Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2004 Fókus DfV 10 a hvglisverDar staoreyndir uni offitu barna 1. Rannsóknir sýna að 75% of feitra barna verða of feit á fullorðinsárum. 2. Offita eykur hættu á ýmsum lífshættulegum sjúkdómum. 3. fslensk börn voru þau feit- ustu í Evrópu fyrir fjórum árum siðan. Þýsk ungmenní hrepptu þennan vafasama titil fyrir tveimur árum síðan. 4. Ef fram heldur sem horfir má reikna með að íslendingar muni standa jafnfætis Bandaríkjamönnum hvað offituvandann snertir. 5. Offita á unglingsaldri leiðir frekar til fylgikvilla og sjúk- dóma en offita á fullorðins- aldri. 6. Bretar brugðust við offitu- vandanum með því að breyta fatanúmerum kvenna. Með þeim hætti gátu konur fitnað töluvert án þess að fara upp um stærð. 7. Æ algengara verður að ís- lensk fermingarbörn þurfi að láta sérsauma á sig föt fyrir stóra daginn. 8. Meðgöngukrem seijast bet- ur f apótekum fslands þegar sól tekur að hækka á lofti. Skýringin er sú að sum ferm- ingarbörn grípa til þess ráðs að fjárfesta í túbu í þeirri von að slit vegna offitu minnki. ? rannsókn sem gerð var á níu ára skólabörnum á ís- landi fyrir nokkrum árum kom f Ijós að börn höfðu bæði hækkað og þyngst yfir 60 ára tímabil. Þyngdaraukn- ingin var þó töluvert umfram það sem eðlilegt mátti telj- ast. Stelpurnar höfðu að meðaltali þyngst um 4,6 kg en strákarnir um 5,1 kg. 10. Offituvandinn hefur orðið til þess að stór hluti barna og unglinga hefur miklar áhyggjur af þyngd sinni. Jafnvel þau sem þurfa þess ekki. íslensk börn voru þau feitustu í Evrópu fyrir Qórum árum og eru á „góðri“ leið með að verða þau feitustu í heimi ef ekki verður gripið til stórtækra aðgerða. Yfir- völd hafa brugðist hægt og illa við og svo virðist sem meirihluti þjóðarinnar geri sér ekki grein fyrir hversu alvarlegt vandamál offita barna og unglinga er. Gaui litli segir vandamálið gríðarlega stórt og úrbóta sé þörf. Offita var nánast óþekkt meðal íslenskra barna fyrir nokkrum áratugum síðan en nú er svo komið að fermingarstelpur kaupa meðgöngukrem í stórum stíl til að koma í veg fyrir slit af völdum offitu og ekki er óalgengt að sérsauma þurfi fermingarföt á ís- lensk fermingarbörn. Gaui litli „Krakkar hreyfa sig litið og mataræði landsmanna hefur breyst mikið til hins verra síðustu áratugina. ...Offita er ekki einstaklingsvandamál. Það eru foreldrarnir sem kaupa inn, smyrja nestið, elda og leggjast ísukk og svínari. Oftar en ekki eiga feit börn offeita foreldra þótt það sé engin regla." Guðjón Sigmundsson, sem íslend- ingar þekkja betur sem Gauja litla, hefur haldið námskeið íyrir of feit böm og unglinga undanfarin sex ár með góðum árangri. Hann segir vandamálið gríðarlega stórt. „Síðustu tíu ár hefur of þungum bömum á ís- landi íjölgað um tæplega helming og fyrir fjómm árum síðan áttum við feit- ustu böm í Evrópu. Þjóðverjar tóku þann titil af okkur fyrir tveimur árum síðan. Það er talað um að við séum tíu árum á eftir Bandaríkjamönnum í ofBtu bama og unglinga en þróunin er hröð hér á landi og við gætum náð þeim eftir 4-5 ár ef fram heldur sem horfir,“ segir Gaui. „Yfirvöld hafa bmgðist mjög hægt við þessu