Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 7. APRlL 2004
Fréttir 0V
Sprenqjurá
Vogaheiði
Viðvörunarskilti við
gamalt skotæfingasvæði
bandaríska hersins á Voga-
heiði hafa verið endumýjuð.
Að sögn Landhelgisgæsl-
unnar er full ástæða til að
vara almenning við þeirri
hættu sem geti stafað af
gömlum sprengjum á svæð-
inu en slíkar sprengjur hafa
fundist í miklu magni á
þessu vinsæla útivistar-
svæði. AIls hafa fundist
u.þ.b. 800 óspmngnar
sprengjur á svæðinu síðan
1986 og talið er að enn sé
þar mikið magn af sprengj-
um.
Sektir á
Selfossi
Að sögn lögreglunnar
á Selfossi voru 37 öku-
menn kærðir fyrir of
hraðan akstur í síðustu
viku. Sá er hraðast ók var
mældur á 122 km/klst
hraða á Suðurlandsvegi
skammt frá Hveradölum
og þarf að greiða sekt að
upphæð 25.000 krónur
vegna brotsins. Álagðar
sektir vegna umferðar-
lagabrota í umdæmi lög-
reglustjórans íÁrnes-
sýslu þessa vikuna eru
590.000 krónur.
Eggertfær
matsmenn
Eggert Haukdal, fyrrum
þingmaður og sveitarstjóri,
fær samkvæmt nýföllnum
dómi Hæstaréttar dóm-
kvadda matsmenn til öflun-
ar matsgerðar, sem
hann hyggst leggja
fram sem sönnun-
argagn með kröfu
um endurupptöku
refsimálsins gegn
honum, sem dæmt
varí 17. mai'2001.
Eggert var sakfelld-
ur á sínum tíma
vegna 500.000 króna leið-
réttingarfærslu í reikningum
hreppsins og hefur hann tví-
vegis leitað endumpptöku
málsins en án árangurs.
Ráðherra
neitar að svara
Sá fáheyrði atburður
gerðist á Alþingi í fyrradag
að Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, synjaði Kristjáni L.
Möller alþingismanni svars
við formlegri fyrirspurn. Rök
ráðherrans voru
þau að efni fyrir-
spumarinnar væri
undanþegið upp-
lýsingarétti. Kristján
spurði um hverjar
hefðu verið tillögur
Byggðastofnunar
um lækkun flutn-
ingskostnaðar og
óskaði eftir því að tillögum-
ar yrðu birtar í heild sinni en
fær sem fyrr segir ekkert
svar.
Herra Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup í Skálholti, mun
gegna störfum biskupsins yfir íslandi um páskahelgina. Herra
Karl Sigurbjörnsson biskup er við sjúkrabeð Rannveigar
dóttur sinnar i London en hún veiktist alvarlega fyrir
skemmstu. Rannveig er á góðum batavegi og er von á biskupi
til starfa strax eftir páska.
leysir biskup
aí um páska
Vígslubiskupinn í Skálholti, herra Sigurður Sigurðarson, leysir
biskupinn yfír Islandi af um páskana. Hefur það ekki gerst áður
á þessari mestu hátíð kristinna manna.
Herra Karl Sigurbjörnsson hefur
dvalið í London að undanförnu við
sjúkrabeð Rannveigar dóttur sinnar
sem þar veiktist alvarlega. Rannveig
hefur verið í hönnunarnámi í
London.
„Ég þarf ekki að sinna neinum
sérstökum embættisskyldum fyrir
biskup um páskana og hef
aðeins tekið. símtöl og
annað sem til hans er
beint. Það virðist
líta vel út með
bata dóttur bisk-
upsins og ég á
von að hann snúi
aftur heim strax
eftir páska og taki
við störfum sín-
um," segir séra
Sigurður Sigurð-
arson. „Sjálfur
mun ég vera með
guðsþjónustu í Skál-
holti á föstudaginn
langa og svo
á
páskadagsmorgun eins og venju-
lega.“
Herra Karl Sigurbjörnsson hefúr
verið í London um tíma vegna veik-
inda dóttur sinnar. Tvær dætur bisk-
ups eru þar búsettar, Rannveig sem
fyrr greindi og svo Inga Rut guð-
fræðingur og eiginkona séra Sigurð-
ar Arnarsonar sem er prestur fslend-
inga í London.
Ekki er hefð fyrir því
sjónvarpi um páska líkt og um jól og
fyrir bragðið mæðir minna á vígslu-
biskupnum í Skálholti nú þegar
hann óvænt leysir biskupinn af um
hátíðirnar. Að öðru
leyti verður helgi-
hald þjóðkirkj-
unnar um
páska með
venjubundnu
; sniði og eru
landsmenn
allir hvattir til
að sækja kirkju.
