Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1963, Side 33
TIMARIT VFI 1963
127
ingar hafa komizt stutt á leið að sanna þessa tilgátu’),
en ein af veigamestu tilraunum, sem gerðar hafa verið
í þessa átt, er lýst i grein Leifs [F]. Um þessa gi’ein
segir E. P. Copson (höfundur bókar um Huygens’
Princip) í Mathematical Reviews 1957: ,,.... It gives
an extremely interesting account of his unpublished
researches during the last twenty years on Huygens’
Principle and on the conjecture of Hadamard. . . .“. 1
þessari grein eins og í greinunum [D—G] notar Leifur
nýja aðferð, sem hann kallar ,,the Diversor Method“.
Greinar þessar sýna á sannfærandi hátt þýðingu þess-
arar aðferðar fyrir hyperbólska differential óperatora.
Það væri því mjög æskilegt að sjá systematiska greinar-
gerð um þessa aðferð koma á prent. Sú greinargerð yrði
sérstaklega gagnleg, ef hún væri sett fram í samræmi
við teoríu Hadamards í [2], sem vissulega þarfnast betri
túlkunar en hún hefir fengið til þessa, og sem fáir nú-
lifandi stærðfræðingar munu hafa kynnt sér eins vel og
Leifur Ásgeirsson.
Heimildarit.
1. R. Courant und D. Hilbert, Methoden der Mathemat-
ischen Physik, Springer, Berlin, 1937.
2. J. Hadamard, Le probleme de Cauchy et les equations
aux derivees partielles lineaires hyperboliques, Her-
man et Cie, Paris 1932. (Fyrri útgáfa 1923).
3. F. John, Plane Waves and Spherical Means Applied to
Partial Differential Equations, Interscience, New York
1955.
’) Þess ber að geta, að K. Stellmacher [4] hefir sýnt
með dæmi, að „Hadamard’s conjecture" gildir ekki, ef
liðir af núlltu gráðu koma fyrir.
4. K. Stellmacher, Ein Beispiel einer Huygenschen
Differentialgleichung, Nachr. Akad. Wiss. Göttingen
1953.
Skrá yfir stœrðfrœðirit Leifs Ásgeirssonar.
A. Uber eine Mittelwertseigenschaft von Lösungen
homogener linearer partieller Differentialgleichung 2.
Ordnung mit konstanten Koefficienten, Math. Ann.
113 (1936) 321—346.
B. Ein Mittelwertsatz fiir die Lösungen von
n
i=l
angewandt auf zwei Potentialfunktionen, C. R. Cong-
er. Intern. Math. Oslo, 1936 51—53.
C. Uber Mittelwertgleichungen, die mehreren partiellen
Differentialgleichungen 2. Ordnung zugeordnet sind,
R. Courant Anniversary Volume, 7—20, Interscience
Publishers, New York 1948.
D. Divergence Expressions and Wave Functions in the
Theory of Partial Differential Equations, Technical
Report No. 5, ONR, University of California, Berke-
ley, 1956, 12 pp.
E. On Iterated Wave Equations, Technical Report No. 6,
ONR, University of California, Berkeley, 1956, 42 pp.
F. Some Hints on Huygens’ Principle and Hadamard’s
Conjecture, Communications on Pure and Appl. Math.
9 (1956) 307—326.
G. On Cauchy’s Problem for Linear Pærtial Differential
Equations of Second Order in Four Variables. Comm-
unications on Pure and Appl. Math. 14 (1961) 171—
186.
Nýir félagsmerm
Erlendur Steinar Ólafs-
son, f. 5. maí 1912 í Rvík.
For. Ólafur Theodór tré-
sm. þar, f. 24. nóv. 1873,
d. 4. marz 1950, Guð-
mundsson smiðs að Stóru-
Vatnsleysu Guðmundsson-
ar og s. k. h. Guðrún, f.
7. júlí 1886, d. 18. jan.
1950, Erlendsdóttir bónda
að Hvallátrum Kristjáns-
sonar.
Próf í byggingafræði frá
Ingeniörskolen í Horsens,
Danm., (Bygningsteknik-
um) 1934. Starfaði sem
verktaki ásamt föður sínum 1934—’36. Réðst til starfa
hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur 1936 og vann að upp-
setningu véla og tækja í orkuverinu við Ljósafoss. Stóð
fyrir framkvæmdum við stækkun síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjunnar í Neskaupstað 1938, starfaði við bygg-
ingu Laxárvirkjunarinnar og Hitaveitu Reykjavíkur hjá
fyrirtækinu Höjgaard & Schultz A/S 1939—‘43. Réðst
til Almenna byggingafélagsins h/f 1943 og starfaði þar
til 1957. Á þeim tima hefur hann unnið að stjórn fram-
kvæmda við stækkun Ljósafossstöðvarinnar 1943 (með
Árna Snævarr), mælt fyrir línustæði háspennulínunnar
frá Irafossi um Hellisheiði til Rvíkur og háspennulín-
unnar til Keflavíkur 1944, staðið fyrir og stjórnað bygg-
ingaframkvæmdum við Andakílsárvirkjun 1945—’47,
annast tæknilega stjóm á byggingarstað við byggingu
Faxaverksmiðjunnar í Örfirisey 1948—’49, verið tækni-
legur eftirlitsmaður við byggingu Áburðarverksmiðjunn-
ar i Gufunesi 1952 og veitt forstöðu stækkun Þorláks-
hafnar 1955—’56. Réðst til Efrafalls sef. 1957 og starfaði
á þess vegum við byggingu Steingrímsstöðvar til árs-
ins 1960 og hefur staðið fyrir framkvæmdum við stækk-
un Þorlákshafnar frá 1962. Sumurin 1960 og 1961 vann
hann á vegum E. Pihl & Sön, Khöfn, að byggingafram-
kvæmdum á Grænlandi.
K. h. 12. nóv. 1938, Bergþóra, f. 17. nóv. 1917 að Höfn
I Bakkafirði, Halldórsdóttir kaupm. þar Runólfssonar og
k.h. Sólveigar Björnsdóttur bónda að Kröggólfsstöðum,
Bakkafirði, Gíslasonar. B. þ. 1) Guðrún Dóra, f. 3. júni
1938 á Seyðisfirði, 2) Baldur, f. 4. okt. 1939 í Rvík, 3)
Sólveig, f. 10. maí 1943 s.st., 4) Gísli Jóhann f. 22. marz
1947 s.st.
Steinar er hálfbróðir Sigurðar Ólafssonar, bygginga-
verkfræðings.
Veitt innganga í VFl á stjórnarfundi 1. febr. 1962.
H.G.