Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1963, Blaðsíða 4

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1963, Blaðsíða 4
98 TlMARIT VPl 1963 ammóníak. Úr ammóníakinu er síðan hægt að fram- leiða ýmis efnasambönd og fá þannig mismunandi teg- undir köfnunarefnisáburðar, og fer það eftir aðstæðum á hverjum stað, hvað framleitt er. Helztu efnasambönd- in, sem framleidd eru, og hráefni, sem þau eru gerð úr, eru eftirfarandi: 1) ammónínumsúlfat, sem framleitt er úr ammóníaki brennisteinssýru. 2) ammóníumnitrat, sem framleitt er úr ammóníaki og saltpéturssýru. 3) urea, sem framleitt er úr ammóníaki og koldíoxíði. 4) kalsíumnítrat, sem framleitt er úr kalsíumkar- bónati og saltpéturssýru. Þessi efnasambönd eru öll algengar tegundir köfnun- arefnisáburðar. Einnig er algengt að blanda saman tveim eða fleiri ofannefndra tegunda eða öðrum efnum, og fást þá áburðartegundir eins og ammonínumsúlfat- nítrat og kalk-ammonsaltpétur. Svo sem rétt var drepið á, er vatnsefnið, sem þarf til ammóníakframleiðslunnar, framleitt á ýmsa vegu. Al- gengast er nú á dögum að framleiða það úr olíu eða jarð- gasi, og þarf til þess margbrotnar verksmiðjui', en aftur á móti tiltölulega litla orku í formi raforku. Hins vegar er tiltölulega auðvelt að framleiða vatnsefni úr vatni með raforku, en yfirleitt er sú leið ekki samkeppnisfær við aðrar aðferðir, nema mikið af ódýrri raforku sé fyr- ir hendi og langt sé til fanga um oliu eða jarðgas. Þessi skilyrði eru t. d. fyrir hendi í Noregi og sumum hlut- um Kanada, og framleiða t. d. Norðmenn allt sitt vatns- efni úr vatni á þennan hátt, en köfnunarefnisáburðar- iðnaður þeirra er mikill að vöxtum. Og þetta er einmitt sú aðferð, sem notuð er hér á landi. Ef dregið er að lokum saman það, sem nú hefur verið rakið stuttlega um framleiðslu köfnunarefnisáburðar nú á dögum, þá er það undirstöðuatriði við mestalla fram- leiðslu slíks áburðar nú að framleiða ammóníak. Úr því skilja leiðir eftir aðstæðum á hverjum stað og eftir því hvaða áburðartegund á að framleiða. Á því eru hins vegar ekki tök í þessu erindi að ræða um hinar ýmsu leiðir og áburðartegundir. Til þess vinnst ekki tími. Hins vegar verður nú gerð nokkuð fyllri grein fyrir fram- leiðslu köfnunarefnisáburðar eins og hún gengur fyrir sig í áburðarverksmiðjunni í Gufunesi og þeim áburði, sem þar er framleiddur. En áður en það er gert, þykir rétt að rekja að nokkru forsögu þess, að áburðarverk- smiðja var reist á Islandi. Áburðarverksmiðja á Islandi. Það eru nú um 27 ár liðin, síðan fyrst var íhugað af alvöru að hefja framleiðslu áburðar á Islandi, því það var árið 1935, sem fyrsta áætlun um slika framleiðslu hérlendis var gerð. Sú áætlunargerð fór fram á vegum Skipulagsnefndar atvinnumála, en hún tók m.a. fram- leiðslu áburðar til meðferðar og afgreiðslu. Pékk nefnd- in danskan verkfræðing, Wadsted að nafni, til að athuga málið fyrir sig og gera nauðsynlegar áætlanir. Hinn danski verkfræðingur samdi ítarlega skýrslu um athug- anir sínar, og komst að þeirri niðui'stöðu, að framleiðsla bæði kalkammonsaltpéturs og alhliða, blandaðs áburð- ar (nitrophoska) gæti orðið vel samkeppnisfær við sam- bærilegar innfluttar áburðartegundir. Orku til fram- leiðslunnar ráðgerði Wadsted að fá frá orkuveri Sogs- virkjunarinnar — Ljósafossstöðinni — og átti að bæta við einni vélasamstæðu þar til að sjá verksmiðjunni fyrir raforku. Á grundvelli þessarar áætlunar vai' síðan flutt á Alþingi 1935 fiumvarp um byggingu áburðarverk- smiðju, er ríkið ætti og bundið gæti 500 tonn á ári af köfnunarefni i áburði. Flutningsmenn þessa frumvarps voru þeir Bjarni Ásgeirsson, Bergur Jónsson og Páll Zóphoníasson. Frumvarpið náði hins vegar ekki fram að ganga. 