Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2004, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst
FÖSTUDAGUR I9. MARS 2004 3
Variö land - há og nú
Um miðjan janúar árið 1974 hófst undirskriftasöfnun hér á
landi sem kölluð var Varið land. Fjórtán menn stóðu að
henni og vildu með henni „skora á rfldsstjóm og Alþingi
að standa vörð um öryggi og sjálfstæði íslensku þjóðar-
innar með því að treysta samstarfið innan Atlantshafs-
bandalagsins, en leggja á hilluna ótímabær áform um
uppsögn vamarsamningsins og brottvísun vamarliðsins." Einn
Qórtánmenninganna var Jónatans Þórmundsson lagaprófessor
„Iraksstríðið var auðvitað brot á
alþjóðalögum... Brottför bandaraísks
herliðs er mér að meinalausu."
Jónatan Þórmundsson
Flökkusagan
„Þetta var heilmikið starf þó
það legðist ekki þungt á mig,“
segir Jónatan Þórmundsson,
„en ég var í þessu af fullri
sannfæringu. Við höfðum einn
starfsmann og fjölda sjálfboða-
liða til að safna undirskriftum,
en mesta fjaðrafokið var út af
þeirri söfnum. Þá var enginn
að velta fyrir sér persónuvernd
eins og nú, fólk vildi bókstaf-
lega skrifa sig á listann og lýsa
opinberlega stuðningi sínum
við veru hersins hér á landi.“
Jónatan segir tölvufræðinga
hafa verið með í Vörðu landi
„og þess vegna gátum við not-
að nútímatækni til að vinna úr
listunum. Ýmsir reyndu að
klekkja á okkur
þess vegna,
við vorum
sakaðir um
að á listanum væru nöfn of ungs fólks
og að sumir væru þar tvískráðir. Þó
man ég ekki betur en það hafi ekki verið
nema nokkrir tugir manna sem
strika þurfti út og það verður að
teljast gott á lista með rúmlega 55.700 nöfnum.
I þá daga var mikil harka í allri pólitískri bar-
áttu, miðað við miðjumoðið nú á dögum, og
aðeins tvisvar á ævinni hef ég haft veruleg
óþægindi
símhringingar og annan hama-
gang, vegna skoðana minna
eða starfa. Á dögum Varins
lands og þegar ég var skipaður
saksóknari í Hafsskips- og Út-
vegsbankamálinu.1'
Jónatan hafði verið meðal
róttækra ungra manna í Fram-
sóknarflokknum, en þegar
myndir af honum fóru að birt-
ast vegna Varins lands „var
mér sagt að Ólafur Jóhannes-
son hefði séð mynd og sagt:
„Er þetta hann Jónatan okkar?
Ég hélt að hann væri kommún-
isti!“ þannig að ég var svo sem
ekki með einn ákveðinn stimp-
il á mér, frekar alls konar
stimpla."
„Íraksstríðið var auðvitað
brot á alþjóðalögum," heldur
Jónatan áfram, „og ég er eng-
inn stuðnings-
maður þeirra sem nú ráða í
Washington. Ekki bara út af
írak, líka Kyoto-bókuninni,
alþjóðlega sakamáladóms-
stólnum og ýmsu fleiru. Brottför
bandarísks herliðs frá íslandi er mér að
meinalausu," segir Jónatan Þórmunds-
son lagaprófessor að lokum.
Hver er uppáhaldsvefurinn þinn
finna.is
„bbc.co.uk/sport hlýtur að vera of-
arlega á blaði, vefur sem ég nota
hann heilmikið I tengslum við þátt
minn og Valtýs Björns„Mln skoð-
urí' sem er sex daga vikunnar á
Skonrokk 909. Þetta er vefur
breska ríkisútvarpsins og alveg
magnaður. Þarna er bókstaflega
alltsem nöfnum tjáirað nefna um
íþróttir. Og marktækasti vefur I
þeim efnum sem ég hefskoðað."
Hans Stcinar Bjarnason
útvarpsmaöur.
Komið hefur fram að rúmlega 80 prósent landsmanna nota Netið dag-
lega. Þeirsem sitja fyrirsvörum I Spurrímgu dagsins tilheyra öllþeim hópi.
Flökkusögur eru sögur sem ganga víða, sagt er að séu
sannar og virðast á yfirborðinu sennilegar. Venjulega eru
þær hafðar eftir „frænku vinar móðursystur-minnar“ eða
„vinnufélaga bróður æskufélaga svilkonu minnar“.
