Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDACUR 7. APRÍL 2004
Fókus DV
<*
Vegur kólumbísku söngkonunnar Shakiru
hefur legið upp á við allt frá því að hún
skrifaði undir sinn fyrsta plötusamning
13 ára gömul. Hún er langstærsta popp-
stjarna Suður-Ameríku og hefur verið
að leggja undir sig hverja heimsálfuna
á fætur annarri undanfarin
tvö ár. Trausti Júlíusson ?
kynnti sér sögu ■
stelpunnar, sem er , s
sögð vinnuhestur
með ólæknandi
fullkomnunar-
áráttu.
Á nýja tónleika DVD-inu hennar Live & Offthe
Record syngur hún, dansar magadans, spilar
á gítar og trommur og tekur sína útgáfu af
AC/DC-slagardnum Back in Black. Og fer létt
með allt saman...
Kólumbíska söngkonan
Shakira gaf út sína
fyrstu plötu þegar hún
var þrettán ára gömul.
Hún er í dag stærsta
poppstjarna Suður-
Amerfku. Hún hefur
verið blessuð af páfan-
um og Nóbelsverð-
launahafinn Gabriel
Garcia Marquez er einn
af hennar hörðustu að-
dáendum. Shakira sló í gegn úti um
allan heim með plötunni Laundry
Service sem kom út fyrir tæpum
þremur árum. í síðustu viku kom
svo út tónleikaplatan Live & Off the
Record sem hefur að geyma tónleika
með henni bæði á CD og DVD auk
heimildarmyndar. En hvaðan kem-
ur þessi stelpa?
„Jarmaði eins og geit"
Shakira Isabel Mebarak Ripoli er
fædd 2. febrúar 1977 í sjávarborginni
Baranquilla í Kólombíu. Hún er dótt-
ir Williams Maberak Chadid sem er
af líbönsku bergi brotinn og Nydiu
sem er kólumbísk. Hún notar bara
fyrsta nafnið sitt, Shakira sem er ar-
abíska og merkir „kona full af þokka".
Shakira átti að mestu leyti góða
æsku. Hún bjó með fjölskyldunni í
millistéttaríbúð í Baranquilla, en í
næsta nágrenni bjó fyrrverandi kona
föður hennar með átta hálfsystkini
Shakiru sem öll dáðu og dýrkuðu litu
systur. Shakira var frá fyrstu tíð mjög
skapandi. Hún var ekki nema fjög-
urra ára þegar hún samdi sitt fyrsta
ljóð, La Rosa De Cristal (Kristalsrós-
in). Skömmu síðar heyrði hún fyrst í
arabískum trommum sem notaðar
eru sem undirspil fyrir magadans
þegar hún fór með föður sínum á
mið-austurlenskan matsölustað.
Hún fékk magadansdellu og dansaði
magadans næstu árin og gerir reynd-
ar enn, eins og sjá má á nýju tónleika-
plötunni hennar. Hún byrjaði að
dansa fyrir áhorfendur og fékk sviðs-
bakteríuna. Upp frá því vissi hún
hvað hún ætlaði að verða. „Ég vissi
alltaf að ég yrði þekkt," scgir hún,
„Það var aldrei spurning. Eg hafði
hugboð um það. Það var eins og for-
lög.“ Þegar Shakira var átta ára samdi
hún 'sitt fyrsta lag, Tus Gafas Oscuras
(Dökku gleraugun þín). Hún byrjaði
á svipuðum tíma að syngja, en fékk
hvorki gott orð hjá söngkennaranum,
sem fannst hún yfirgnæfa hin bömin,
né hjá hinum krökkunum í skólanum
sem sögðu að hún „jarmaði eins og
geit". Það stoppaði hana samt ekki og
þegar hún var 10 ára var hún byrjuð
að syngja í söngkeppnum.
Flottasti rassinn á skjánum
Þegar Shakira var þrettán ára
gömul frétti hún að útsendari Sony-
plötufyrirtækisins í Kólumbíu væri
væntanlegur til Barranquilla. Hún
fékk foreldra sína með sér og sat fyr-
ir honum í gestamóttökunni á hótel-
inu sem hann dvaldi á. Hún söng
svo og dansaði fyrir hann þarna á
miðju móttökugólfinu. Viku seinna
var hún komin með þriggja platna
samning. Fyrsta platan hennar,
Magia, kom út þegar hún var 13 ára.
Á henni syngur hún dæmigerð
s-amerísk popplög sem öll voru
frumsamin. Innan við 1.000 eintök
seldust. Árið á eftir kom næsta plata,
Peligro. Hún seldist líka lítið. Þá
ákvað Shakira að taka sér hlé frá tón-
listinni og klára menntaskólann.
Hún var fljót að því, útskrifaðist þeg-
ar hún var 15 ára. Að því loknu flutti
hún til höfuðborgarinnar Bogota
með móður sinni. Hún fékk hlutverk
í sápuóperunni E1 Oasis, en hún
fann sig ekki alveg í því að vera leik-
kona. Það gladdi hana hins vegar
þegar hún var kosin „Flottasti rass-
inn í sjónvarpinu" í vinsældakosn-
ingu eins af sjónvarpsblöðunum...
Rokkið kallar
Þegar hér var komið sögu hafði
Shakira verið að hlusta mikið á
rokktónlist; Nirvana, Aerosmith,
Tom Petty, Led Zeppelin. Hún fékk
tækifæri til þess að syngja rokklag á
safnplötu árið 1994. Lagið, Donde
Estas Corazon, sló í gegn og platan
sem hún gerði í kjölfarið, Pies
Descalzos, seldist í 4 milljónum ein-