Kristurog kynslóðin hangandi
Loksins er píslargöngu Svart-
höfða lokið. Páskahátíðin er geng-
in í garð, og um leið er Svarthöfði
genginn til náða um sinn. Hann er
nefnilega smitaður af þeirri kyn-
slóð sem nú vex upp og kýs helst
að vinna bara frá 9 til 3, helst ann-
an hvorn dag. Sú ósk hefur ekki
verið uppfyllt, en kristin trú kveður
á um að nú hljóti Svarthöfði frið
eftir langa vinnulotu frá jólum.
Svarthöfði dáist að Kristi, sem
einnig gekk píslargöngu í sinni tíð
Guðmundur Gunnarsson,
formaður Rafiðnaðarsambandsins.i
og birtist honum í kvikmynd Mel
Gibson, Kristspassíu. Reyndar dá-
ist Svarthöfði enn meira að öðru í
fari Krists en píslum hans. Það er
að Kristur vann aldrei handtak, var
með hárlubba eins og hippi og bjó
í föðurhúsum til dauðadags. Þetta
er alveg eins og kynslóð sú er
Svarthöfði ber keim af, hvernig
kynslóðin, kennd við hangs, vill
Hvernig hefur þú það'
„Ég hef það mjög gott í augnabliklnu. Þetta er búin að vera mikil fundatörn undanfarna daga
og við rafiðnaðarmenn höfum fengið flest í gegn sem við vildum íþessum samningum. Nú
liggur það helst fyrir hjá mér að skella mér á sklði yfir páskana. Ég fer norður í Skagafjörð til
þess því það er enginn snjór hér fyrir sunnan."
hafa það. Passía okkar er að slaka á
og hanga, smakka á ostapoppi og
horfa á vídjó.
Ekki þurfti Kristur að vinna þeg-
ar hann fjölfaldaði brauðið eða
margfaldaði fiskana. Ekki þurfti
hann að fara í stígvél þegar hann
gekk á vatni. Hvernig væri svo að
þurfa ekki að flaka þúsund þorska
á færibandi til að komast í ríkið og
bara breyta niðurtröðkuðu vatn-
inu í vín? Þvílíkt tjill. Svo klæddi
hann sig bara í kufl og sandala og
lét lofta vel um. Svarthöfði hefur
íhugað að fara úr svörtu klossun-
um og kaupa sér svarta sandala, en
hér er of kalt.
Sannleikurinn er hins vegar sá
að í endingu lendum við öll í písl-
argöngunni. Við verðum öll að
vinna unr síðir. Jafnvel þó pabbi
manns sé vinnuveitandi. En okkur
Snorri lagði
Skagafjörð
Hæstiréttur hefur dæmt
sveitarfélagið Skagafjörð til
að greiða Snorra Birni Sig-
urðssyni, fyrrverandi sveit-
arstjóra, 1,2 milljón króna,
auk vænna vaxta og máls-
kostnaðar, vegna vangold-
inna orlofsgreiðslna á
fasta yfirvinnu fjögur ár
aftur í tímann. Sveit-
arfélagið taldi sig
ekki skylt að greiða
orlofsféð og taldi
þess utan að
Snorri hefði tapað
mögulegri kröfu
sinni með tómlæti.
Ríkisrekin
vídjóleiga
„Stjórnendur RÚV virð-
ast hafa keyrt í fjárhagslegt
og efhislegt öngstræti,"
segir Björgvin G.
Sigurðsson, þing-
maður Samfylking-
arinnar. Björgvin
segir það dæma-
laust að nú sé sú
staða komin upp
að afiiotagjöld séu
hækkuð verulega á
sama tfma og
harkalegur niðurskurður
eigi sér stað í framleiðslu á
innlendri dagskrárgerð og
fféttatengdu efni. „Það get-
ur ekki verið tilgangurinn
með RÚV að ríkisreka
vídjóleigu." Björgvin tekur
málið upp á Álþingi og kall-
ar efflr skýrri stefnu stjórn-
valda í málefnum RÚV.
Eurovision
fötin hans
Jónsa
Biðin eftir Eurovison-
stundinni styttist óðum og
nú hefur verið gert opin-
bert hverjir munu sjá um
að Jónsi verði sæmilega
til fara þegar hann flyt-
ur lagið Heaven í
| Istanbul í Tyrklandi
þann 15. maí. Fyrir-
tækið NTC hefur
ákveðið að styrkja
hópinn með fataút-
tektum en NTC
rekur meðal ann-
ars verslunina
17. Það verður
því 17 sem klæð-
ir Jónsa í Eurovisionkeppn-
inni og nú er bara að vona
að menn fari ekki að klæða
hann í eitthvað pils líkt og
Einar Ágúst héma um árið.
Þá datt Island út úr keppn-
inni eins og allir muna og
kenna margir umræddum
pilsfaldi um þær hrakfarir.
var ekki ætlað að vinna og það vissi
Kristur. Það var af meiði hins illa
að Adam og Eva átu eplið og var
síðar kastað úr paradísinni Eden,
þar sem þau unnu ekki handtak.
Nú er bara api í Eden.
Svarthöfði