Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 7. APRlL 2004 Fréttir TJV Sigurbjörn Sveinsson, formaður Læknafélags íslands, telur að læknar ættu nú þegar að rjúfa tengsl risnu og fræðslu hjá lyfjafyrirtækjum. „Mál er að linni,“ segir formaðurinn. Lseknar eiga að rjúfa tengsl við lyfjarisana Sigurbjöm Sveinsson, formaður Læknafélags íslands, telur að læknar ættu nú þegar að rjúfa tengsl risnu og fræðslu hjá lyfja- fyrirtækjunum. Þessi tengsl em að hans mati í senn auðmýkj- andi og andlega heilsuspillandi. „Mál er að linni,“ segir formað- urinn í grein um málið í nýjasta hefti Læknablaðsins. Sigurbjöm segir einnig í þessari grein að leggja beri niður fræðslu- starf lyfjaframleiðenda fyrir lækna. „Það er þó ekki einfalt fýrirtæki og verður ekki hrundið í framkvæmd nema með þátttöku eða öllu heldur stuðningi heilbrigðisyfirvalda. Læknar munu eiga erfitt með að sætta sig við samdrátt í fræðslustarfi og símenntun nema eitthvað komi í staðinn" segir Sigurbjörn. „Afla þarf skilnings þeirra meðal annars með framtaki við endurmenntun þeirra á annan hátt. Lyfjareikningur lands- manna er vel á annan tug milljarða. Verði til dæmis 0,1% þeirrar upp- hæðar varið til sameiginlegrar end- urmenntunar lækna, gætu áhuga- menn um heppilegri samskipti lækna og lyfjafyrirtækja átt von um betri tíð með blóm í haga.“ Hagsmunaárekstrar í grein sinni fjallar Sigurgeir einnig um hugsanlega hagsmuna- árekstra og trúnað milli lækna og al- mennings „Það liggur fyrir að ffam- leiðendur og dreifingaraðilar lyfja leggja verulegt fé til fræðslu lækna og þar með símenntunar þeirra. Er þá ekki átt við beinar auglýsingar, sem birtast læknum í ffæðiritum eða á annan hátt, heldur heimsókn- ir lyfjakynna til lækna, ffæðslufundi á vegum lyfjafyrirtækjanna og beina og óbeina styrki til ffæðslustarfs á vegum lækna og samtaka þeirra. Þá er stuðningur mikilvægur við þekk- ingarleit lækna erlendis og þátttöku í vísindastarfi, ýmist skipulögðu af lyfjafyrirtækjunum eða utan þeirra. Því verður ekki neitað að allir þessir þættir hafa umtalsverða þýðingu fyrir lækna og heilbrigðisþjónustuna en bjóða jafnframt þeirri hættu heim sem vikið er að í inngangi þessa pistils og varðar hugsanlega hagsmunaárekstra," segir Sigurgeir Trúnaður „Þeirri skoðun hefur verið á loft haldið, að enginn munur sé á penna og utanlandsferð eða lykla kippu og kvöldverði. Þessi saman burður er fjarri öllu lagi... Ef mörg hundruð manna kvöldverðar- boð heimilislækna á vegum J Astra, sams konar teiti á veg- um Delta fyrir vísindaþing lyflækna eða utanlands- ferðir á auglýsingafundi um lyf á vegum GlaxoSmithKlein stinga í augu almennings fyr- ir utan að vera þýðingarlaust ffamtak fyrir menntun lækna, þá verða læknar að taka tillit til þeirra sjónarmiða. Mikil áhersla er lögð á trúnaðarsamband læknis og sjúklings og gera lækn- ar sér skýra grein fyrir þýðingu þess. Þess heldur ætti lækna- stéttin að rækta trúnaðar samband sitt við al- menning í landinu og láta ekki einskis nýta hluti eins og risnu lyfjafyrirtækja valda trúnaðarbresti milli sín og almennings að nauðsynjalausu." Sigurbjörn Sveinsson „Lyfja- reikningur landsmanna er vel annan tug milljarða. Verði til dæmis 0,1 % þeirrar upphæðar varið tilsameigin- legrar endur- menntunar lækna.gætu áhugamenn um heppilegri sam- skipti lækna og lyfjafyrirtækja átt von um betri tið með blóm I haga." „Það liggur fyrir að framleiðendur og dreifing- araðilar lyfja leggja verulegt fé til fræðslu lækna og þar með símenntunar þeirra." Pizzahöllin Maður var dæmdur I gær fyrir að særa blygðunarkennd pítsusendla. Hann kenndi rússneskum sjóara um ófögnuðinn. Pantaði pítsur og gældi við sig Sat nakinn fyrir pítsusendlum Síbrotamaðurinn Stefán Logi Sívarsson Hann var ofbeldis- maður ellefu ára Skúli dæmirí máliJóns og Davíðs Ákveðið hefur ver- ið að Skúli Magnús- son nýskipaður hér- aðsdómari í Reykjavík dæmi í meiðyrðamáli Jóns Ólafssonar og Davíðs Oddssonar. Jón höfðaði mál vegna ummæla Davíðs í sinn garð sem hann taldi meiðandi og krefst þess að þau verði dæmd dauð og ómerk og að Davíð verði dæmdur til að greiða sektir. RÚV hættirvið Friðrik Þór Ríkissjónvarpið hefur hætt við að kaupa sýning- arrétt á kvikmyndum fs- lensku kvikmyndasam- steypunnar, sem er í eigu Friðriks Þórs Friðrikssonar leikstjóra. Fyrirtækið er í greiðslustöðvun, en á sýn- ingarrétt á fjórða tug kvik- mynda. Ákveðið