Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1963, Blaðsíða 9

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1963, Blaðsíða 9
TlMARIT VPI 1963 103 síðustu árum og: ekkert útlit fyrir, að hún verði það ekki áfram. Áburðarverksmiðjan var á sínum tíma, þegar hún var skipulögð og teiknuð, mjög vel úr garði gerð, hvað þetta atriði snertir, en liklegt er, að væri verk- smiðjan byggð nú í dag, yrði hún að miklum mun sjálf- virkari en nú er og skipulag stjórnkerfisins annað. Þá var í hverri verksmiðju fyrir sig gert ráð fyrir einni stjórnmiðstöð, þaðan sem hægt væri að fylgjast með rekstrinum og hafa á hendi stjórn framleiðslunnar. Hins vegar er mjög sennilegt, að við skipulagningu svona verksmiðju nú, væri sett upp ein allsherjar stjórnmið- stöð fyrir allar verksmiðjurnar, og færi meira eða minna sjálfvirk stjórn framleiðslunnar fram þaðan, og væri verksmiðjunni þá stjómað af mjög fáum mönnum. Sem dæmi um það, hve langt menn eru komnir i sjálf- virkni á sviði ammoníakframleiðslu, má geta þess, að nú er starfandi í Bandarikjunum verksmiðja, er fram- leiðir ammoníak úr jarðgasi og lofti, sem er algjörlega sjálfvirk undir stjórn reiknivélar, allt frá því að jarð- gasið fer inn í vatnsefnisverksmiðjuna, þar til amm- oníakið kemur út. Slík er tæknin orðin á þessu sviði nú, og þó aðeins á byrjunarstigi, hvað stjórn reiknivéla á heiium verksmiðjum áhrærir. Fleiri dæmi mætti nefna um þetta atriði, en verður ekki gert að þessu sinni. Hins vegar er fullvíst, að á næstu árum og áratugum munu stjórntæknin og sjálfvirknin gegna æ mikilvæg- ara hlutverki í atvinnulífi Islendinga, og er dæmi það, sem nefnt var um sjálfvirkni í ammoníakiðnaðinum, táknrænt fyrir það, sem kemur í þessum efnum. Sementsframleiðsla og sementsverksmiðja Útvarpserindi flutt 9. desember 1962 í erindaflokknum „Tækni og verkmenning". Eftir dr. Jón E. Vestdal, efnaverkfræðing Á þeim rúmum fjórum árum, sem framleitt hefur verið sement í verksmiðjunni á Akranesi, hafa verið afgreiddir frá henni um 6.400.000 sekkir af sementi til innlendra aðila, eða um 320 þús. tonn. Ef miðað er við verðlag i landinu eins og það er nú, er verðmæti þessarar fram- leiðslu einnar um 400 millj. kr. Ef engin framleiðsla hefði átt sér stað í verksmiðjunni á Akranesi — hún ekki verið til — hefði þetta sama magn örugglega verið flutt til landsins frá útlöndum. Fyrir það hefði þurft að greiða í erlendum gjaldeyri — aftur miðað við núverandi gengi íslenzku krónunnar — um 280 millj. ísl. kr., og er þá gert ráð fyrir, að flutn- ingur til landsins sé greiddur í erlendum gjaldeyri, enda getur skipastóll landsins ekki fullnægt flutningum að og frá landinu eins og nú er, og þá því siður ef hið mikla magn sements bættist við. Til framleiðslu á þessum 320 þús. tonnum af sementi hefur verksmiðjan þurft að kaupa erlendan varning, einkum olíu, skeljasand, umbúðir, gips og varahluti. Fyrir það hafa verið greiddar í erlendum gjaldeyri um 90 millj. ísl. kr., og er enn miðað við núverandi gengi krónunnar. Á þessum fáu árum, sem sement hefur verið framleitt í landinu, hafa þvi sparazt 190 millj. ísl. kr., og er það meira en nemur öllum erlendum stofnkostn- aði verksmiðjunnar á núverandi gengi. Á þessu stutta tímabili hefur verksmiðjan því í raun og veru gert meira en greiða allan þann erlenda stofnkostnað, sem í hana var lagður. Og enn á hún væntanlega eftir að spara miklu hærri fjárhæðir í erlendum gjaldeyri, ekki sizt eftir að farið er að dæla skeljasandi til verksmiðjunnar með íslenzku skipi, en kostnaður við skeljasandsnámið kostar árlega mikið fé, og hefur það fram til þess verið greitt í erlendum gjaldeyri. Nú er með þessu ekki nema hálfsögð sagan. Almenn- ingur í landinu, notendur sementsins, spyrja ekki fyrst um mikil framleiðsluverðmæti og sparnað í erlendum gjaldeyri. Þeir spyrja að sjálfsögðu fyrst og fremst um það, sem að þeim snýr, og er slíkt ekki nema eðlilegt. Hvert er verðið, sem greitt hefur verið fyrir sementið, er það sambærilegt við verð á erlendu sementi, ef inn hefði verið fiutt? Og er hin innlenda framleiðsla sam- bærileg við það, sem inn hefur verið flutt og inn var flutt áður en verksmiðjan tók til starfa? Neytendur væru vissulega óhyggnir, ef þeir huguðu ekki fyrst og fremst að þessu tvennu. Fyrst verðlagið. Áður en hafin var framleiðsla sements hér á landi hafði verð þess verið svipað á helztu höfnum umhverfis landið, einna lægst í Reykjavík og einum til tveimur stærstu höfnum utan Reykjavíkur, en annars staðar nokkru hærra vegna aukins flutningskostnaðar á hinar minni og lakari hafnir. Þegar farið var að selja hina innlendu framleiðslu, var það sjónarmið rikjandi hjá ríkisstjórn og verksmiðjustjórn, að þess skyidi gætt við verðlagningu sementsins, að enginn landsmanna hefði óhag af tilkomu hennar, heldur nokkum hag. Var því verð á íslenzka sementinu ákveðið með hliðsjón af verði á því erlenda sementi, er þá var hér til sölu: og verð íslenzka sementsins ákveðið lítið eitt lægra en hins er- lenda og verðlagningunni ennfremur þannig fyrir komið, að verð sementsins yrði svipað hvarvetna á landinu, eins og verið hefði undanfarna áratugi. Þessi sjónarmið eru enn ríkjandi í sambandi við verð- lagningu sementsins. Þegar verðbreytingar hafa orðið á sementi á undanfömum fjórum árum, hefur ekki verið hægt að styðjast við verð á erlendu sementi, sem hér væri til sölu, eins og hægt var að gera hið fyrsta skipti. Þess í stað hefur verið stuðzt við verðútreikninga Hagstofu Islands á innfluttu sementi og verðið ævinlega verið á- kveðið lægra en þessir útreikningar sýndu, og hefur mun- I

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.