Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAl2004
Sport DV
Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu hefst í kvöld með leik ÍBV og Breiðabliks í Vestmannaeyjum og ef
marka má þær breytingar sem hafa orðið á liðunum í deildinni eru nýir tímar að renna upp.
Lýkur einokun KR og
Breiöabiiks í sumar?
Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu hefst í kvöld með leik
ÍBV og Breiðabliks í Vestmannaeyjum en hinir þrír leikir fyrstu
umferðarinnar fara fram á fimmtudaginn. Eyjastúlkur eru til alls
líklegar í sumar, unnu deildabikarinn á dögunum og var spáð
titlinum í árlegri spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna félag-
anna átta sem spila í deildinni í sumar. Það bendir líka margt til
þess að 14 ára einokun KR og Breiðabliks sé á enda, bæði lið eru
ekki eins sterk og áður og sigurstranglegust þykja lið ÍBV og
Valur, sem hafa beðið lengi eftir fslandsmeistaratitiinum.
KR og Breiðablik hafa unnið alla
íslandsmeistaratitla frá árinu 1989,
14 að tölu, Breiðblik hefur unni’ átta
og KR sex, þar af tvö síðustu ár. Þrátt
fyrir að bæði þessi lið setji örugglega
stefnuna á titilinn líkt og áður eru
sterkir leikmannahópar ÍBV og Vals
líklegir til að hafa betur í baráttunni
við sigurhefðina hjá KR og
Breiðabliki. Líkt og áður eru átta lið í
deildinni, efsta liðið eftir 14 leiki er
meistari, liðið í 7. sæti fer í umspil og
liðið í 8. og síðasta sætinu fellur í 1.
deild.
ÍBV
í fyrra fékk Eyjaliðið silfur í bæði
deild og bikar sem er besti árangur
kvennaliðs félagsins frá upphafi. Á
dagskránni í ár er að fara alla leið og
vinna stóran titilinn en fyrsti
bikarinn kom til Eyja á dögunum
þegar ÍBV vann Val, 3-1, í úrslitaleik
deildabikarsins. Byrjunarliðið er
mjög sterkt en liðið má ekki mikið
við forföllum.
Auk sterkra erlenda leikmanna
eins og Karen Burke og Michelle
Barr og reynslubolta eins og Olgu
Færseth og írisi Sæmundsdóttir er í
liðinu 18 ára stúlka að nafni Margrét
Lára Viðarsdóttir sem er þegar orð-
inn ein allra besta knattspyrnukona
landsins. Margrét Lára varð þriðja
markahæst í deildinni í fyrra og gaf
þar að auki flestar stoðsendingar
þrátt fyrir að spila ekki 2 af 14 leikj-
um mótsins. Hún skoraði 18 mörk
og átti 12 stoðsendingar í þeim 12
leikjum sem hún spilaði.
Við hlið hennar í framlínunni er
Olga Færseth, 208 marka manneskja
í deildinni, sem vantaði aðeins eitt
mark í fyrra til að skora yfir 20 mörk
fjórða árið í röð. Sóknin verður því
ekki vandamál í Eyjum í sumar en
það sem ræður mestu um gengi liðs-
ins er hvernig liðinu gengur að verj-
ast og þá sérstaklega í úrslitaleikjum
mótsins. Spáin: 1. sæti.
Valur
Það hefur verið beðið eftir að
Valsliðið blómstri undanfarin tvö
tímabil en bæði þessi sumur hefur
árangur liðsins á íslandsmóti ekki
uppfyllt væntingar fyrir mót.
Valsliðið vann þó bikarkeppnina á
síðasta tímabili og hefur leifdð mjög
vel á undirbúningstímabilinu og því
eru væntingarnar engu minni fyrir
sumarið í ár. Valur hefur fengið góð-
an liðstyrk fyrir tímabilið og hópur-
inn er orðinn mjög jafn og breiður
og fá lið eiga eftir að þola betur for-
föll í sumar en Hlíðarendaliðið. Lið-
ið er vel spilandi frá aftasta manni
og eru auk þess með marga fljóta
sóknarmenn innan sinna raða. Það
verður örugglega gaman að horfa á
Valsliðið spila í sumar en það væri
enn skemmtilegra að sjá
Valsstelpurnar sanna sig sem sigur-
vegara í stað þess að missa fótanna
einu sinni enn á úrslitastundu. Spá-
in: 2. sæti.
