Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2004, Blaðsíða 31
Kjallari
DV Síðast en ekki síst
FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 31
Forsetaframbjóðandi óttast
hryðjuverk í Smáralind
Ástþór Magnússon
Óttasleginn frambjóðandi.
„Smáralindin er augljós kostur
fyrir hryðjuverkamenn eins og versl-
unarmiðstöðvar út um allan heim,“
segir Ástþór Magnússon, forseta-
frambjóðandi. í viðtaii á vefritinu
mir.is varar Ástþór við því að íslend-
ingar megi ekki sofna á verðinum í
ljósi nýlegra hryðjuverka á Spáni.
Ástþór segir verslunarmiðstöðv-
ar, næturklúbba og Alþingi hugsan-
leg skotmörk í hryðjuverkastríðinu
og bendir á að ísland sé berskjaldað
ef til átaka komi.
í viðtalinu talar Ástþór einnig um
stöðuna sem íslensk flugfélög eru í á
erlendri grund. Segir hann að Ad-
anta flugfélagið í mestri hættu, í ljósi
þess að við séum enn á lista hinna
viljugu þjóða.
„Eftir efnavopnafund íslenskra
hermanna í írak og hernaðarbrölt ís-
lenskra farþegaþotna er ekki ólíklegt
að við séum líkleg skotmörk hryðju-
verkamanna," segir Ástþór í viðtal-
inu á mir.is en hann var nýverfð
sýknaður í Hæstarétti eftir að hann
benti á að íslensk flugfélög væru í
hættu vegna hryðjuverka.
Þegar DV hafði samband við Ást-
þór svaraði hann því til að besta
vörnin gegn stríðsrekstri sé að vera
friðelskandi þjóð og koma ekki ná-
lægt hernaði. „Því mun ég berjast
fyrir í komandi kosningum," segir
hann.
Íraksstríðinu grautað saman
við hryðjuverkastríð
Ekki er annars að vænta en að
Zapatero, hinn nýi forsætisráðherra
Spánar, efni loforð sín og kalli her-
inn frá írak. Trúnaður hans er við
kjósendur sína, ekki Bush og Blair
hvað sem þeir hamast. Hins vegar
eru ekki nein teikn um að hann ætli
að vera linur í baráttunni gegn
hryðjuverkum. Þvert á móti bendir
margt til þess að viðbúnaður Aznar-
stjórnarinnar gegn íslömskum fas-
istum heimafyrir hafi verið lélegur. Á
Zapatero munu dynja ásakanir um
svik og undanslátt. Líkt og áður seg-
ir liggur feillinn í þeirri röksemda-
færslu í því að grauta sífellt saman
Íraksstríðinu og stríðinu gegn
hryðjuverkum - að gera úr þessu
einn og sama málstaðinn. Það er
flækja sem erfitt er að komast úr. Á
afmæli stríðsins á laugardag fara
mótmælagöngur um borgir Evrópu
og þá verður ekki síst spurt hvort
innrásin í frak hafi spilað upp í
hendurnar á bin Laden og illþýði
hans, gert starf þess auðveldara en
baráttuna gegn terrorisma erfiðari,
langvinnari og hræðilegri...
Pétur Ormslev var einn albesti
knattspyrnumaður íslands á ní-
unda áratug síðustu aldar. Hann lék
lengst af með Fram en var einnig
atvinnumaður um tíma hjá þýska
liðinu Fortuna Dusseldorf. Pétur
lék 41 landsleik fyrir íslands hönd á
árunum 1979-1991 og skoraði í
þeim fimm mörk. Hann var þrívegis
íslandsmeistari og fimm sinnum
bikarmeistari með Fram og reyndi
síðan fyrir sér í þjálfun með mis-
jöfnum árangri. Pétur og sögnkon-
an Helga Möller mynduðu á si'num
tíma eitt heitasta par Islands en eru
skilin að skiptum í dag.
Iiann hefur fyrir alllöngu sagt skilið
við knattspyrnuna og starfar nú hjá
þýska líftryggingarisanum Allianz
þar sem hann er tjónafulltrúi.
