Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2004, Qupperneq 32
••♦v.
Fréttaskot Við tökum Wð fréttaskotum allan
sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem birtist, eða
er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. 550 5090
SKAFTAHLÍÐ 24 10S REYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMl550 5000
• Grjótmaðurinn Ami Johnsen
brá undir sig betri fætinum í til-
^ efni sextugsafmælis síns 1. mars
og fór í skemmtisiglingu á Karí-
bahafmu. Með Árna í för var
fangavörður af Kvíabryggju. Fyrir
aftan Áma í flugvélinni á leiðinni
heim sat svo heiðurs-
maðurinn og yfirlög-
regluþjóninn Geir Jón
Þórisson, sem einnig
hafði verið á skemmti-
siglingu á sjóræningja-
slóðum, en á öðru skipi en Árni.
Lögreglumaðurinn og íyrrum al-
þingismaðurinn eru gamlir félag-
ar úr Vestmannaeyjum og rifjuðu
upp gömul kynni þar sem leiðir
þeirra lágu saman. Samræður
þeirra komu öðrum farþegum
spánskt fyrir sjónir en rétt er að
41 árétta að Geir Jón var þarna ekki
sem yflrlögregluþjónn, heldur tók
hann forskot á sæluna og nýtti
hluta sumarfrísins áður en sum-
arið kemur í öflu sínu veldi hing-
að heim...
Árni hefði nú gaman af
grjótinu í Úralfjöllum!
3 ídofó
F
ViB rætur Uralfjalla Sigmar
skoðar kjðrkassa
„Híbýlin voru misgóð en fólkið dásamlegt," segir Sigmar Guð-
mundsson, fréttamaður í Kastljósinu, sem nýkominn er úr eftirlits-
ferð í rússneslcu borginni Izhevsk þar sem hann fýlgdist með fram-
kvæmd rússnesku forsetakosninganna.
Izhevsk stendur við rætur Úralfjalla og
er í 1.400 kílómetra fjarlægð frá Moskvu.
„Ég veit ekki hvers vegna ég var beðinn um
að fara. Mér barst ósk frá utanríkisráðu-
neytinu þessa efnis og sló til því ég hef
aldrei komið til Rússlands og hefði örugg-
lega aldrei komið til Izhevsk hefði ég ekki
farið nú,“ segir Sigmar sem var í hópi 400
eftirlitsmanna á vegum öryggis-og sam-
vinnustofnunar Evrópu, Sameinuðu þjóð-
anna og NATO.
„Ég þrammaði þarna á milli kjörstaða
með Ullu, 69 ára gömlum ellilífeyrisþega
frá Þýskalandi, og við sáum ekkert athuga-
vert. Þetta fór allt vel fram."
Fékkstu borgað fyrir þetta?
„Nei, engin laun, aðeins dagpeninga
sem ég þurfti að nota til að greiða fyrir gist-
ingu og túlk. En þarna er verðlag með þeim
hætti að einhver afgangur varð."
Sigmar er mjög ánægður með ferðina til
Rússlands sem stóð f viku. Minnisstæðast
er honum fólkið í sveitum landsins sem lif-
ir við þröng kjör en hefur lífsneista sem gló-
ir ekki síður en annars staðar í veröldinni
þar sem fólk hefur meira umleikis: „Þó er
Izhevsk milljónaborg sem lengst af var lok-
uð útlendingum: „Þarna var voru framleidd
vopn á Ráðstjórnartímanum og borgin því
lokuð öðrum en þeim sem þar bjuggu eða
áttu þangað nauðsynleg erindi. Þetta er
merkileg borg," segir Sigmar í Kastljósinu.
Sigmar i Kastljósinu
Vor beöinn um oð hafa eftirlit rned
forsetGkosningunum í Hússlandi
en vei: ekki hýers vegna.
1*.
Föstudag. 19. mars
Hljósmsveitin
Flottur dansleikur á
frábærum stað!
Ekki mi$sa
Stórhöfði 17 -110 Reykjavík - Sími 567 3100 - Fax 567 3150 - klubburinhíœklubburfáh.is -www.klubburinn.is
W