Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Blaðsíða 23
DV Fókus ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ2004 23 i5it*ÉS Stjörnuparið Cameron Diaz og Justin Timberlake gerðu Ijósmyndurum á Cannes-kvikmyndahátíð- inni það Ijóst að undir engum kringumstæðum mætti mynda þau saman. Parið hefur verið sam- an í rúmt ár en vill ekki enn opinbera samband sitt í fjölmiðlum. Diaz og Justin voru með hverja stjörnustælana á eftir öðrum á hátíðinni og mættu til dæmis ekki í eftirpartí vegna þess að þar var ekkert VlP-herbergi. „Þau geta greinilega ekki skemmt sér með neinum öðrum en stærstu stjörnunum." Einnig kvörtuðu þau yfir matnum og spurðu hvað þau þyrftu eiginlega að gera til að fá almennilegan hamborgara. Kunnugir sögðu stælana óþarfa þar sem maturinn hefði verið frá- bær. Leikkonan Sadie Frost fer fram á tíu milljón gQpunda geiðslu í skilnaði sínum við leikarann Jude Law. Sadie krefst þess að halda fimm milljón punda húsi sem þau áttu saman, vill fá fimm milljónir í reiðufé auk þess sem hún fer fram á 20 þúsund pund í viðbót mánað- arlega. Parið skildi síð- asta haust en þau eiga saman þrjú börn. Upphæðin sem Sadie fer fram á er einungis þriðjungur þess sem Jude fær í árstekjur og fer hann því létt með að gera henni til geðs. Parið hefur rifist síð- ustu mánuði vegna peninganna en ákváðu að semja frið barnanna sinna vegna. v== eina Victoria Beckham var á dögunum í verslunar- leiðangri klædd hvítum bol sem á stóð: Frú Beck- ham. Söngkonan var stödd í Hollywood og gekk búð úr búð þar til hún var klifjuð pokum fuilum af dýrasta tísku- fatnaði. Á nýjasta diski sínum, Resentment, syngur Victoria um að hún muni aldrei gleyma þeim sem særðu hana en hún muni reyna allt til að fyrirgefa. Textinn og bol- urinn þykir sýna fram á að hún hafi engu gleymt varðandi framhjáhald mannsins síns. Stj eð rau saman og segja: Hvað er að gerast? Hvað er að gerast? Sigurjón væri uppi á stöpli rétt hjá, hann myndi passa sig á að detta ekki, heldur byrja að spila á gítar. Svo kemur önnur þyrla með Dodda og hljómborðið. Síðan myndu þeir byrja lag. Og svo kæmi ég í gluggann og myndi syngja til fólksins og plokka bassann. En það er ekki nóg að vera með fr ábærar hug- myndir ef enginn er til í að taka þátt í þessu með manni.“ Jón telur helst að allir hinir séu búnir að fá sína útrás, Sigurjón á að baki feril sem tónlist- armaður og Doddi og Stjáni eru báðir í músík- bransanum. „Ég er í raun sá eini sem er hungraður. Strandverðirnir, eða Stjáni stuð og fjárhættuspilararnir, þetta eru hljómsveitir sem eru starfandi. Doddi er DJ meðan ég vil ýta þessu upp á annað og æðra plan. Kannsld verð ég að hugsa minn gang." jakob@dv.is ón er eiginlega Jiljómsveitarstjórinn en frá mínum bæjardyrum séð er hann alltaf að láta alla aðra gera „stuntin“. Hann er með miklar hugmyndir um að við eigum að koma úr kafi í ljósum logum, úr þyrlu og svona en sjálfur ætlar hann að vera úú í homi að plokka bassann sinn,“ segir Sigurjón Kjartansson út- varpsmaður. Hlustendur Skonrokks hafa fengið að fylgj- ast með stofnun hljómsveitarinnar „Show" í Tvíhöfða. Og í gærmorgun kom babb í bátinn og stefnir nú í að hljómsveiún hætti áður en kemur að fyrstu æfingunni. Meðlimirnir eru Jón Gnarr, Sigurjón, Doddi litli og Stjáni stuð. Valinn maður f hverju rúmi en allir eru þeir þekktar útvarpsstjömur. Að sögn Sigurjóns er það einkum Doddi litli sem er ósáttur við hugmyndir hljómsveitarstjórans Jóns því hann á að standa í ljósum logum í eldbúningi allan timann. „Hann vill að þetta snúist meira um tónlistina sem slíka og Stjáni er sammála því,“ segir Sigurjón. Fyrír liggur að Stjáni stuð er lofthræddur, eldhræddiu: og frekar vatns- hræddur líka. Hann er þeirrar skoðunar að best sé að hann verði bara við trommusetúð og trommi. En Jón Gnarr er þeirrar skoðunar að til lítils sé að vera með hljómsveit sem heit- ir Show ef ekkert er „show“-ið. Sigurjón segir hljómsveitina standa á krossgötum - fjórar vikur ffá því að hljóm- sveitin var stofnuð en nú lítur út sem svo að hún sé þegar komin að fótum fram. Hljómsveitarstjórinn er aö vonum óhress með gang mála og telur félaga sína vera meira í orði en á borði. „Ég er fyrst og fremst að kasta fram hugmyndum en menn eru stöðugt að draga í land. Ein hugmyndin er sú að við yrðum með trommusett á toppi Hallgríms- kirkju, svo yrði Stjáni látinn síga niður á settið úr þyrlu og byrja að spila. Fólk myndi safhast Reykir með hjálp aðstoðarmanns Ástralski leikarinn Russell Crowe er með sérstakan aðstoðarmann til að hjálpa sér að reykja sígarettur. Þar sem leikarinn var með boxhanska þegar hann lék í myndinni The CmdereUa Man gat hann ekki reykt hjálparlaust. Hann vandist óþægindunum og réði manninn til að sjá um að setja upp í sig sígaretturnar og taka þær út úr honum. Eina sem Crowe þarf að gera er að kinka kolli og þá stekkur aðstoðarmaður- inn til og réttir honum eina. 4+ * * % „Jón er með miklar ór pynlu og svona

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.