Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2004, Side 26
n
26 MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004
Fókus DV
t Oi d mountaTn
aH
Stórbrotin og margverðlaunuð
stórmynd með óskarsverðlauna-
hafanum Nicole Kidman, Golden
Globe og BAFTA verðlaunahafanum
Renée Zwllweger og Jude Law
SÝNDkl. 6og9 B.i. 16
SÝND kl. 5.30, 8, 9.15 og 10.30
HOUSE OF SAND - kl. B Og 10.30 B.i. 14[
THE HUMAN STAIN kl. 5.50 B.L 12 ára|
KALPflUÓS kl. 6 og¥1
MYSTIC RIVER kl. 10 B.L 16 ár.l
M. ISL. TEXTA
TILNEFNINCAR TIL ÓSKARSVFRÐLAUNA
SÝND kl. 8 og 10.40
jLÖRD ÖFTHE RjNCS kl. 4 & 8 Lúxus kl. 5 & 9
smnnnVj ma
HIJGSAOU STÓHT
SlMl 564 oooo - www.smarabio.is
SAMBÍÚm
AIFABAKKI
f rtlNffNlNG.VR T11ÖSKAR.SVIRÐiAUNA
1 ^TUNEJNINGA
1 «»»ew wai
Ben SÖIer JenmfcrÁniston
Along Came Polly
SÝND kl. 4, 6, 8 og 10
SÝND I LÚXUS VIP kl. 6, 8 og 10
ISOMETHING COTTfl GIVE kl. 5.40, 8, Og lÖTÖ] jBJÖRN BRÓÐIR kl. 4 og 6 M. ÍSL. TALI
Sigur Rós vinsæl
EP-platan Ba ba ti ki di
do, sem inniheldur tón-
list Sigur Rósar við dans-
verk Merce Cunning-
ham, er rní fáanleg til
niðurhals á i-tunes, vin-
sælasta lög-
lega niður-
halsvefnum.
Platan kem-
ur svo út
með hefð-
bundnum
hætti 23.
mars. Þess
má geta að hún er fjórða
mest niðurhlaðna plat-
an hjá i-tunes.
Kristinn í Salnum
Annað kvöldið af fjórum
á námskeiði Jónasar
Ingimundarsonar í Saln-
um er í kvöld. Nám-
skeiðið ber heitið Hvað
ertu tónlist? og er hægt
að kaupa sig inn á hvert
kvöld fyrir 2.500 krónur.
Vetrarferð Schuberts við
ljóð MúUers er verkefni
kvöldsins og sérstakur
gestur Jónasar er söngv-
arinn Krist-
inn Sig-
mundsson.
Flugvélará
Tónlist.is
Það er greinilega eitt-
hvert lff eftir Idol þótt
maður vinni ekki. Jón
Sigurðsson, sem hafnaði
í öðru sæti, ætlar alla
vega að láta reyna á það
og hefur
nú tekið
upp sitt
fyrsta lag.
Þaðer
lagið
Flugvélar
með Nýdönsk sem hann
söng svo eftirminnilega í
keppninni. Hægt er að
nálgast lagið á vefsíð-
unni Tónlist.is.
Jæja
Lágmenningarkvöld er á Jóni forseta í Aðalstræti í kvöld.
Stefnt er að því að vera með fastar kvikmyndasýningar á
staðnum á mánudagskvöldum og verða þær með sérstöku
þema hverju sinni.
■ ■ ■■ ■ ■
sta frá Hollvwood
Wm
Kristlrrn Palsson Stendur
fyrír lógmenningarkvötd-
inu á Jóni forseta i kvöld
þar sem sýndar verðo afar
sérs takar myndir.
„Þetta er góður vitnisburður um hvernig tíminn getur
búið til góðar grínmyndir úr slæmum kvikmyndum," seg-
ir Kristinn Pálsson sem stendur á bak við lágmenningar-
kvöld á menningarbarnum Jóni forseta í kvöld. „Hug-
myndin er sú að vera með fastar þematískar kvikmynda-
sýningar einu sinni í viku, en efni kvöldsins verður kynnt
í byrjun með stuttum fyrirlestri um tengingu myndanna,"
segir Kristinn.
Eftir fyrirlesturinn í kvöld mun gamansama heimildar-
myndin It Came From Hollywood ríða á vaðið með þeim
Dan Aykroyd, John Candy og Cheech og Chong fremsta í
fararbroddi. í myndinni fá gestir að kynnast því skrýtnasta
sem Hollywood hefur gefið af sér. „Þessi mynd er oíboðs-
lega sjaldgæf og því er þetta einstakt tækifæri til að berja
hana augurn," segir Kristinn. Einnig verða sýndar
ófreskjumyndirnar It Came From Beneath The Sea og
King Kong Vs. Godzilla. „Sú fyrri er dæmigerð
„monstermovie" frá sjötta áratugnum. Þetta var áratugur
taugatitrings vegna kalda stríðsins og margir hafa viljað
meina að ófreskjurnar hafi í raun átt að þjóna hlutverki
kommúnista. Skrímslamyndahefðin í Japan hefur verið
mjög sterk og er það jafnvel enn í dag. Þessi gamla tækni,
sem notuð var tÓ að sýna skrímslin, virkar í dag eins og
senur úr Prúðuleikurunum og mér finnst það allavega al-
veg ofboðslega fyndið," segir Kristinn.
