Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2004, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2004, Síða 18
mynd 18 FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 Sport DV Knattspyrnumaðurinn Bjarni Guðjónsson hefur gengið í endurnýjun lífdaga eftir að hann var lánaður til enska 1. deildarfélagsins Coventry City frá Bochum. Hann hefur farið á kostum 1 síðustu leikjum og skoraði tvö mörk gegn Preston á mið- vikudag og lagði upp eitt. Hann hefði getað náð þrennunni en klúðraði víti. Kominn tími á almennilegt tmkifæri með landsliðinu Bjarni gekk í raðir Bochum síðasta sumar og gerði þriggja ára samning við félagið. Honum gekk vel til að byrja með en síðan lenti hann í því að fótbrotna og leiðin til baka hefur verið erflð. Fór svo að lokum að Bochum sættist á að lána Bjarna til Coventry þar sem allt hefur gengið upp hjá honum. Hann segist vera búinn að ná fyrri styrk og stefnir á að sanna sig með landsliðinu í vináttuleiknum gegn Albaníu í lok mars. Robbie Savage er ekki par hrifinn af hárgreiðslu „vinar“ síns, Danny Mills Liti betur út ef hann væri með hárkollu Það er óhætt að segja að harðjaxlarnir Robbie Savage, leik- maður Birmingham, og Danny Mills, leikmaður Middlesbrough, séu komnir í hár saman í orðsins fyllstu merkingu. Lið þeirra félaga mætast um helgina en Savage verður því miður í banni þar sem gula spjaldið sem hann fékk í síðasta leik gegn Boro gerði það að verkum að hann fór í leikbann. Spjaldið fékk hann eftir átök við Mills. Það var mikill hasar í síðasta leik liðanna sem endaði með því að Mills tók Savage hálstaki. Savage segir að Mills hafi rifið kjaft allan leikinn og gert grín að honum og félögum hans. „Mills var með niðrandi ummæli um mig og Clinton Morrison allan „Ég ætlaði að eigna mér sæti í Bochum-liðinu eftir að’ ég kom þangað og það gekk ágætlega til að byrja með. Svo fótbrotnaði ég og eftir það var þetta erfitt," sagði Bjarni í samtali við DV Sport í gær en hann segir að forráðamenn Coventry hafi haft augastað á sér í nokkurn tíma. „Þeir reyndu að fá mig síðasta sumar en þá voru þeir í greiðslustöðvun þannig að það gekk ekki. Þeir hafa því alltaf vitað af mér. Svo þegar þeir vissu að ég væri ekki að spila og vildi koma að spila þá höfðu þeir samband við forráðamenn Bochum og óskuðu eftir því að fá mig lánaðan og það gekk eftir." Stefna á umspil Það hefur verið rífandi gangur á Coventry- mönnum í síðustu leikjum. Þeir sigla hægt og sígandi upp töfluna, Eru sem stendur í tíunda sæti en aðeins eru fimm stig í þriðja sætið. Þeir eiga því góða möguleika á að komast í umspil og það er stefnan að sögn Bjarna. • „Þegar ég kom var Eric Black nýbúinn að taka við stjórastöðunni. Hann hefur fengið fleiri leikmenn til félagsins á síðustu misserum og við höfum núna sett okkur það markmið að komast í umspilið. Við höfum verið að spila marga sex stiga leiki undanfarið og unnið þá. Fram undan er leikur gegn Wigan sem er í fimmta sæti og þrem stigum á undan okkur og ef hann vinnst þá erum við íágætum málum og á réttri leið,“ sagði Bjarni sem er ánægður með andann í liðinu. „Þetta er mjög ungt og ferskt lið. Flestir eru svo ungir að ég er í gamla liðinu þegar ungir taka á móti gömlum á æfingum," sagði Bjami og hló. Fór á kostum gegn Preston Eins og áður segir fór Bjarni á kostum á miðvikudagskvöldið. Skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 4-1 sigri á Preston. Hann hefði getað skorað þrennu en klúðraði víti. „Við vomm búnir að vinna leikinn þegar við fengum vítið og því spurði ég þann sem venjulega tekur vítin hvort ég mætti ekki taka það þar sem tækifæri á að gera þrennu gefast ekki oft. En vítið klikkaði því miður. Þetta var mjög léleg spyrna. Ég verð nú að játa það,“ sagði Bjarni pínulítið svekktur. Vilja halda mér Þegar Bjami var hjá Stoke á sínum tíma var hann látinn spila á hægri kantinum en hlutskipti hans hjá Coventry er annað þar sem hann er fremsti maður í tígulmiðju hjá liðinu. Hann er þegar farinn að ræða framhaldið við félagið. „Þeir hafa tjáð mér að þeir vilji halda mér en svo er spuming hvað Bochum gerir? Coventry á lítinn pening og getur ekki keypt mig fyrir mikinn pening. Þannig að