara hafa þekkst og verið á sömu leið," segir Lúðvík. „Þeir fengu sér eldsneyti og nesti og fóru svo bara. Véðrið var snarvitlaust og ég sagði þeim þeim að það þýddi ekk- ert að halda áfram -að þeir kæmust aldrei." Lúðvík segist ekki viss um gerð dökka jeppans en telur hann hafi verið Toyota Landcruiser. Þó hann væri ekki auðkenndur ályktaði hann út frá búnaði bflsins að hann væri af bflaleigu. „Ég ltef ekkert heyrt ltvað varð um þann jeppa," segir hann. Talsverður asi var á fjórmenningunum. Þó að veðrið hríðversnaði með hverri mínútunni og út- litið ekki gott virtu þeir ráð Lúðvíks verslunar- stjóra í Essoskálanum að vettugi og héldu í sam- floti út í hríðina og óvissuna. „Ég lét lögregluna vita af þessu ferðalagi ef einhver skyldi fara að spyrjast fyrir urn bflana," segir Lúðvík. j Samlcvæmt heimildum DV gistu að minnsta kosti Tomas og Jónas á Hótel Framtíðinni á Djúpavogi bæði aðfaranótt föstudags og aðfara- nótt laugardags fyrir rúmum tveimur vikum. Starfsfólk þar neitar að staðfesta að svo hafi ver- ið. Heimamaður á Djúpavogi segist hins vegar hafa heyrt að mennirnir hafi haldið sig meira og minna allan tímann inni á herbergi og látið bera í sig vistir þangað. Lögreglan í Reykjavík rannsakar nú meðal annars lífsýni sem talið er. að feli í sér lykil að sönnun efnis- legra tengsla milli Vaidas Jucevicius og mannanna þriggja sem em í haldi. Sýni hafa verið tekin í Pajero- jeppanum, heima ltjá mönnunum og á gististöðum. Þar er einnig verið að kanna fingrafor og fleira. Staðfest mun vera að einhverjir mannanna hafi verið í símasambandi við Vaidas eftir að hann kom til landsins. Þá liggur fyrir að Jónas breytti farmiða Vaidas. Jónas mun segjast hafa kannast við mann að nafni Vaidas og verið í sambandi við hann út af inn- flutningi á sumarhúsum. Lögreglan telur sig vita að Tomas og Jónas Ingi hafi verið í Leifsstöð mánudagskvöldið 2. febrúar þegar Vaidas kom til landsins frá Kaupmannahöfn en þeir hafa neitað að hafa hitt Vaidas. Grétar segist ekki þekkja hinn látna Vaidas. Tomas hafi hann þekkt skemur en Jónas hafi gert. Jónas á langa skuldasögu að baki og hefur rekið mörg fyrirtæki í gjaldþrot. Hann og Grétar em gamlir vinir sem tala saman oft á dag. Tomas hefur búið á íslandi á þriðja ár. Hann býr í Kópavogi með öðmm Litháa og hefur verið at- vinnulaus upp á síðkastið. Lögmaður hans, Björgvin Jónsson, segir Tomas hafa kært gæsluvarðhaldið þar sem rannsóknarhagsmunir krefjist þess ekki að hann sé í haldi. gar@dv.is kgb@dv.is Látið blómin í Bankastrætinu vera ... í gær fór Svarthöfði, eins og flestir karlmenn, í leiðangur að kaupa blóm handa konu sinni í tilefni konudags. Enda þótt Svarthöfði sé af prinsipp- ástæðum á móti flestum af þeim „há- tíðardögum" sem blómasalar eru sí- fellt að reyna að demba yfir þjóðina er konudagurinn svo gamall að Svarthöfða þyldr sjálfsagt að fýlgja þeim hefðurn sem honum fylgja. Þar að auki er kona Svarthöfða, Svart- höfða, afbragð annarra kvenna og fullsæmd af blómum. Þar sem Svarthöfði lagði Humm- ernum sínum f Bankastrætinu til að skjótast inn í blómabúðina sem þar er veitti hann því athygli að á nokkrum ljósastaurum neðst í göt- unni hafði verið komið fyrir eins kon- ar blómaskreytingu, svo toppurinn á ljósastaurunum líktist helst túlípana. Svarthöfða þótti að þessu ósvikinn sómi og hjarta Svarthöfða sló óvænt gleðislag af kæti yfir því að hafa kom- ið auga á svo óvæntan og skemmti- legan hlut. Imyndaði Svarthöfði sér fyrst að það væri blómasölukonan í Bankástræti sem hefði komið þessu fyrir og hafði orð á því við hana hversu vel heppnað þetta væri. En nei, blómasölukonan sagði að þetta væri ekki sitt verk. (Dæmalaust skemmtilegt orð, reyndar, blóma- sölukona. Svarthöfði hefur ákveðið að nota þetta orð strax aftur: blóma- sölukona.) En blómasölukonan sagði sem sagt að þessu hefði verið komið upp í tilefni af vetrarhátíðinni í Reykjavík eða hvað það nú heitir, og því miður yrðu túlípanarnir teknir niður af ljósastaurunum strax í fyrramálið - það er að segja núna í morgun. Því lengur en á þessari hátíð ættu þessu stóm gerviblóm ekki að vera borgar- búum til yndis. Svarthöfði hvetur eindregið til þess að ef ekld er enn búið að taka niður blómin sleppi borgin því. Þessi blóm em sjaldgæfur gleðigjafi og ekld nógu oft sem borgarbúar fá eitthvað óvænt og skemmtUegt fyrir augu sín að dvelja við. Annað dæmi var þegar mslatunnurnar voru málaðar í Kvos- inni, sem var mikil bæjarprýði, en því miður hefur því ekki verið fylgt eftir með máluðum mslatunnum um alla borg. Reykjavík er að mati Svarthöfða alls ekki nógu litrík borg til að hún megi við því að vel heppnað skraut eins og þessi blóm sé strax tekið nið- ur í stað þess að brúka þau líka hvunndags. Því lífið er líka hvunn- dagurinn. Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.