„Hugsunin er sú að koma saman tveimur til þremur
myndum sem eru svolítið skyldar. Til dæmis verður eitt
kvöldið helgað ákveðinni tegund glæpamynda, annað um
geiminn en næst á dagskrá eru asnalegar lillabláar klám-
myndir. Þetta eru þó ekki klámmyndir eins og við þekkj-
um í dag heldur eru þær mjög léttar. Svona nokkurs kon-
ar rasskinnamyndir."
Lágmenningarkvöldið hefst kl. 20.30 og aðgangur er
ókeypis á meðan húsrúm leyfir.
Vill verða forseti
Leikarinn Ben Affleck vill nú
komast í almennileg hlutverk eftir
misjafnt gengi nýjustu myndar
hans, Pay Check. Leikarinn vill ólm-
ur fá að leika forseta Bandaríkjanna
til að sanna getu sína. „Fyrir tveimur
árum hefði mér ekki dottið í hug að
taka slíkt hlutverk að mér en nú er
rétti tíminn," sagði Ben. Aðspurður
hvort Jennifer Lopes fengi hlutverk
forsetafrúarinnar sagði Ben: „Minn
forseti verður ekkjumaður."
Geri Fær hlutverk iWill og Grace.
Geriverður lessa
Draumur gamla kryddsins Geri
Halliwell virðist vera að rætast. Geri
hefur landað hlutverki í vinsælu
grínþáttunum Will og Grace. Þar
mun hún leika gamla lesbíska vin-
konu Grace sem valda mun brestum
í vinahópnum. Geri er í skýjunum
með tækifærið enda hélt hún að
stóra „breakið" hefði farið fram hjá
henni þegar hún missti af hlutverki í
Friends á sínum tíma. Framleiðend-
ur þáttanna ætla að sjá til með
hversu vinsæl persóna Geri verður
meðal áhorfenda og ákveða síðan
hversu lengi hennar verður óskað.
Þýzkur húmor og rússneskir tónar voru í aðalhlutverki í Salnum á miðvikudagskvöld
Einmana hné sem gengur um
Tónlist
Það er ekki oft sem píanó, söngur
og klarinett hljóma saman á tónleik-
um. Ákveðin eftirvænting ríkti því í
Salnum á miðviku-
dagskvöld þegar
Ingibjörg Guðjóns-
dóttir sópransöngkona, Einar Jó-
hannesson klarínettuleikari og Val-
gerður Andrésdóttir píanóleikari
leiddu saman hesta sína.
Það er heldur ekki oft sem verk
ungverska tónskáldsins Matyas
Seibers heyrast hér á landi. Meira að
segja er fullyrt í efnisskrá tónleik-
anna að verk hans fyrir sópran og
klarínettu við húmorísk ljóð Morg-
ensterns hafi aidrei áður heyrst á
Fróni. Þessi þrjú smáljóð eftir Morg-
enstern eru snilld út af fyrií sig.
Húmorinn er absúrd þar sem venju-
legir hlutir eru settir í annarlegt sam-
hengi.
Til dæmis fjallar fyrsta ljóðið um
„Tvær trektir sem reika um að næt-
urþeli". Annað er um einhvers konar
„Neffætling sem stikar um á nefjum
sínum". Fyndnasta ljóðið er þó um
einmana hné sem gengur uni heim-
inn, lendir í stríði en sleppur óskadd-
að. Svo gengur hnéð um heiminn og
minnir sig á að það sé ekki tré, ekki
tjald - það sé hné og ekkert annað.
Seiber sér greinilega húmorinn í
ljóðunum og útsetur lögin á kostu-
legan hátt. Þá kemur að þætti flytj-
andans. Það er oft kostulegt að sjá ís-
lenska óperusöngvara syngja þýsk
gamanljóð. Einhvern veginn kemst
húmorinn aldrei almennilega til
skila og oftast skilja áhorfendur
minnst í því sem sungið er um.
Söngvarar bregða því á það ráð að
skella sér í hlutverk gamanleikara;
fetta sig og bretta til að húmorinn
komist örugglega til skila. Áhorfend-
ur flissa því kurteislega í lok laganna
en oftast nær er það yfir söngvaran-
um sjálfum en ekki ljóðinu.
heiminn
Ekki svo að skilja að þáð hafi ver-
ið reyndin á þessum tónleikum en
þótt svo hefði verið, voru lög Matyas
Seibers upplifun út af fyrir sig. Allt
annað féll í skugga hins leiftrandi
húmors smálaganna þótt sönglag
Rachmaninoffs op. 4 no. 4 hafi hitt
mann beint í hjartastað. Rachman-
inoff er þekktastur sem píanótón-
skáld en fuil ástæða er til að taka eft-
ir sönglögum hans. Verkið var gull-
fallega flutt af Valgerði og Ingibjörgu
- hápunktur tónleika þar sem hné,
neffætlingar og reikandi trektir stálu
þó senunni.
Símon Birgisson
Valgerður, Einar og Ingibjörg ■ Salnum
Ákveðin eftirvænting rikti i Salnum á miðviku-
dagskvöld þegar Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran-
söngkona, Einar Jóhannesson klarinettuleikari
og Valgerður Andrésdóttir pianóleikari leiddu
saman hesta sina.