Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1963, Side 30

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1963, Side 30
124 TlMARIT VFl 1963 með notkunarspennu í húsin. 1 bæjum eru spennistöðvar gjarnan í litlum húsum eða þær eru byggðar sem „úti- stöðvar", þ.e. tækin geta staðið úti án húss. Stundum eru stöðvar þessar líka inni í öðrum byggingum, einkum í verksmiðjum og ýmsum stórbyggingum. Frá spenni- stöðvunum liggja svo strengir eða línur með notkunar- spennu og frá þeim liggja svokallaðar heimtaugar í húsin. Þéttleiki notkunarinnar, svonefnt flatarálag (mælt í kW/km') er mjög mismunandi; mjög mikið í stórum bæj- um en lítið í úthverfum. Meðal flatarálag í allri Reykjavik er t.d. milli 1 og 2 MW/km2, en þó á sumum stöðum í bænum 20—30 MW/km2. í Kópavogi og á Seltjarnarnesi er flatarálagið 0.2—0.4 MW/km:. I sveitum, þar sem notkun er mjög dreifð, er orkunni dreift með ioftlínum, tíðast með 6 eða 11 kV spennu. 1 línurnar, eða í útlínur frá þeim, eru settir stauraspennar, sem spenna niður í notkunarspennu, venjulega einfasa 220 V spennu. Það er augljóst, að þar sem byggð er mjög strjál og notkun hvers notanda auk þess lítil, er alls ekki fjárhagslega hagkvæmt að tengja bæi við háspennukerfi, heldur ber að hafa þar litlar, sjálfstæðar rafstöðvar. Samkvæmt 10 ára áætluninni um rafvæðingu sveitanna, hafa Rafmagnsveitur ríkisins fylgt þeirri reglu, að lengd háspennulina í hverri sýslu megi ekki vera meiri en sem svarar 1 km á býli að meðáltali. Rafvæðing strjálbýls lands eins og Islands er dýr. Stofnfé héraðsrafveitna til sveita er fengið að % hlutum úr ríkissjóði, % eiga bændur að greiða með heimtauga- gjöldum, en % reyna héraðsrafmagnsveitur ríkisins að greiða með tekjum af sölu raforkunnar. Þetta tekst þó ekki og er stöðugur hallarekstur á þessum veitum. „Jafn- vægi í byggð landsins" er hugtak, sem lætur vel í munni, enda mörgum stjórnmálamanni tungutamt. En það stangast oft á við þá lausn mála, sem hagfræðilega og tæknilega er rétt. Við dreifingu raforku vex kostnaður á notanda upp úr öllu valdi, þegar f jarlægð milli notenda verður mikil. Á Islandi voru talin um 6000 býli í árslok 1961; og af þeim munu þá um 3400 (tæp 57%) hafa haft rafmagn en um 2600 ekki. Af hinum 57% fá 34% rafmagn frá Rafmagnsveitum ríkisins, 6% frá öðrum rafveitum en 17% frá eigin rafstöðvum. Gert er ráð fyrir, að þeim bændum sem utan rafvæðingarsvæðisins eru, séu veitt hagstæð lán úr raforkusjóði til að koma upp eigin raf- stöðvum. Talið er, að nú njóti um 92% landsmanna rafmagns. I bœjum er raforkunni ýmist dreift með loftlínum eða jarCstrengjum. Víða erlendis eru loftlínur meira notaðar, enda ódýrari. 1 stórborgum er þó nauðsynlegt að leggja kerfi sem jarðstrengjakerfi. Hér á iandi er yfirleitt stefnt að því í bæjum að dreifa raforkunni með jarð- strengjum, a.m.k. þar sem skipulag og götur eru komn- ar í fast horf. Jarðstrengir hafa ýmsa kosti fram yfir loftlínur og eru þessir helztir: 1. Bilanir eru fátíðari á jarðstrengjum, enda óháðir veðri. 2. Loftlínur geta truflað umferð og flutninga; spilla auk þess útliti gatna. 3. Erfitt er að leggja mjög gildar loftlínur; jarðstrengir eru því nauðsynlegir þar sem álag er mikið. 