vanda- máfi og meðferð er mjög erfið. Með röngum áróðri er hætt við að maður reki bömin í anorexíu og búlimíu." Andlegt ástand spilar stóra rullu Gaui segir að offita sé að stóm leytí sjálfskaparvíti. „Krakkar hreyfa sig Út- ið og mataræði landsmanna hefur breyst mikið tif hins verra síðustu ára- tugina. En andlegt ástand spilar lfka stóra rullu sem gerir það að verkum að erfitt er að eiga við þessa hluti nema unnið sé að því að byggja krakkana upp. Eftir að einstaklingur- inn nær að takast á við sjáifan sig er eftirleikurinn auðveldur." Ungmennin sem hafa sótt nám- skeið Gauja skipta hundruðum. „Nið- urstöður rannsókna sem við höfum gert benda tii þess að námsárangur krakkanna eykst að loknu námskeið- inu, einelti alit að því hverfur, þau fara að stunda íþróttir og mataræði fjölskyidunnar bamar. Offita er ekki einstaklingsvandamáf. Það em for- eldramir sem kaupa inn, smyrja nest- ið, elda og leggjast í sukk og svínarí. Oftar en ekki eiga feit börn of feita for- eldra þótt það sé engin regia.“ Enginn talar um fílinn í stof- unni Offita og matarfikn em smám saman að verða stærra heilbrigðis- vandamál en tóbaksreykingar og rannsóknir sýna að fleiri deyja úr sjúkdómum tengdum offitu en láabbameini. „Offita er tabú, svona eins og áfengisfikn hérna áður fyrr,“ segir Gaui. „Of feitum einstaklingum er bara sagt að hætta að borða og byrja að hreyfa sig. Það segir enginn aikóhólista í dag að „hætta bara að drekka". Svo erum við aiveg ofboðs- lega slungin að „kóa“ með fólki. Við erum ekkert að tala um þennan fíl í stofunni. Við bendum ekki á hann og segjum: „Þessi einstaklingur er of feit- ur, það þarf að gera eitthvað fyrir hann.“ Þessi umræða kemur aUtaf upp á haustin þegar fólk er að rísa upp úr sukki og svínaríi sumarsins. Þá á að fara að vinna sig í jólakjólinn. Svo eftír áramót þarf að vinna sig út úr jól- unum. Svo er það eins með páskana og á sumrin gefur fólk skít í aiit, það þykir bara töff að vera með bjórvömb að grilla og fólk ákveður að taka sig á um haustið." Sykraðir hamborgarar á McDonalds „Við erum alveg meðvituð um hvað er í gangi en þegjum þetta hel- vítis til," segir Gaui og er mikið niðri fyrir. „Það er engin ein lausn til. Stærsta vandamál heilbrigðisstofn- ana í Bandaríkjunum er að þær ná ekki tíi almennings með boðskapinn vegna ofgnóttar af skyndilausnum. Skyndilausnaiðnaðurinn veltir tug- um mifljarða á ári, tölumar em gígantískar. Þetta er ekki jafnslæmt hérna heima þótt ástandið sé hvergi nærri gott." Hann segir ýmis fyrirtæki gera iflt vena í þeim tilgangi að hala inn hærri summur. „Það er orðið 20% meira í kexpökkunum, þú borgar meira fyrir venjulegt Snickers en júmbóstærðina og McDonald’s- menn sykra hamborgarana sína. Það em þessir óbeinu hlutir á gráum svæðum sem höfða til undirmeðvit- undarinnar og hvetja til ofneyslu." Getum við sjálfum okkur um kennt? Sjálfur segist Gaui ekki hafa verið feitt barn. „Ég er náttúrulega bæði stór og þrekinn. Erfi það úr föðurætt- inni. Bræður mínir vom það mjóir að þeir blotnuðu ekki í sturtu. Ég er af þeirri kynslóð sem þurfti að ganga í fötum eldri systkina. Ég passaði ekki í föt bræðra minna og smám saman sí- aðist það inn í undirmeðvitundina að ég væri feitur. Þegar ég skoða gamiar myndir af mér í dag sé ég að ég er það alls ekki. Ég byrjaði að fitna á síðari hluta unglingsáranna þegar ailt var komið í óefni og er enn að kijást við þetta vandamál í dag.