ég þarf helst að fá mig lausan frá Bochum til þess að þeir geti gert við mig samning," sagði Bjarni sem gerði þriggja ára samning við Bochum síðasta sumar og á því tvö ár eftir af samningi sínum við þýska félagið. Hann er ekkert að stressa sig á framhaldiriu og tekur því sem koma skal en neitar því samt ekki að það væri gaman að vera áfram hjá Coventry. „Það væri mjög gaman. Þetta er góður staður og hér væri ég til í.að vera. Okkur líður mjög vel hérna. Þetta er skemmtilegra svæði en Stoke." Vil fá almennilegt tækifæri Bjarni var valinn á ný í íslenska landsliðið sem mætir Albaníu 31. mars næstkomandi. Hann vonast eftir því að geta sannað sig í leiknum. „Það er kominn tími á að ég fái almennilegt tækifæri með landsliðinu í stað þessa vara- mannahlutverks sem ég hef verið í. Það væri mjög gaman ef við bræðurnir fengjum allir að spila saman núna. Aðalmálið er að spila áfram vel með Coventry og þá fæ ég kannski tækifæri í Albaníu," sagði Bjarni sem er í toppformi og með sjálfstraustið í lagi. „Sjálfstraustið er í góðu lagi og ég er loksins kominn í fínt form enda er langt síðan ég spilaði knattspyrnu síðast af einhverju viti. henry@dv.is ' Sáttur hjá Coventry Bjarni Guðjónsson er hamingjusamur hjá Coventry og vill gjarna-; vera áfram. Hann stefnir einnig á að sanna sig með landsliðinu og vill fá almennilegt tdekifæri til þess. „Forráðamenn Coventry hafa tjáð mér að þeir vilji halda mér en svo er spurning hvað Bochum gerir. Coventry á lítinn pening og getur ekkikeypt mig fyrir mikinn pening þannig aðég þarfhelst að fá mig lausan frá Bochum. leikinn. Hann gerði grín að ljósa hárinu mínu sem og húðflúrunum sem ég er með. Ég er nú reyndar vanur því frá strákunum í liðinu. Ég stóðst freistinguna að svara fyrir mig á vellinum en það sem ég vil segja núna er að miðað við hvernig hausinn á honum lítur út þá myndi hvaða hárkolla sem er fara honum vel. Það er synd að ég skuli ekki spila um helgina því ég myndi gjarnan vilja segja það við hann augliti til auglitis,“ sagði Savage. Það verða nú að teljast aumir taktar hjá Savage að láta slfkt frá sér fara í fjölmiðlum og lykta þessi ummæli af hræðslu við Mills. Hann hefði vart þorað að segja þetta ef hann væri að fara að spila. Nú er bara spurning hvemig Mills svarar fyri sig. Boltinn er hjá honum. henry@dv.is Flottur með kolluna Eins og sja má a þessori sam- settu mynd væri Danny Milis mun myndartegri með hárkolíu. Sumir hafa sagtað hann likist David Beckham með lokkana. Cole kvartar yfir Souness Graeme Souness, stjóri Blackburn, er lentur í hatrammri deilu við vinina og framherjana, Dwight Yorke og Andy Cole. í fyrra- dag sögðum við ykkur frá rifrildum á milli Yorke og Souness og í gær lagði Andy Cole inn formlega kvörtun til samtaka atvinnuknatt- spyrnumanna vegna Souness - hann segir að Souness leggi sig í einelti. Cole segist hafa fengið ósanngjarna meðferð hjá Souness og hafi verið neitað um að taka út frídaga sem hann átti inni. Þetta er svo sem ekki í fyrsta skipti sem slíkt væl heyrist frá Cole því þegar ferillinn byrjaði kvartaði hann yfir George Graham. Svo kvartaði hann yfir Glenn Hoddle varðandi enska landsliðið og nú er komið að Souness. Sindair á leið frá Leicester Umboðsmaður Franks Sinclair segir að dagar hans hjá Leicester City séu brátt á enda. Samningur hans við félagið rennur út í sumar og þeir eiga ekki von á nýju samningstilboði. „Það er mjög ólíklegt að hann fái nýjan samning," sagði umbinn. „Atvikið á La Manga hjálpar eflaust ekki til en allir vita samt að Frank er leikmaður sem hægt er að treysta á.“ Umboðsmaðurinn neitaði því samt að Sinclair hefði þegar verið beðinn að yfir- gefa félagið en hann hefur engar áhyggjur af því að það verði eitthvað mál að finna nýtt félag fyrir Frank. Bann Rios ekki stytt Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englands, fékk ekki þá ósk sína upp- fyllta í gær að geta notað Rio Ferdinand á EM. Áfrýjun Rios gegn átta mánaða banninu var þá tekin íyrir og þriggja manna nefnd á vegum enska knattspyrnusambandsins sá enga ástæðu til að stytta bannið. Rio verður því í banni til 20. september. t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.