Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1963, Side 24
118
TlMARIT VFl 1963
vedtatt en konsesjonslov, slik at enhver grunneier nu har
rett til det vann, sem flyter over hans grunn.
I 1920 brukte jeg 14 dage med lastebát og hest fra
Bergen til Dettifoss.
Idag kan den samme tur gjores pá noen timer med
fly. Vakre turistbrochyrer med vidunderlige billeder har
oppgaver over ruter og nye, praktfulle hoteller.
Jeg reiste over Island med fly i 1960, og skulle da
besokt Reykjavik, men flyet fra U.S.A. fikk et motor-
uheld, sá vi mátte returnere og blev et dogn forsinket,
s?„ oppholdet i Reykjavik mátte sloyfes.
Jeg vil anbefale alle, som har anledning, til á ta en
tur over Island. Jeg harer, at telefonkatalogen frem-
deles er innrettet alfabetisk efter fornavn, og det er
mange interessante og morsomme ting á se. De som
reiser utover landet, vil fá se meget, som minder om
det gamle Island, Sagaoen, hvor mange nordmenn i sin
tid slog sig ned.
Tillaga um framíðarskipan teiknikennslu
við verkfrœðideild Háskóla íslands
NEFNDARÁLIT
Með bréfi Verkfræðingafélags Islands dags. hinn 17.
maí 1962 voru undirritaðir tilnefndir í nefnd til þess að
gera tillögu um frambúðarskipan teiknikennslu við verk-
fræðideild Háskóla Islands.
Fyrirhugaðar eru nú breytingar á heildarskipan
kennslu við verkfræðideild H.l. Er þá ætlunin að sam-
ræma verkfræðinám hér á landi við kennsluskipan sem
flestra erlendra tækniháskóla. Helztu fyrirmyndir eru
þá tækniháskólar á Norðurlöndum og í Vestur-Þýzka-
landi.
Nefndarmenn hafa aflað nokkurra upplýsinga með
viðtölum og gagnasöfnun um tilhögim teiknikennslu í
tækniháskólum fyrrnefndra landa. Er nefndin sammála
um eftirfarandi álit, en aðalatriði þess eru sem hér segir:
1. Teiknun sem sérstök námsgrein falli niður, en
kennsla í henni fari fram innan annarra námsgreina.
2. Fyrri hluti kennslu í teiknun falli undir námsgrein-
arnar hagnýta stærðfræði og geometri, en jafn-
framt verði veitt tilsögn í notkun teiknitækja og
um frágang teikninga.
3. Siðari hluti kennslu í teiknun falli undir hinar
tæknilegu greinar, þ.e. statik, vélhlutafræði, land-
mælingu og húsbyggingu.
Greinargerð.
Að því er varðar atriði 1 mun þessi tilhögun vera í
aðalatriðum ríkjandi í öllum fyrrgreindum löndum að
undanskilinni Danmörku. Námstilhögun í Danmörku er
hins vegar að breytast, en nefndinni er ekki kunnugt,
hver verður framtíðarskipan á teiknikennslu þar.
Tekið skal fram varðandi atriði 2, að þessi skipan hef-
ur í meginatriðum tíðkast hér hin síðari ár. Nefndin
telur nauðsynlegt, að kennari í bóklegum hluta náms-
greinar hafi einnig yfirumsjón með úrlausnum verkefna.
Um atriði 3 vill nefndin sérstaklega taka fram, að
tengja eigi að dómi nefndarinnar námsgreinina hús-
byggingu betur við verkfræðilegar námsgreinar kennsl-
unnar.
Benda má á, að verkefni í húsbyggingu og statik
geta að nokkru leyti verið sameiginleg. Ennfremur telur
nefndin, að í hinum almenna hluta kennslunnar í vél-
hlutafræði eigi að fara fram tilsögn í undirstöðuatriðum
málsetningar og notkun staðla. Eins og fyrr telur nefnd-
in nauðsynlegt, að kennarar hafi hver um sig yfirum-
sjón með úrlausnum verkefna í sinni námsgrein.
Nefndin álítur, að gera verði ákveðnar kröfur um frá-
gang úrlausna. Eðlilegt er, að tekið verði eitthvert tillit
til frágangs við einkunnagjöf.
Drög að stundafjölda.
Nefndin hefur lagt eftirfarandi drög að stundafjölda
til verklegra æfinga í einstökum námsgreinum. Stunda-
fjöldi samkvæmt námsskrám erlendra tækniháskóla hef-
ur verið hafður til hliðsjónar. Nefndarmenn hafa hins
vegar reynt að gera sér grein fyrir því, hve miklum
tíma meðalnemandi þarf að verja til verklegra æfinga.
Er sá tími jafnan nokkru meiri, og er eftirtalinn stunda-
fjöldi einkum miðaður við hann.
Geometri
Statik og húsbygging
Vélhlutafræði
Landmæling
110 stundir
110 —
60 —
20 —
Samtals 300 stundir
Þessi drög að stundafjölda eru miðuð við nám i bygg-
ingarverkfræði, en nemendur í þeirri grein verkfræði
hafa fram til þessa verið langflestir. Nefndin telur hins
vegar sjálfsagt að stefna að aukinni kennslu í vélhluta-
fræði, er hæfa myndi nemendum í véla- og rafmagns-
verkfræði. Þessi aukna kennsla gæti þá svarað til kennslu
í húsbyggingu og landmælingu, þeirrar er nú tíðkast og
einungis er ætluð nemendum í byggingarverkfræði.
Nlðurlagsorð.
Nefndarmenn álíta, að með nánari tengslum teikni-
kennslunnar við einstakar tæknilegar námsgreinar muni
nást bæði betri og hagnýtari árangur við námið.
Reykjavík, 10. júlí 1962.
Árni Snævarr, verkfræðingur,
Loftur Þorsteinsson, verkfræðingur,
Guðmundur Bjömsson, verkfræðingur.