Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1963, Side 34
128
TlMARIT VFl 1963
Sigurður Flygenring, f.
28. júlí 1898 í Hafnarfirði.
For. Atigust Theodor
Flygenring kaupm. og út-
gerðarm. þar, f. 17. april
1865, d. 12. sept. 1932,
sonur Þórðar bónda og
hreppstjóra að Fiskilæk,
Dorgarfjarðars., Sigurðs-
sonar og k.h. Þórunn, f.
28. maí 1866, d. 22. apr.
1943, Stefánsdóttir bónda
að Þóreyjarnúpi, Húna-
vatnss., Jónssonar.
Próf í byggingafræði
frá Ingeniörskolen í Hors-
ens (Bygningsteknikum) 1924. Byggingarfulltrúi í Hafn-
arfirði 1925—26. Vann að ýmsum tæknistörfum og hafði
eftirlit með byggingu ýmissa stórhýsa í Rvik, svo sem
Barnaskóla Austurbæjar, Arnarhvoli, Landssímahúsinu
og Hótel Borg 1927—33. Var tæknilegur fulltrúi fyrir-
tækisins N. C. Monberg við byggingu bátahafnar á Isa-
firði 1934—35 og síðan tæknilegur starfsmaður hjá
Reykjavíkurhöfn. Jafnframt hefur hann gert útreikninga
og uppdrætti að járnbentri steinsteypu í fjölda stórhýsa
svo sem Verkamannabústaðina í Rvík, Útvarps- og sendi-
stöðina á Vatnsenda, Móttökustöðina í Gufunesi, Vél-
smiðju Hafnarfjarðar, Mjólkurstöðina í Rvík, Barnaskóla
Akureyrar, Elliheimilið Grund (viðbyggingu) Rvík,
Hafnarhúsið (austurhluta) Rvík, Arnarhvol (austur-
hluta) Rvík, og enn fremur útreikninga og uppdrætti að
hitalögnum í fjölda ibúðarhúsa o. fl.
K.h. 30. maí 1925, Ásta Þórdís, f. 23. sept. 1900 að
Nikhóli, Mýrdal, Tómasdóttir héraðslæknis þar Helga-
sonar og k.h. Sigríðar Lydiu dóttur Hagbarths Thejll
kaupm. í Stykkishólmi. B.þ. 1) Sigríður, f. 27. marz 1926
í Hafnarfirði, 2) Einar Ágúst, f. 1. sept. 1929 í Rvík,
3) Anna Þórunn, f. 11. nóv. 1930 í Rvík.
Sigurður er föðurbróðir Kristjáns Flygenrings, véla-
verkfræðings, og Páls Flygenrings, byggingaverkfræð-
ings, og móðurbróðir Þórðar Gröndals, vélaverkfræðings.
Veitt innganga í VFl á stjórnarfundi 1. febr. 1962.
H. G.
Sveinn Guðmundsson, f.
27. ág. 1912 á Eyrar-
bakka. For. Guðmundur
bóksali og bókhaldari þar,
f. 9. okt. 1849, d. 24. apr.
1937, Guðmundsson bónda
að Minna-Hofi, Rangár-
völlum, Péturssonar og k.
h. Snjólaug Jakobína, f. 7.
mai 1876, Sveinsdóttir
bónda í Bjarnastaðahlíð,
Skagaf., Guðmundssonar.
Próf í vélfræði frá Tek-
niska Institutet, Stokk-
hólmi, 1936. Réðst síðan
til starfa hjá Vélsm. Héðni
h/f og vann þar m.a. að útreikningum og teikningum
af vélum fyrir síldar- og fiskimjölsverksmiðjur á Seyð-
isfirði, Akranesi, Rauðku á Siglufirði og Klett i Rvik,
ennfremur af vélum og tækjum fyrir frystiiðnaðinn víðs
vegar um landið, m.a. hafði hann forystu um smíði fyrstu
stóru hraðfrystivélarinnar hér á landi 1951. Hann réðst
forstjóri hjá Vélsm. Héðni h/f 1943 og jafnframt for-
stjóri Stálsmiðjunnar h/f og Jámsteypunnar h/f frá
sama tíma, ásamt Benedikt Gröndal, og hefur gegnt
þessum störfum síðan. Á þessu tímabili hefur hann stað-
ið fyrir endurbyggingu á húsum og vélakosti Héðins h/f.
Hann hefur unnið mikið að félagsmálum fyrir iðnaðinn
í landinu, var formaður þeirrar nefndar, sem sá um
Iðnsýninguna í Rvík 1952, og lét í því sambandi Héðinn
h/f smíða fyrsta ísl. dieselmótorinn sem sýnishorn um
það, hvers íslenzkur jámiðnaður væri megnugur.
K. h. 18. des. 1937, Kristín Helga, f. 19. júní 1918 í
Rvík, Markúsdóttir forstj. þar ívarssonar og k. h.
Kristínar Andrésdóttur bónda að Vestri-Hellum, Flóa,
Erlendssonar. B. þ. 1) Sverrir, f. 27. júli 1939 í Rvík,
2) Birna, f. 6. júní 1941, s.st., d. 17. jan. 1942, 3) Markús,
f. 22. marz 1943 s.st., 4) Kristín, f. 24. ág. 1945 s.st.,
5) Snjólaug f. 21. okt. 1949 s.st., 6) Guðmundur Sveinn,
f. 5. okt. 1954 s.st.
Veitt innganga í VFl á stjómarfundi 1. febr. 1962.
H.G.
TlMARIT VBRKFRÆÐINGAFÉLAGS ISLANDS flytur greinar um verkfrœðileg efni. Árgangurinn er alls um 130 síður og
kostar 300 krónur, en einstök hefti 50 krónur. — Ritstjórar: Gunnar Böðvarsson og Guðmundur Pálmason. Aðstoðarritstjórar:
Gísli Ólafsson og Þorsteinn Egilson. — Útgefandi: Verkfræðingafólag Islands. — Afgreiðsla tímaritsins er i skrifstofu fólags-
ins Brautarholti 22, Reykjavík. Sími 19717. Pósthólf 645.
STBINDÓRSPRENT H.F.