Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Blaðsíða 9
DV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ2004 9 Skyndi- hleranir úr frumvarpi Allsherjarnefnd Alþingis hefur fellt út úr frumvarpi Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra nýja grein sem átti að bætast í lög um með- ferð opinberra mála og kvað á um að heimilt yrði að hlera síma og fjarskipti manna í einn sólarhring án þess að fyrirfram lægi fyrir um það úrskurður dómara. Meðal annars Persónuvemd, Lögmannafélag fslands og réttarfarsnefnd bentu á að þetta ákvæði stæðist ekki stjórnarskrá og mannrétt- indasáttmála Evrópu. Réttar- farsnefnd sér að öll jöfnu um smíði laga sem snerta réttar- far en dómsmálaráðherra hafði sniðgengið nefndina að þessu sinni. Átta ára með byssu Um helgina barst lög- reglunni í Reykjavík til- kynning ffá konu um að átta ára dóttir hennar hafi verið að koma heim og sagt sér að vinkona hennar, sem er einnig átta ára, hafi verið að leika sér með skotvopn föður síns. Lögreglan hélt strax á heimili eig- enda skotvopnsins og ræddi við hann. Var honum síðan gert að ganga frá byssunni á við- eigandi hátt. Frjálslyndir farsakenndir Kristján Kristjánsson, einn stjórnandi Kastljós- þáttarins í Rfldssjón- varpinu, seg- ir mótmæli Ólafs F. Magnússon- ar við vali á viðmælend- um í Kastljós vera „farsa- kennt rugl". Ólafur telur stjórnendur Kastljóssins bera hagsmuni Frjálslynda flokksins fyrir borð með því að bjóða ekki í sjónvarpssal fuUtrúum flokksins tfl jafiis við fiflltrúa annarra stjórn- málaflokka. FuUtrúi Frjáls- lyndra í útvarpsráði, Kjart- an Eggertsson, beindi því í gær til Magnúsar Arnar Antonssonar útvarpsstjóra að Kristján taki aftur orð sín um farsakennt rugl. Þessi orð koma fram í svar- bréfi Kristjáns vegna kvört- unar Ólafs. Fullurá nærbuxum Starfsfólk verslunar við Bústaðaveginn neyddist til að óska eftir aðstoð lögreglu á laugar- dagsmorgun vegna manns sem lét fllum lát- um í versluninni. Við- komandi var á nærbux- unum að þvælast um inni í versluninni og angraði starfsfólk og kúnna. Hann var áber- andi ölvaður og neitaði svo að gefa upp nafn og heimflisfang er lögreglan kom á vettvang. Hann var vistaður í fanga- geymslu þar sem hann fékk að sofa úr sér vímuna. Hvítt þrælahald í háloftunum. Flugmenn á smánarlaunum sem verktakar. Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður segir engin lög eða reglur gilda um starfsmannaleig- ur. Hann segir málið vera íslenskum stjórnvöldum til vansa. „Ég lít svo á að með því að ráða flugmenn utan EES-svæð- isins án atvinnuleyfa sé verið að brjóta með alvarlegum hætti gegn íslenskri löggjöf og EES-reglum um atvinnuleyfi á Evrópska efnahagssvæðinu," segir Atli Gíslason hæstaréttarlög- maður sem rekur mál Félags íslenskra atvinnuflugmanna á hendur íslenskum stjórnvöldum vegna meintra lögbrota varð- andi erlenda flugmenn sem ráðnir eru í gegnum áhafnaleigur. Flugfélagið Atlanta er með flesta leiguliða í vinnu en allt að 400 flug- menn starfa hjá félaginu og yfirgnæf- andi meirihluti þeirra er ráðinn sem leiguliðar á mun lakari kjörum en gerist hjá launþegum. Heimildar- menn DV meðal flugmanna Atlanta líkja þessu gjama við hvítt þrælahald í háloftunum. Ekki hafa fengist upp- lýsingar um það við hvaða áhafna- leigur félagið skiptir aðrar en Ace og Airbome sem báðar eru sagðar vera skúffufyrirtæki Atlanta. Atli segir að engin lög eða reglur gfldi um áhafna- leigur. Hann segist vera þess viss að í mörgum tflvikum sé um að ræða málamyndasamninga við verktaka. „Það gflda engar reglur um starfs- mannaleigur. Málamyndasamningar standast ekki íslensk lög. Ég hef sjálf- ur skoðað samninga sem áhafnaleig- ur gera og þeir standast alls ekki. Svo hef ég vissa ástæðu tfl að ætla að skattskfl af launum þessara flug- manna séu dapurleg. Ef tfl að efast um að staðgreiðsla af laun- um og launatengd gjöld skfla sér tfl íslands. Það er langt síðan við vökt- um athygli á þessu gagnvart ráðuneytum og skattayfirvöldum en „Svo hefég vissa