Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1958, Blaðsíða 15
TÍMARIT
VERKFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS
1. hefti
19 58
43. árg.
Virkjun Ef ra- Sogs
Erindi flutt í VFl miðvikudaginn 27. nóv. 1957.
Eftir Steingrím Jónsson, rafmagnsstjóra
1. Fyrstu ráðagerðir uin virkjun i Sogi.
Virkjun Efra-Sogs úr Þingvallavatni á sér lengri
sögu en virkjun Sogsfossanna sjálfra. Menn fengu
snemma augastað á virkjun Sogsins, og þá var það eink-
um Efra-Sogið, sem um var hugsað. Einar skáld Bene-
diktsson stofnaði félag um síðustu aldaniót, Icelandic
Water Power Exploration Syndicate, Ltd., er hafði á
hendinni, um þriggja ára skeið, vatnsréttindi jarðarinnar
Ulfljótsvatn.s, en félagið missti þau réttindi, af því að
ekkert var aðhafst um beizlun Sogsins, sem Einar
nefndi svo. Þá tók við Fossafélagið Island, er á fyrsta tugi
þessarar aldar lét rannsaka vatnsaflið i Sogi og gaf út
bók um rannsóknirnar 1911.
2. Virkjun FUiðaámia og Sogið.
Þegar rœtt var um virkjun Elliðaánna í bæjarstjórn
Reykjavíkur 1916 til 1918, var einnig rætt um virkjun
> Sogi, og norskt verkfræðingafélag ,,De forenede inge-
niörkontorer" i Osló, var fengið til að láta í té álitsgerð
um virkjunarskilyrðin. Þeir svöruðu í stuttu máli því,
að 15000 manna borg væri það ofvaxið að ráðast í virkj-
un í Sogi. Lögðu þeir eindregið til að virkja Elliðaárnar
með 5000 hestafla stöð eða 3500 lrw. Skyldi það kosta
2,6 millj. og vera fjárhagslega öruggt. Borgarstjórn
þótti fjárhæð þessi of há. Taldi hún bæjarsjóði ofvaxið
að ráðast í svo stórt fyrirtæki. Var því valin minni virkj-
un með tveim vélasamstæðum, annarri 500 hestöfl, hinni
1000 hestöfl eða samtals 1000 kw afl í fyrstu.
3. Fyrsta áætlun um Efra Sog.
Meðan á þessu stóð barst þáverandi ráðherra, Jóni
Magnússyni, bréf frá Etatsrád N. C. Monberg i Kaup-
mannahöfn, en það var hann, sem byggði Reykjavíkur-
höfn og síðar Vestmannaeyjahöfn og útvegaði til lánsfé.
Með bréfi Monbergs var frumáætlun um virkjun í Efra
Sogi. Skyldi það kosta 8 millj. kr. Fengjust þá rúm
•- ’.....
,-v ý' ,
SOO RtvER
• PROPOSED
EFRA SOC POWER PROJECT
>«S7
« ,kn to ReykitYlk
UEFUOTSVAtft:
.UOSAFOSS POV.ER PLANT V?
. «J4> 1517 . W
mmr ,
IRArOSS-KISTlíFOSS
RT' POWER PLANT •
K* 1950 .• 1951
♦V jf ^óo'KiycR.
1. mynd. Virkjunaraðstaðan. Hæðarmunur vatnanna Þingvalla-
vatns op: Úlfljótsvatns or 22 m.