1 Hugmyndin um áburðarverksmiðju lá nú niðri um nokkurra ára bil af hálfu þess opinbera, en ýmsir aðilar aðrir, sem áhuga höfðu á málinu, voru með það til athugunar og umhugsunar. Þannig kom fram mjög ^ athyglisverð hugmynd um notkun afgangsorku til fram- leiðslu vatnsefnis fyrir áburðarverksmiðju á fundi í VFl í desember 1942. Urðu umræður um málið miklar og hinar athyglisverðustu. Þessa hugmynd setti Ásgeir Þorsteinsson, verkfr. fram, en hann var þá og er enn einn af meðlimum Rannsóknarráðs ríkisins. Svo sem rakið var hér á undan, var í áætlunum um áburðarverk- smiðju frá 1935 ráðgert, að sett yrði upp í Ljósafoss- stöðinni sérstök vélasamstæða, er framleiddi orku fyrir verksmiðjuna, og átti sú orka að kosta eins lítið og komizt yrði af með til að standa straum af aukningu vélakostsins í stöðinni. Afgangsorkuhugmyndin var hins vera allt annars eðlis. Hún gerði ráð fyrir, að orkuverið léti af hendi orku til vatnsefnisframleiðslu vegna áburð- arframleiðslu fyrst og fremst á þeim timum sólarhrings- ins, þegar lítil eftirspurn væri fyrir orkuna til almenn- ingsþarfa, þ.e. á nóttunni og utan mestu álagstíma á daginn. Með þessu ynnist tvennt: vélar orkuversins yrðu fullnýttar allan sólarhringinn, og ekki þyrfti að bæta við vélum sérstaklega vegna ábui'ðarframleiðslunnar, sem svo aftur leiddi af sér lægra verð orkunnar til fram- ( leiöslunnar en ella. I umræðunum, sem urðu um málið í félaginu, kom i ljós, að nægjanleg afgangsorka mundi vera fyrii' hendi þá þegar frá Ljósafossstöðinni til að reka verksmiðju af þeirri stærð, sem ráðgerð hafði verið í áætlun Wadsteds, eða jafnvel enn stærri verksmiðju. Þá var einnig á það bent, að framleiðsla vatnsefnis væri einmitt sérlega heppileg til að nýta afgangsorku, því hún þyldi vel miklar sveiflur á orkuflutningi til fram- leiðslunnar. Næst gerðist það svo i málinu, að árið 1943 sneri þá- verandi atvinnumálaráðherra, Vilhjálmur Þór, sér til bandarísks verkfræðifyi'irtækis með beiðni um, að gerð yrði athugun á framleiðslu áburðar á Islandi eins og að- stæður væru þá. Athugunin var framkvæmd og áætl- un gerð af verkfræðingi að nafni Rosenbloom. Leizt honum vel á aðstæður til áburðarframleiðslu hér- lendis, en gerði hins vegar ekki ráð fyrir að nota af- gangsorku til framleiðslunnar. Á grundvelli þessarar ^ áætlunar lagði Vilhjálmur Þór fram á Alþingi 1944 frumvarp um byggingu áburðarverksmiðju, er gæti bundið 1100 tonn á ári af köfnunarefni í áburði. Þetta frumvarp náði heldur ekki fram að ganga frekar en frumvarpið 1935. ^ Árið 1945 tók Nýbyggingaráð málið upp og fékk dr. Björn Jóhannesson, verkfr., til að kynna sér áburðar- framleiðslu erlendis með hliðsjón af íslenzkum staðhátt- um. Árið 1946 skipaði ráðið svo nefnd til þess að vinna i málinu og kanna það frá öllum hliðum. 1 nefndinni áttu sæti þessir menn: Dr. Björn Jóhannesson, er var formaðui' nefndarinnar, Ásgeir Þorsteinsson, Trausti Ólafsson, verkfr., og Bjarni Ásgeirsson, alþ.m. Nefnd þessi samdi ítarlega greinargerð um athuganir sinar og tók m.a. upp hugmyndina um notkun afgangsorku sem grundvöll að áburðarframleiðslu, og taldi nefndin, að það

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.