KR
KR-liðið hefur nú misst alla burð-
arása úr sóknarleiknum frá því að liðið
setti markamet fyrir tveimur árum og
munar um minna fyrir
íslandsmeistara tveggja síðustu ára.
Fyrir tímabilið í fyrra missti liðið Olgu
Færseth og nú em þær Hrefna Jó-
hannesdóttir og Ásthiídur Helgadóttir
horfnar á braut. Hrefna varð marka-
drotming í fyrra og Ásthildur var besti
leikmaður deildarinnar undanfarin
tvö timabil. Eftir stendm traust vam-
arlið sem fær örugglega ekki mörg
mörk á sig í sumar en það er mikill
missir að sjá á eftir öllum helstu
markaskorurum sínum á svo stuttum
tíma. Sóknarleikminn verður þvl ör-
ugglega mesti höfuðverkminn fyrir
Halldóm Sigurðardóttm sem þreytir
nú frumraun sína sem aðalþjálfari í
deildinni. Spáln: 3. sætl.
Breiðablik
Breiðablik hefur gengið í gegnum
mikil kynslóðarskipti á undanförn-
um tímabilum og eftir standa ungar
stelpur sem em komnar með ágæta
reynslu og þurfa nú að fara að sýna
hvort þær geti komið liðinu aftur á
fyrri stall á topppnum. Breiðablik
hefur alltaf verið stemningslið með
sterka liðsheild og það hefur oft
komið liðinu langt. Margrét Sigurð-
ardóttir hefur tekið við liðinu og
mun eflaust reyna allt til þess að fá
efniiegustu leikmenn sína til að
blómstra og verða að þessum lands-
liðsmönnum sem liðið þarfnast í
sumar. Breiðablik á íslandsmeistara
í 2. flokki í fyrra og í 3. flokki síðustu
tvö ár og það ætti því ekki að líða
mjög langur tími þar til Breiða-
bliksliðið verður komið í fremstu
röð á nýjan leik. Þetta sumar bætist
þó örugglega við hlið hinna tveggja á
undan sem undirbúningsár fyrir
enn eina yfirtöku Breiðabliks í ís-
lenskri kvennaknattspyrnu. Spáin
4. sætl.
Stjarnan
Stjaman hefur misst tvo lykil-
Það verður örugglega gaman að horfa á
Valsliðið spila í sumar en það væri enn
skemmtilegra að sjá Valsstelpurnar sanna sig
sem sigurvegara í stað þess að missa fótanna
einu sinni enn á úrslitastundu.
menn í Vesturbæinn fyrir þetta
tímabil og munar mestu um mark-
vörðinn Maríu Björgu Ágústsdóttur
sem hefur haldið liðinu oft á floti
undanfarin ár. Stjarnan hefur
nokkra efnilega leikmenn innan
sinna raða en reynsla þjálfarans
Auðar Skúladóttur er bara ekki nóg
fyrir allt liðið og reynsluleysi liðsins
verður vandamál í sumar þrátt fyrir
að margar af ungu stelpunum hafi
spilað nokkur ár í deildinni. Stjarnan
er ekki líkleg til afreka í sumar og
það er heldur ekki víst að liðið sleppi
við fallbaráttuna, gangi illa í upphafi
móts. Spáín 5. sæti.
FH
FH-liðið kom flestum á óvart
með vaskri framgöngu í fyrra og
stelpurnar stóðu sig mjög vel án
hjálpar frá erlendum leikmönnum
i j II í iji ~r ':vl
'f w' Míh mm II i|/l H í i / / 0 má I? m
’1 Iwl M III7I \ w Wjil.
Meistarar síðustu tvö ár KR hefur orðið Islandsmeistari kvenna í knattspyrnu síðustu tvö ár
og alls i sex skipti frá árinu 1993. Margt bendir til að hvorki KRné erkifjendur þeirra síðustu ár,
Breiðablik vinni titilinn I ár þvi lið IBV og Vals eru sigurstranglegust fyrir mót.
KR og Breiðablik hafa unnið alla
íslandsmeistaratitla frá 1990