Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Page 47

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Page 47
DV SíOast en ekki síst MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2004 47 Þegar ég var unglingur fór ég um heiminn og skoðaði heil listasö&i: f London, París, Munchen, Vín, Vatíkanið. Gekk daga langa og fannst ég svíkjast um ef ég staldraði ekki við og hugleiddi hverja mynd. Núorðið, ef ég fer á annað borð á listasöhi, hef ég þá reglu að fara bara inn til að skoða eina mynd. Síðast þegar ég var íBerlínfór égíAlte Nationalgallerie til að horfa á þessa mynd - gekk hratt gegnum saiina tíl að sjá ekki hin- ar - Todesinseln, Dauðaeyjuna, eftir Arnold Böcklin. Ég veit svo sem voða h'tið um myndina og málarann og ætla ekkert að fara að lesa mér til. Minnir að ég hafi fyrst séð hana utan á Penguin Classics kilju - _ það gætí hafa verið eitthvað eftir gjH Nietzsche. Alla vega er draum- kennd rómantísk tilfmning í myndinni sem höfðar til mín; þessi kuflklædda vera, hver sem hún er, sýpressurnar, kirkju- garðatré í Suður-Evrópu, tré sem drekka í sig ljós og myrkur; kyrrð- in í myndinrú. Ég þarf svo sem ekki að útlista það nánar - þetta er æðislegt verk. Eyja hinna nanðu Arnold Böcklin var Svisslendingur og fæddist i Basel þann 16. október 1827.Hann var sonur kaupmanns og var eetlað að feta í fótspor föður slns en þráði frá unga aldri að gerast málari. Þrátt fyrir andstöðu pabbans tókst honum það og lærði málaralist i Dusseldorf þar sem kennarar hans voru gegnsýrð- ir rómantisku stefnunni sem nokk- uð var farin að þróast íátt til sym- bó/isma. Böcklin heillaðist af Itallu og italskri málaralist þar sem klassísk áhrifvoru sterk. Á árunum 1874-1884 varhann búsettur í Flórens og hafði þá unnið sér sllkt nafn fyrir sterkar, fallegarog stundum allt að því dulrænar myndir sínar - þar sem blönduðust saman stefúr goðsagnaveröld og rómantískt landslag - að hann var kominn með sinn eigin hóp aflæri- sveinum. Jafnframt voru myndirhans orön- ar eftirsóttar og á þessu tímabili málaði hann sína langfrægustu mynd, Eyju hinna dauðu. Myndina málaði hann samkvæmt pöntun frá konu nokkurri sem hafði beðið hann um„eitthvað tilað dreyma Arnold Böcklin Sonurkaupmans og ætlaði að feta I fótspor föðursins en þráði frá unga aldri að gerast málari. um". Það var verkefni við hæfi Böcklins sem iðulega ræddi um að myndirnar hans ættu helst að vekja einhvers konar draumkennd- ar óáþreifanlegar tilfinningar með áhorfandanum. Og hefur greini- lega tekist í tilfelli Egils Helgasonar. Engar skýringar lét Böcklin fylgja á því hverþessi dauðaeyja væri eða hver mannveran væri sem er að koma siglandi á kænunni en myndin sló strax í gegn. Böcklin sjálfur var reyndar svo hrifinn af henni að hann málaði afhenni nokkrar útgáfur. Þær eru þó afar svipaðar en blæbrigði í birtu og lit svolitið ólík. Siðustu árin bjó Böcklin í villu sinni San Domenico, nálægt Fiesole. Hann málaði fram á dánardægur sitt lö.janúar 1901 enaukmálara- listar hafði hann mestan áhuga á flugi og mun - eins og Leonardo da Vinci - hafa gert tilraunir til að hanna vængi sem gætu lyft mann- inum frá jörðinni svo hann fengi að svifa eins og fugl um loftið. Mottó Böcklins var:„Það er enginn endir á skáldskapnum í fegurð- inni." Skírdagur Á höfuð- borgarsvæð- inu dropar úr lofti en ekki hvasst. Óvenjuhíýtt og ákjósanlegt veður fyr- ir gangandi vegfarendur með regnhlíf. A Akureyri verður svipað veður en þörf fýrir regnhlífar minni og sömu sögu má segja um Egilsstaði. Föstudagurinn langi Kólnar heldur í veðri í Reykja- vík og fiystir fýrir norðan. Sést gæti tíl sólar í höfuðborginni en snjóél á Akureyri með tilheyrandi næðingi. Sama saga á Egilsstöðum. Laugardagur fyrirpáska Hlýnar á ný um allt land en ger- ist mishratt. í Reykjavík verður gott veður, lítill vindur en hætta á rign- ingu. Fyrir norðan og austan mjakast hitastígið upp fyrir fros6%*. mark. Páskadagur Vel messufært um land allt. Mild- ar suðlægar áttir. í Reykjavík má búast við lítilsháttar rigningu og það gildir reyndar um landið allt. Hití í höfuðborginni gætí farið upp í 8 stig. Annarípáskum Hálfgerð lognmolla og áttleysa í Reykjavík. Gott veftur tíl að hreyfa sig og hundinn. Bærilega hlýtt. MYNDFORM ERTU AIVEG; ÓÐ KOMIN I NÆSTU VERSLUN A MYNDBANDI OG MYNDDISK Myndform ehí I sími: 534 0400 I myndform.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.