var að kaupin væm ekki rétt - lætanleg ímiðjum niðurskurði RUV. Gjaldeyrir fyrir 40 milljarða íslendingar eyddu tæp- lega 40 milljörðum króna erlendis árið 2003. Þetta kemur fram í „Hálf fimm fréttum" KB banka. Þetta er 25% aukning frá árinu 2002 á föstu gengi. Erlend neysla jafngilti árið 2003 um 9% af allri einkaneyslu í landinu, sem samsvarar því að hvert mannsbarn hérlendis hafi eytt 138 þúsund krónum erlendis. Vegur um Storasand? Magnús Þór Hafsteinsson þingmaður Frjálslynda flokksins. „Ég vil aö vegakerfi landsins veröi sem skilvirkast og aö það verði gert átak I aö laga eldri vegi, leggja nýja vegi og bora jarðgöng þar sem þaö á við. Verkefnin I vegagerð eru ekki svo mörg að þau mætti af- greiða á fáum árum. Ég minni á að verið er að bora jarðgöng fyrir vatn í Kárahnjúkum, i samanburði við það eru jarð- göng fyrir fólk smámunir." Hann segir / Hún segir „Ég skil ekki hvað menn eru að pæla meö þessum vegi. Menn segja að þetta sé út frá byggðastefnu en hvað blasir við þeim sem búa á litlu stöð- unum við þjóðveginn og hafa byggt upp ýmsa þjónustu? Mér þykir miklu fórnaö fyrir ekki meiri styttingu á leiðinni norður. Þessi hugmynd er í alla staði ömurleg." Aslaug Thorlacius myndlistamaöur. Ríkissjóður fær 140 þúsund krón- ur frá rúmlega þrítugum manni vegna þess að hann særði blygðunar- kennd fjögurra pítsusendla, sam- kvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavík- ur í gær. Maðurinn hafði það að sið að panta pítsu í kjallaraíbúð stna í Reykjavík og bíða komu sendlanna nakinn og fróa sér þegar þeir komu til að afhenda veitingamar. Hann bauð sendlunum 500 til 1000 krónur fyrir að bíða eftir að hann lyki sér af. Fyrst varð vart við athæfið í janúar eða febrúar í fýrra þegar maðurinn pant- aði pítsu frá Pizzahöllinni og stóð nakinn í dyrum herbergis síns þegar sendillinn kom, í fyrrgreindum kyn- lífsathöfhum með sjálfum sér. Þenn- an leik endurtók hann við sama sendil nokkrum vikum síðar og í kjöl- farið við tvo aðra sendla frá Pizza- höllinni og einn frá Dominos. Sendl- arnir vom frá frá 17 ára til tvítugs. Samkvæmt heimildum DV er maðurinn Rússi en hann hélt því fram fýrir dómi að honum væri mgl- að saman við rússneskan sjómann sem hefði dvalist hjá honum á því skeiði sem athæfið átti sér stað. Hann kallaði fram vitni sem gátu ekki al- mennilega staðfest tilvist rússneska sjóarans, en staðfestu að kannast ekki við brenglaða kynhegðun hjá manninum. Þótti dómnum ffarn- burðurinn ekki byggja á raunveruleg- um atvikum málsins. „Framferði ákærða gagnvart kærendum var ógeðfellt og þykir bera vott um sér- kennilegar hvatir," segir í dómnum sem féll honum í óhag. jontrausti@dv.is Stefán Logi Sívarsson síbrota- maður hélt áfr am löngum glæpaferli sínum í fyrrakvöld þegar hann tók þátt í árásum á fólk í miðbænum. Hann var handtekinn í annað sinn á tveimur dögum í fýrrakvöld eftir að hafa tekið þátt í ofbeldisverkum ásamt tveimur öðrum mönnum. Einn mannanna slóst við annan rétt við lögreglustöðina við Hlemm eftir- miðdag mánudags, tveir þeirra réð- ust á mann í heimahúsi á Hverfis- götu og síðan lögðu þeir á flótta á bíl. Þeir lögðu hendur á stúlku sem var í bflnum en voru handteknir á gatnamótum Snorrabrautar og Eirflcsgötu. Stefáni Loga var sleppt úr varð- haldi á sunnudag eftir hrottafengna árás á 16 ára pilt á heimili sínu á laugardag. Beiðni lögreglunnar um gæsluvarðhald á grundvelli rann- sóknarhagsmuna var hafnað. Hörð- ur Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, sagði í gærkvöldi að beðið hefði verið um gæsluvarðhald yfir tveimur mannanna á grundvelli rannsóknar- og almannahagsmuna. Hann gagnrýnir að manninum skyldi hafa verið sleppt á sunnudag. „Þó það lægi fýrir vísir að játningu á Stefán Logi Sívarsson Hann var 11 ára þegar hann gerði árás á unga móöur á Eiðis- torgi ásamt eldri bróöursinum. Meðfylgjandi mynd er frá 1993, eða um það leyti sem árás- in var gerð. þessum tímapunkti voru atvikin óljós," segir hann. Stefán Logi hefur framið afbrot frá blautu barnsbeini. í aprfl 1993, þegar hann var 11 ára, réðst hann ásamt bróður sínum að ungri móður á Eiðistorgi með bitúm og spörkum, en hún reyndi að koma í veg fyrir einelti þeirra og þjófnað frá toinbólubörnum. Stefán var úrskurðaður í gæsluvarðhald í gærkvöldi til 21. aprfl en félagi hans til 14. aprfl jontrausti@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.