“ Gaui segist hafa gengið bæjarfélaganna á milii sem bam. „Hér skutla ég dóttur minn í skólann sem er í 500 metra fjarlægð. Kannski getum við sjálfúm okkur um kennt að stórum hluta. Hraðinn er meiri og aðstæður öðmvísi. Það já- kvæða er að foreldrar em farnir að kveikja fyrr en þeir gerðu. Það er grát- legt þegar þeir dúkka upp með ferm- ingarbam sem þarf að létta um 20-30 kíló til að það passi í einhver föt.“ þitt of Til er tiltölulega einföld leið til þess að greina ofiitu barna. Notaður er^ sérstakur iíkams- .4jpí þyngdarstuðull (LÞS) sem er fund- inn út svona: LÞS = Þyngd i kíló- grömmum/hæð i metrum i öðru veldi. EfLÞS er hærri en 19,7er barnið ofþungt. Ef LÞS er hærri en 23 er barnið of feitt. Fyrir tveimur árum var stofnaður sérstakur vinnuhópur um greiningu og meðferð offitu og ofþyngdar en hann skipaði fólk úr hinum ýmsum stéttum heilbrigðisgeirans. Fyrir nokkrum dögum síðan birti hópur- inn drög að klínískum leiðbeining- um um efríið á vef Landlæknisemb- ættisins. Eftirfarandi punktar em meðal þess sem þar kemur fram en drögin í heild sinni má finna á www.landlaeknir.is. • Gróflega má ætla að um fimmt- ungur íslenskra bama sé ofþungur og eitt af hverjum 20 of feitt. • Helstu ástæður em aukið fram- boð á orkuríkum og gimilegum mat og að ekki hefur tekist að aðlaga orkuneyslu að minnkandi orkuþörf sem fylgir minni líkamlegri áreynslu f nútímaþjóðfélagi. • Offita á unglingsárum leiðir oft- ast til offitu á fuilorðinsaldri og er ávísun á fjölmörg heilsufarsvanda- mál sem oft em vanmetin, svo sem háþrýsting, sykursýki, blóðfiturask- anir ásamt álagi á bein og liðamót auk sálrænna og félagslegra vanda- mála (svo sem þunglyndis og einelt- is). • Meðferð offitu hjá bömum og unglingum er vandasöm og árangur yfirleitt lélegur og því em fyrirbyggj- andi aðgerðir afar mikilvægar. • Engin einföld meðferð er til sem er áhrifarfk gegn offitu. Mikilvægt er að hafa í huga að meðferð offitu hjá bömum felst fýrst og fremst í lífs- stílsbreytingu með megináherslu á mataræðisbreytingu, aukna hreyf- ingu og minnkaða kyrrsetu. • Langtímaárangur næst ekki nema með viðhorfsbreytingu. Heilsusamlegt mataræði er eindreg- ið ráðlagt en lagst er gegn ströngum einhæfum matarkúrum sem geta gert ástandið verra og hindrað eðli- legan líkamlegan þroska. Asættan- legt markmið meðferðar fyrir flest of feit eða of þung böm, sem ekki hafa lokið hæðarvexti, er að við- halda óbreyttri líkamsþyngd eða hægja verulega á þyngdaraukningu. • Undirliggjandi sjúkdómar, s.s. efnaskipta- eða hormónasjúkdómar em sárasjaldgæfar orsakir offitu hjá bömum og unglingum. • Markmið meðferðar er fyrst og fremst að styðja viðleitni fjölskyldu barnsins til að breyta lífsstfl og lífs- háttum. Fullyrða má að ekki næst árangur nema með fullri þátttöku foreldra eða forráðamanna bams- ins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.