Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2004 Fyrst og fremst JW Útgáfufélag: Frétt ehf. Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson Ritstjóran lllugi Jökulsson Mikael Torfason Fréttastjóran ReynirTraustason Kristinn Hrafnsson Kristján Guy Burgess DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn: 550 5020 - Fréttaskot: 550 5090 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing- an auglysingar@dv.is. - Dreiflng: dreifing@dv.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Isafoldarprentsmiðja DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagna- bönkum án endurgjalds. Hvað veist þú um «/ 'iimr 1, Hvað heitir fyÆi bók Biblíunnar? 2. Og hvað heitir sú síðasta? 3» Við hverja eru guðspjöU Nýja testamentisins kennd? 4« Hver eru upphafsorð Jó- hannesarguðspjalls? S. Hver eru síðustu orð Biblíunnar? Svör neðst á síðunni Spillingarbarátta í Christian Science Mon- itor greinir fráþví ívik- unni að forseti Mexíkó, Vincente Fox, ætlisér að gjör- breyta réttarkerfl lands- ins tíl hins betra. Meðal nýjunga sem hann ætlar að ryðja tfl rúms eru að menn séu álitnir saklaus- ir uns sekt þeirra er sönnuð og að réttarhöld fari fram fyrir opnum tjöldum. Markmið Fox er að leitast við að útrýma spillingu úr kerfinu og taka upp aðferðir sem hafa reynst vel í öðrum löndum álfunnar, Argentínu, Chile og Costa Ríka. Fox hefur gengið seint að koma í fram- kvæmt ioforðum i þessa veru frá því hann var kos- inn árið 2000. Þá tók hann við eftir 70 ára valdaferil sama flokksins. Almenningur hefur misst þolinmæðina fyrir spill- ingu í stjómkerfinu og kaflað á aukið gagnsæi. Skíreða skýr Á morgun erskírdagur. Ekk- ertyfsilon er í sögninni aö skíra þegar hún merkir aö hreinsa eöa gefa nafn. Yfsiloniö kemur til sögunnar í sögn- inni„aðskýra"þeg- ar merkingin er útlista, greina frá eöa einfaidiega útskýra. Merkingar oröanna geta oröiö furöu llkar.„Hann er skfr" þýöir„hann er hreinn, óspilltur", eöa eitthvaö álika, en„hann er skýr" merkir aö hannséfremurklár. Gömul merking sagnarinnar aöskýra (meöyfsiloni) var reyndar„að streyma, freyöa, húörigna" og„aö skýrast" þýddiá U.öldaöblotna, segir Ásgeir Blöndal. Yfsilon- iö stafar afþvl aö sögnin er dregin aforðinu„skúr"í merkingunni rigning. Málið E -o ■o o Svörvið spurningum: 1. Fyrsta Mósebók (Genesis) - 2. Opinber- unarbók Jóhannesar - 3. Matteus, Markús, Lúkas og Jóhannes - 4. „I upphafi varOröið og Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð" - 5. Sá sem þetta vottar segir: „Amen. Kom þú, Drottinn Jesús! Náðin Drottins Jesú sé með öllum" Dómsmálaráðherrann Um daginn var ég spurður í sjónvarps- þætti hvort mér - í hlutverki minu sem ritstjóri DV - væri eitthvað ifla við Björn Bjamason dómsmálaráðherra. Ég tók því auðvitað fjarri enda em þau örlitlu persónulegu kynni sem ég hef af Birni hin ánægjulegustu. Og fyrir því hef ég orð fólks sem ég tek fyflsta mark á - bæði innan fjöl- skyldu minnar og utan - að Bjöm sé sérstak- ur sómamaður og í alla staði tfl fyrirmyndar. Hins vegar verður ekki framhjá því horft að sem stjornmálamaður hefur Björn verið ... við skulum segja... seinheppinn upp á síðkastið. Hann naut velvildar og virðingar í menntamálaráðuneytinu og að flestra dómi stóð hann sig þar giska vel. Þar sem ég átti böm í skóla alla menntamálaráðherratíð Bjöms þá fannst mér að vísu stundum að hann væri kannski dálítið ofrnetinn; ég gat ekki fundið að neitt það breyttist til stors batnaðar þann túna að verðskuldaði óvana- leg húrrahróp. Og datt stundum í hug hvort vera kynni að sú staðreynd að Bjöm er list- hneigður maður, fróður og gáfaður, kynni að hafa áhrif á velvildina sem hann naut, ekki sfst meðal Iista- og menntamanna; menntamálaráðherrar hafa ekki alltaf verið verulega viðmælandi fyrir þá hópa. Hvað um það, Bjöm hvarf úr sínum frið- arstóli í menntamálaráðuneytinu til að bjóða sig fram tU borgarstjóra í Reýkjavflc en hafði vægast sagt ekki árangur sem erfiði. Og sem dómsmálaráðherra verður síst sagt að hann hafí slegið í gegn. Hin vopnaða ser- sveit, sem er helsta framlag hans tfl öryggis- mála, er sérkapítuU út af fyrir sig en aðeins eitt af fleiri dæmum um vandræðagang á hinum nýja ferfl hans. Og þá er Björn ekki enn búinn að súpa seyðið af sinni allra umdeUdustu ákvörðun, þegar hann skipaði náfrænda Davíðs Odds- sonar í Hæstarétt, og vakti með því furðu og hneykslan allra löglærðra manna, annarra en þeirra sem múlbundnir em á Ðokksklafa. Nú hefur kærunefhd jafhréttismála úr- skurðað að Bjöm hafi augljóslega brotið lög með þeim