• Og talandi um Einar Bárðarson,
þá er hann kominn til landsins eftir
för til Bretlandseyja og víðar. Er
hann nú tekinn til óspilltra mála og
mun fljótlega draga til tíðinda hvað
varðar stúlknabandið sem hann er
með í burðarliðnum. Er búið að
fækka úr hundrað í tæplega tíu, en
þrjár til fjórar munu verða ráðnar til
þess að skipa stelpuband - sem að
sögn mun gera allt brjálað í sumar...
• Áhorfendur Stöðvar 2 geta nú aft-
ur farið að fylgjast með hvernig
söngkonunni Ruth Reginalds geng-
ur í hinu mikla og fræga átaki sínu.
Hún er nú nýlega komin frá Or-
lando þar sem hún var að syngja .
fyrir íslendingafélagið í Florida við
frábærar viðtökur. Mættu yfir 150
manns og skemmtu sér hið besta.
Með Ruth í för vorú snillingarnir
Magnús Kjartansson píanóleikari og
VUhjálmur Guðjónsson
gítarleikari...
• Einhver besti íþróttafréttamaður
landsins er tvímælalaust Guðjón
Guðmundsson kallaður Gaupi.
Hann ku hafa verið spurður að því á
förnum vegi, í tengslum við barátt-
una um enska boltann, hvort hann
væri ekki að byrja á Skjá einum
fljótlega. Gaupi var fljótur til svars
og hafði þetta fram að færa: „Þegar
þú ert búinn að vera í bestu hljóm-
sveitinni í ellefu ár ferðu ekki að
spila með lókalbandi í Glæsibæ um
helgar, jafnvel þó þú fáir að syngja
öll lögin." Virðist sem svo að tauga-
veiklun við Lingháls í íþróttadeild-
inni vegna málsins sé orðum aukin
sé miðað við þetta...
Ofvitar og Íraksstríðið
^e^ivizw^vurúriny
JrcL
Dægrin eftir hryðjuverkaárásirn-
ar miklu í Madrid stóð José Maria
Aznar í því að hringja í ritstjóra
spænskra fjölmiðla til að fullyrða að
ETA hefði staðið á bak við ódæðið.
Stjórn hans beitti þrýstingi á sjálft
Öryggisráð SÞ til að það fordæmdi
basknesku samtökin. Þetta eru að
sönnu einhver kaldrifjuðustu við-
brögð við sorgaratburði sem maður
hefur orðið vitni að - þau lýsa van-
virðu við fórnarlömb hryðjuverksins
og ekki síður við milljónir syrgjandi
Spánverja. Allt skyldi gert til að klína
þessu á Baskana og hanga svo á því
fram yfir kosningar. Þessum stjórn-
arliðum var ekki sorg í huga heldur
undirferli. Svona blettur verður
aldrei afmáður af annars nokkuð
glæstum stjórnmálaferli Aznars.
Kosningarnar snerust líka um
aðra lítilsvirðingu Aznars við þegna
sína. Samkvæmt skoðanakönnun-
um voru allt að 90 prósent Spánverja
á móti innrásinni í írak. Óvíða var
andstaðan meiri. Samt notaði Aznar
embættið sem hann var kjörinn í til
að skipa Spáni fremst í flokk hinna
staðföstu þjóða. Maður spyr: hvað-
an taldi hann sig hafa valdið til að
gerast nánasti bandamaður Bush -
hvað vissi hann svo miklu betur en
spænska þjóðin?
Stríðið löngu ákveðið
Eftir á að hyggja getur það varla
hafa verið margt. Tengsl innrásar-
innar í Irak við hið svonefnda stríð
gegn hryðjuverkum sem hófst 9/11
2001 verða stöðugt grautarlegri. Nú
bendir allt til þess að mennirnir í
kringum Bush hafi verið búnir að
ákveða Íraksstríðið löngu fyrir árás-
ina á World Trade Center. Hryðju-
verkin 11. september voru notuð
sem átylla til að gera upp gamlar
sakir við Saddam Hussein. Önnur
kaldrifjuð blekking í skjóli hörm-
hryðjuverkaógn hér á útnára verald-
ar er óþarfi - sérsveit lögreglunnar
mun sem fyrr ekki hafa önnur verk-
efni en að afvopna menn sem veifa
haglabyssum í ölæði. Það er til-
gangslaust að tala um að þetta breyti
einhverju um veru varnarliðsins. En
víglínan hefur færst nær. Staðir sem
við venjum komur okkar á eru í mik-
illi hættu. Menn telja að varla sé
neinn vafi á því að framið verði stórt
hryðjuverk í London áður en kemur
að næstu kosningum í Bretlandi.