Strákur í þriðja bekk í Mennta-
skólanum í Reykjavík var að Iesa und-
ir íslenskupróf þegar hann vandi sig
af einhverjum ástæðum á að japla á
pappírsmiðum meðan hann lá yfir
bókunum. Þessi vani varð fýrr en
varði að kæk og hann var brátt farinn
að spæna í sig heilar blaðsíður og síð-
an heilar bækur. Hann hafði aldrei
þótt mjög bókmenntahneigður en
furðu lostnir foreldrarnir tóku nú eftir
því að hann virtist gera upp á milli
bóka. Þegar hann var farinn að leggja
á Laxness-safn heimilisins bauð
mamma hans honum gömul eintök
af ísfólki sem hún átti inni í geymslu
en hann leit ekki við því. Mesta nautn
virtist hann hafa af Heimsljósi Hall-
dórs Laxness og keypti sér nýtt eintak
af því þegar hann var búinn með ein-
taldð sem til var. Dag nokkum var
drengurinn handtekinn hjá Braga
Kristjónssyni í Bókavörðunni þegar
hann var að háma í sig fmmútgáfur
af Laxness. Hann dvelst nú á Geð-
deild Landspítalans þar sem reynt er
'-//jriríje/fA e/n/i/eya
óoi/a//uf (j/í/iar.
óZÁezVs/er/ueira i
tamjarnar d/e/’/u.
að venja hann af þessari þráhyggju
smátt og smátt með því að gefa hon-
um smáskammta af íslenskum nú-
tímaljóðum.
Minnisvarði um mennina
sem drukknuðu í Dýrafirði
Afkomendur
Jóhannesar
Guðmunds-
sonar sem
drukknaði í
Dýrafirði þann
10. október
1899 við til-
raunir Hannes-
ar Hafstein sýslumanns til að
taka breskan togara gengust fýrir
því að minnisvarði um atburð-
inn var vígður þegar 100 ár voru
liðin frá atburðinum, 10. október
1999. Það voru raunar þrír menn
sem drulcknuðu en ekki Jóhann-
es einn eins og lesa mátti í DV í
gær. Hinir hétu Jón Þórðarson
og Guðmundur Jónsson. Hann-
es varð hetja eftir atburðinn en
fram kom í DV að til séu þeir
sem telja að framganga hans
hafi ráðist af drykkjuskap og
fífldirfsku.
Fæddir sama dag
Utanríkis-
stefna George W. Bush þykir sumum heldur
glannaleg og helst minna á aðferðir Rambos
við að leysa alþjóðleg vandamál. Það er
kannski ekki skrýtið þótt þeim svipi
saman því Bush og Syivester Stallone,
sem lék og skapaði Rambo, eru fæddir
sama dag, þann 6. júlí árið 1946.
„ruv.is hefur tek-
ið miklum
stakkaskiptum
og er að verða
sá vefursem ég
nota einna mest
núna. Líklega
besti vefur landsins. Svo fer ég oft
inn á mbl.is sem er með bestu
fréttavefjum landsins. simaskra.is
erlíka ofarlega á blaði og auðvit-
að spamadur.is."
Ellý Armannsdóttir þula
„Mikið afals-
konardótisem
maðurerað
skoða á hverj-
um degi. Tek
mér tíma i að
skoða bloggsíð-
urnar, má lesa um kunningja og
vini á netinu, lifþeirra - þetta eru I
raun fáránleg samskipti. Leikhús-
tengdar síður einnig. Svo notaég
síðuna finna.is sem er íslensk leit-
arvélog virkarvel."
Kristín Eysteinsdóttir
söngkona og leikstjóri.
„Eini vefurinn
sem ég fer inn á
linnulaust er
5stelpur.com.
Síðasti vefurinn
sem ég fór inná
þaráðurvar
amazon.com. Nota Netið mest til
að skrifa tölvupóst. Sem er alger-
lega dásamlegt - ég er svo slma-
fælin."
Edda Björgvinsdóttir
leikkona
Nótnabækur Gítarar Blokkflautur Fiðlur
Nótnastatíf Taktmælar Hljóðfærastatíf Gítarstillitæki
Tölvuhljómborð Ýmis smáhljóðfæri og margt fleira
TÓNLISTARGJÖF
ÍTónastöðinni finnur þú allt fyrir tónlistarmanninn.
Einstakt úrval hljóðfæra og nótna, spennandi tónlistarforrit auk skemmtilegra fylgihluta.
Einungis vandaðar vörur á góðu verði. Fagleg ráðgjöf.
„Ég á marga
uppáhaldsvefi,
núna sem ég fer
í gegnum á degi
hverjum: mbl.is,
eyjar.net, eyja-
frettir.net, bb.is,
malefnin.com, vikurfrettir.is og
horn.is - þarna er ég oft á dag og
aftenposten.no."
Magnús Þór Hafsteinsson
alþingismaður.
Spurning dagsins