Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Síða 13
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2004 13 Ekki heiðurs- borgari „Betra seint en aldrei," segja bæjarfulltrúar í Haslach í Austur- ríki sem á dögun- um sviptu Adolf Hitler heiðursnafn- bót bæjarins. Hitler var sæmdur nafnbótinni árið 1938 og hefur verið heiðursborgari í 66 ár. Bæjarstjórinn, Norbert Leimer, segir sviptingu nafnbótarinnar hafa verið nauðsynlega hreinsun sem gerð hafi verið með lýðræð- islegum hætt. Sushi á nökt- um líkama Japanskt veitingahús veldur nú miklum usla vegna þeirrar ný- breytni að bera fram sushi á nöktum kvenlík- ama. Hafa tvær grannvaxnar og fallegar há- skólastúdínur verið ráðnar sem „borð“ á veitingahús- inu og kostar máltíðin um sjö þúsund krónur. Jóhannes Páll páfi hefur aldrei heyrt minnst á David Beckham Leiðtogarnir orðlausir yfir íramhjáhaldinu Þjóðarleiðtogar heims áttu erfitt með að tjá sig um meint framhjáhald fótboltasnillings Davids Beckham. Fjölmiðlar, einkum á Bretlandi, hafa undanfama daga fjallað um lítið annað en eldheitt ástarsamband Beckhams og hollenskrar aðstoðar- konu hans, Rebbecu Loos. Breska dagblaðið The Sun gerði tilraun til að fá viðbrögð málsmetandi manna víða um lönd en viðbrögðin voru satt að segjaekki hörð. Aðstoðarmaður George Bush Bandaríkjaforseta var heldur spar á yfirlýsingarnar. „Hvað segirðu, var Beckham að halda framhjá? Er ykkur alvara með þetta? Tony Blair, forsætisráðherra Breta, fékkst ekki til að tjá sig um málið og skilaboðin frá Downingstræti 10 voru eftirfarandi: „Við segjum ekkert, en við skulum taka símanúmerið ykkar ef eitthvað breytist." Elísabet Englandsdrottning baðst undan því að segja sitt álit á málinu en talsmaður Buckingham- hallar lét hafa eftir sér að fféttir af meintu framhjá- haldi væru ekki sérlega traustar og þess vegna væri ekkert um málið að segja. Jacques Chirac, forseti Fralcklands, svaraði ekki skilaboðum The Sun en aðstoðarmaður hans setti upp snúð: „Ástarsam- band? Er þetta mikilvægt? Þetta hefur ekkert með forsetann að gera," sagði aðstoðarmaðurinn og kvaddi síðan blaðamann- inn. Jóhannes Páll páfi II vildi heldur ekki láta neitt uppi um sína skoðun. Talsmað- ur páfa kvað Vatikanið ekld þekkja tU Davids Beckham. „Ég hef bara ekki hugmynd um hvað málið snýst," var svar Vatikansins. 2S Þú vinnur allt i senn öryggi, þægindi og vellíðan þegar þú tryggir þér Securitas öryggi áður en þú ferð í fríið. Auk þess sem þú gætir sparað þér stórfé vegna tjóns. • Bíllinn verður I öruggri varðveislu I Leifsstöð og þú getur stigið upp I hann tandurhreinan við heimkomu. • Heimili þitt nýtur gæslu gegn innþrotum, leka eða þruna. Tryggðu þér Securitas öryggi Eitt símtal núna, síminn er 580 7000 og við gerum okkar til þess að þú njótir góðrar ferðar. j ára SIX ’IJKIT AS með áhyggjur af heimili og bíl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.