Hvenær kernur röðin að Tony
Blair?
Friðþæging - griðkaup - eru orð
sem renna upp úr nótum Bush-
stjórnarinnar í háðungarskyni við
spænska kjósendur. Slíkt orðaval
endurómar í pistlum, útvarpi og
sjónvarpi, um alla heimsbyggðina,
rétt eins og Spánn hafi gerst banda-
maður A1 Queida við það að setja
flokk Aznars af.
Þetta er frekjulegt tal og lýsir fá-
fengilegum skilningi á lýðræðinu. í
því felst að við eigum í slíku undan-
þáguástandi í heiminum að lýðræði
sé í raun veikleikamerki; að spænska
þjóðin hafi svikið með því að hlýða
dómgreind sinni. í lýðræðisríkjum
eiga þeir sem bregðast að fá á bauk-
inn. Eða er verið að auglýsa eftir
einsflokkskerfi þar sem ráða ríkjum
ofvitar, pólitíkusar sem telja sig vita
svo miklu betur um alla hluti að
þeim er heimilt að afvegaleiða fólk,
dreifa rangfærslum, halda aftur
upplýsingum, villa og blekkja -
væntanlega í krafti þess að tilgang-
urinn helgi meðalið, þeir hafi merki-
leg markmið sem almenningur er
ófær um að fatta? Einmitt þannig
finnst manni Aznarstjórnin líta út
eftir fallið - það er spurning hvenær
röðin kemur að Tony Blair?
Fermingargjöf sem innborgun á rúmi
íslensku springdýnurnar frá Ragnari Björnssyni endast lengur
Við framleiðslu á dýnunum eru notaðar lokaðar fjaðrir sem koma I veg fyrir að
klæðning dýnunnar skemmist við áralanga notkun. Algengur endingartlmi RB
springdýna er tólf til sextán ár.
WESEtai
gagnrýnir málatilbún-
aðinn kringum
Íraksstríðið harðlega
ungaratburða. Efasemdir um heil-
indin í stríðinu gegn hryðjuverkum
hrúgast upp.
Fyrstu stríðsrökin, að Saddam
ætti gereyðingarvopn sem hann
gæti jafnvel beitt á 45 mínútum, eru
löngu ónýt. Tal um tengsl hans við
A1 Queida reyndist líka marklaust -
þvert á móti ríkti fjandskapur þar á
milli. Þetta var bara áróður. Eftir
standa þau rök að Saddam hafi ver-
ið vondur harðstjóri sem átti ekki
annað skilið en að vera settur af. Þau
voru hins vegar einna veigaminnst í
málflutningi þeirra sem vildu stríð -
enda er heimurinn fullur af ógeðs-
legum harðstjórum sem margir
njóta góðrar vináttu vestrænna
rflcja.
Nöturlegur veruleiki
Það eru ekki bara ástæður stríðis-
ins sem eru óljósar - strategían er í
meira lagi vafasöm. Nú á ársafmæli
styrjaldarinnar eru bandarískir her-
menn umsetnir bak við víggirðingar
í írak, með dollara sína og þyrlur,
meðan sprengjur springa allt í kring.
írak er .orðið að brennipunkti hins
íslamska heims; öfgamenn dragast
að málstaðnum eins og flugur að
skít. Bendir ekki allt til þess að stríð-
ið í Irak hafi magnað hryðju-
verkaógnina fremur en hitt, and-
stætt því sem menn eins og Aznar,
Blair og Bush héldu fram?
Við stöndum frammi fyrir býsna
nöturlegum veruleika. Ég geri svo
sem ekki ráð fyrir að óskapleg
hætta steðji að íslandi, tal um
Allt eftir þínum óskum
Rétt lengd, breidd og hæð rúmsins eykur þægindin. Stlfleiki springdýnunnar
fer einnig eftir þlnum óskum. Látið fagfólk leysa vandann.
Egill Helgason
|!
é