4. Reglur um fjarlægðir mannvirkja frá háspennuloft- línum geta takmarkað mjög byggð nálægt slíkum línum. Af hinum þrem þáttum raforkunnar, vinnslu, flutningi og dreifingu, er dreifingin minnst áberandi, einkum inni í bæjum þar sem kerfið er í jörðu. Þó er þessi hluti veitukerfisins, dreifikerfið, dýrasti hluti kerfisins, ekki sizt í rekstri. Spennistöðvarnar eru eins og hjörtu, hver í sínu hverfi. Starfsemi slíkrar stöðvar er nokkuð flókin eins og starf- semi hjartans. Háspennustrengir liggja þar inn og er spennan lækkuð í spennum niður í notkunarspennu. Báð- um megin spennisins eru rofar og vör til verndar strengj- um og tækjum. Þeir starfa á svipaðan hátt og rofar flutningslínanna, sem við ræddum um fyrr. 1 spennistöðv- unum eru ýmis önnur tæki, t.d. sérstakir rofar sem stjórna götuljósum, rjúfa straum til þeirra þegar nægi- lega bjart er orðið úti, en gefa þeim straum þegar dimm- ir. Út frá spennistöðinni liggja svo notendastrengir eins og æðar frá hjartanu. Þeir veita notendum hverfisins straum alveg eins og æðarnar veita næringu um líkam- ann. Venjulega eru dreifistrengirnir frá hverri spennistöð eins og geislar eða greinar á tré. Slíkt kerfi er kallað geislakerfi. Stundum verður of mikið spennufall i slíkum geislastrengjum, nema þeir séu því gildari. Og ef bilun verður á slíkum geislastreng missa allir notendur á hon- um straum, þar til viðgerð hefur farið fram. Til er annað fyrirkomulag á þessu, þannig að allir strengirnir eru tengdir saman eins og möskvuð net. Verður þá spennu- fall minna og færri notendur straumlausir þótt bilun verði. Slíkt kerfi er kallað möskvakerfi og er eitt slíkt kerfi í undirbúningi hér í Reykjavík. Til eru millistig milli þessara tveggja kerfa. Menn kannast við notkunarspennuna 220 V, en hafa væntanlega einnig nú á siðari árum heyrt talað um 380 V spennu. 1 rauninni er alltaf tilhneiging í þá átt að hækka spennu, bæði á háspennulínum og lágspennulín- um, enda fæst meiri flutningsgeta með hækkaðri spennu. Hér á landi eru ný notendakerfi því oftast byggð með 380 V spennu. Þessi spenna er flutt með fjórum leiður- um, þrem fasaleiðurum, sem kallaðir eru, og einum mið- eða núllleiðara. Spennan er þá 380 V frá fasa í fasa en aðeins 220 V frá fasa í núll, sem kallað er. öll einfasa notkun, svo sem venjuleg heimilisnotkun, er því sem fyrr á 220 V spennu. Sumar þjóðir t.d. Bandaríkjamenn hafa löngum notað 110 V, en tilhneiging er þar til spennu- hækkunar. Við notendakerfi í götum eru tengdar heimtaugar. Ef um jarðstreng er að ræða liggja þær undir kjallaragólfi, annars undir risi. Heimtaugarnar enda í svokölluðum varkassa, en í honum eru vör (öryggi), sem standa vörð um öryggi heimtaugarinnar. Um raflögn innanhúss ætla ég að vera fáorður. Frá varkassanum, sem áður er nefndur, liggur stofntaug í svonefnda töflu. 1 íbúðarhúsum er ein slík tafla fyrir hverja íbúð, auk þess ein tafla sameiginleg fyrir húsið. Frá töflunni kvislast margar greinar út um húsið og liggja að hinum ýmsu tækjum, ljósastæðum eða tengl- um. Á töflunni eru vör fyrir öllum greinum. Verður ekki ofbrýnt fyrir notendum að vör þessi eru sett í til að vernda leiðslur og tæki í húsinu. Þau brenna ekki nema eitthvað sé að. Ef öryggi brennur og sett er nýtt og það brennur líka strax, þá er eitthvað að, sem þarf að lag- færa. „Viðgerðir" vartappar („öryggi") eru hættulegir. Þjónusta rafveitna við notendur sína er afar mikilvæg. Varðandi byggingu og rekstur dreifikerfisins nær þessi þjónusta inn að varkassa að honum meðtöldum. Þar fyrir

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.