gjömingi sínum. Það er aUtaf vandræðalegt þegar ráðherra brýtur lög. Það er beinlfriis neyðarlegt þegar dóms- málaráðherra verður uppvís að því. Og þyngri en tárum taki þau viðbrögð Bjöms við úrskurðinum sem birtast á blað- síðu átta í blaðinu f dag. Nefndin verður bara lögð niður, segir Bjöm með þjósti miklum. Manni er sagt að Bjöm langi mikið tU að verða forsætisráðherra. Ég er ekki viss um að við þurfum annan svona forsætisráð- herra. Mugijökulsson Fyrst og fremst EGILL HELGAS0N BYRJAÐI að „blogga" í fyrradag og fyrsta færsl- an á bloggsíðunni hans á striki.is fjallar meðal annars um að hann hafi verið beðinn um að velja upp- áhaldsmálverkið sitt fyrir DV, en árangurinn af því má sjá á síðu 47 í blaðinu í dag. Annars fjallar fyrsta bloggið að mestu um Kurt Cobain en þennan dag var þess minnst um hinn vestræna heim að tíu ár voru liðin síðan hann framdi sjálfsmorð. Flestir málsmetandi kúltúrpáfar fóru um Cobain fögrum orðum, en ekki Egill. Hann skrifaði: „IDAG LES ÉG í öllum blöðum að tíu ár eru síðan Kurt Cobain fannst dauður með sprautu í handleggn- um. Er ég einn um að finnast Kurt hallærislega veimiltítulegur? Tón- list hans full af gólandi sjálfsvor- kunn. Sendi Amari Thforoddsen], sem er bráðflinkur blaðamaður á Mogga svohljóðandi komment um Kurt, stend við hvert orð: „Kurt Cobain - sjálfselskur og stupid teenybopp- er, kúlutyggjó- strákur, minnir á Jim Morrison, annan væminn og sjálfhverfan tón- listarmann, ekki þess virði að eyða orðum á, líkt og annars ágæt grein þín sannar. Þegar ég bjó í París lá mér alltaf við að æla þegar ég sá liðið flykkjast að leiði Jims. John Lennon var þó karlmenni. MÍN HETJA ER CHEKH0V. Læknir- inn og leikskáldið sem bað um kampavlnsflösku stundu áður en hann dó - úr berklum. Frá því seg- ir í smásögu eftir Raymond Carver. Er búinn að kaupa tíu eintök af þýð- ingum Ama Berg- mann á smásög- um eftir hann. Hvílík viska! Hef geflð bræðmm mínum þetta í jólagjöf mörg ár í röð. Þeir búa í út- löndum og skilja bækurnar alltaf eftir heima. Þannig að Chekhov hleðst upp.“ 5 persónur sem við þurfum ekki aftur 1. Þorgrfmur Þráinsson 2, Hrafn Gunnlaugsson 3. Birgitta Haukdal 4. Halldór Ásgrfmsson 5. Stefán Jón Hafstein Barist í barnaafmælinu GUÐMUNDUR ANDRITHORSSON skrifaði „um daginn og veginn" ( Fréttabiaðið (fyrradag og fjallaöi þar um auglýsingar (slandsbanka þar sem ungir krakkar voru settir ( gervi þeirra Davfðs Oddssonar, Olafs Ragnars Grímssonar og Bjark- ar Guömundsdóttur. Hann byrjar á að biðjast eiginlega afsökunar á því að „hnjóða í blessuð börnin" en bendir á að auglýsingarnar segi í raun og veru að haegt sé að „nurla" sér leið upp í ráðherrastól og til „listrænna afreka", og: „Hægt sé að panta sér ævistarf, ef maður gæti þess bara að panta nógu snemma...' SfÐAR í GREININNI bætir Guðmundur Andri við: ,,[É]g vona að mérfýrirgefist þótt ég játi hér og nú að þegar ég horfi á risamyndirnar af hinum ábúðar- miklu drengjum í gervi þessara valdamanna [Ólafs Ragnars og Daviðs] rennur mér hálfpartinn kalt vatn milli skinns og hörunds: Drottinn minn! Hugsa ég: önnur tuttugu-þrjátíu-fjörutíu áraf því sama, þegar þessi Davíð hættir þá kemur bara nýr og alveg eins, með sömu krullurnar, sömu úrræðin, sömu tilsvörin BARNAAFMÆU sem Guðmundur Andri hefur nýlega farið í verður honum einnig tilefni nokkurra hugleiðinga en þarvildu börnin fá að leika „hetjurnar" úr auglýsing- unum. „Ég ætla að vera Davíð Odds- son, sagði einn strákur- inn og gerði sig drembilátan í framan og fór að ráðskast með viðstadda," skrifar Guð- mundur Andri og enginn í öllu afmælinu reyndist þess megnugur að standa upp í hárinu á þessum átta ára gamla Davið Oddssyni fyrr en einmitt að einn tók á sig gervi Ólafs Ragnars Grímssonar. Og svo var ein stelpa sem „fór að láta að sér kveða með myndugum hætti við stjórn landsmálanna kringum borðið" og hún kaus sér þá gervi Inglbjargar Sólrúnar Gísladóttur. LOKS BENDIR Guðmundur Andri á hina heimspeki- legu mótsögn við auglýsingarnar. Þau þrjú - Björk, Davíð og Ólafur Ragnar-sem íslandsbanki hvet- ur öll börn landsins, beint eða óbeint, til að taka sértil fyrirmyndar eru öll þeirrar gerðar að þau hafa hafist af sjálfu sér og náð árangri með því að rækta sér- kenni sín, ekki fylgja öðrum í blindni. Því sé skrýtið að auglýsingarnar virðist hvetja krakka til að reyna að líkja eftir þeim. „En hvenær hefur það svo sem samræmst markmiðum, aðferðum og gjörvallri lífssýn auglýsingaiðnaðarins að hvetja fólk til að fara eigin leiðir?"

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.