ástæðu til að ætía að skattskil aflaunum þessara flugmanna séu dapurleg. það hefur ekkert komið út úr því. Það er mjög tfl vansa," segir Atli. Hann segir að önnur hlið þessara mála snúi að samkeppnislögum. Þar sé ekki saman að jafna reksnarstöðu flugrekenda sem hafi launþega í vinnu eða hinna sem byggi reksturinn á leiguliðum. „Ég sé ekki betur en að þessi hátt- Atli Gislason Fer með kærumál á hendur íslenskum stjórnvöldum til Eft- irlitsstofnunar EFTA. g hef ástæðu semi fari í bága við sam- keppnisreglur. Það er óþolandi fyrir samkeppnisaðila að búa við slíkt," segir Atli. Guðjón Arngrímsson, upplýsinga- fulltrúi Flugleiða, segir að félagið hafi ekki nýtt sér þjónustu áhafhaleiga heldur séu flugmenn þess á íslenskum kjarasamningum. Hann segir að það sé mat stjórnenda félagsins að mikil- vægt sé að halda þeirri reynslu og þekkingu sem ílugmenn búi yfir í íandinu. Atlanta Flestir leiguliðanna sem ráðnir eru á islenskar vélar koma I gegnum flugfélagið Atlanta. Ekki fást upplýsingar þaðan um hver eigi áhafnaleigur sem skráðar eru í skattaparadísum erlendis. „Við höfum því ekki farið þessa leið," segir Guðjón. Hann segir þó ljóst að samkeppnis- staða skekkist vegna þessara mála þar sem launakostnaður þeirra flugfélaga sem leigi starfsfólk sé mun lægri. rt@dv.is Hótunarsímtal Davíðs Oddssonar Uppstokkun innan Flugleiða Umboðsmaðurenn ekki í skjól Alþingis „Ég spurðist fyrir um það hvort umboðsmaður Alþing- is hefði leitað skjóls hjá for- seta þingsins eða forráða- mönnum hvað varðar meint óeðlileg samskipti forsætis- ráðherra við hann. Því var svarað neitandi," segir Guð- mundur Árni Stefánsson, fyrstivaraforsetiAlþingis, um hótunarsímtal Davíðs Odds- sonar við Tryggva Gunnarsson, um- boðsmann /flþingis. Eins og DV hef- ur greint frá hringdi Davíð í Tryggva eftir að fyrir lá álit umboðsmanns um að skipan frænda Davíðs, Ólafs Barkar Þorvaldssonar, færi á svig við lög. Umboðsmaður hefur lýst því við trúnaðarmenn sína að símtalið hefði falið í sér ógnun og hann íhugar að gera Alþingi grein fyrir mállinu. Sjálfur verst Tryggvi allra fregna. „Ég tjái mig ekki um málið," sagði hann við DV í morgun. Litlar líkur eru taldar á því að sjálfstæðismaðurinn Halldór Blöndal þingforseti óski eftir upplýsingum um efni sfmtalsins. Heimildir DV herma að umboðsmaður óttist að forsætisráðherra reyni að koma á sig höggi og hefni sín með því fyrir- byggja að hann verði endurkjörinn af þinginu þegar þar að kemur, árið 2007. En Tryggvi hefur umboð þingsins fram yfir næstu alþingis- kosningar. Davíð Oddsson Baugur og Fengur selja Baugur og Fengur hafa selt alla -ÆSSSBf— hluti sína í Flugleiðum og fóru við- skiptin fram á genginu 9,0 sem er um 22% hærra en gengi í síðustu viðskiptum á föstudag. Baugur selur 21,14% í Flugleiðum og Fengur 5,8% og er samanlagt söluandvirði um 5,6 milljarðar kr. Kaupandi er óstofnað einkahlutafélag í jafnri eigu Saxhóls ehf. og Bygg ehf. og eru viðskiptin fjármögnuð með framvirkum samn- ingi við Landsbanka íslands. Þetta þýðir væntanlega uppstokkun í stjórn Flugleiða og sölu á starfsemi. Eins og fjallað var um í Vegvísi Landsbankans á föstudag var af- koma Flugleiða á fyrsta ársfjórðungi nokkuð undir væntingum en þó er um ágætan bata frá fyrra ári að ræða og horfur eru almennt góðar ef litið er framhjá mikilli hækkun eldsneyt- isverðs. Að mati greiningardeildar Lands- bankans er gengið í viðskiptunum Baugur selur í Flugleiðum Baugur og Fengur hafa selt alla hluti sína I Flugleiðum. mjög hátt en til samanburðar er verðmatsgengi greiningar sem gerð var í lok mars 6,91. Kaupin verða því ekki skilin öðruvísi en svo að nýir eigendur bréfanna hyggi á samstarf við stærsta hluthafann, Oddaflug ehf, og að vænta megi skipulags- breytinga á starfseminni. Til greina kæmi að félagið selji burt þá starf- semi sem ekki tengist beint flug- rekstri en það myndi þýða að eftir yrði innanlands- og millilandaflug sem og leigu- og fraktflug.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.