Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ2004 Fréttir DV Önd í óskilum Síðdegis á sunnudag kom óvanaleg beiðni frá húsi í Tryggvagötu til lög- reglunnar í Reykjavrk. Ósk- uðu húsráðendur aðstoðar við að koma önd ásamt 10 ungum út úr húsinu en öndin höfði gert þarna inn- rás ásamt ungum sínum og hreyfði sig hvergi úr húsinu þrátt fyrir tilraunir húsráð- enda að koma henni á dyr. Lögreglan gekk í málið og var hópnum komið í tjörn úti á Seltjanarnesi. Ókunnugurí sófanum Húsráðendur í ein- býlishúsi í Vesturbænum vöknuðu upp við vond- an draum á sunnudags- morgun er þau komu að ókunnugum manni steinsofandi í sófanum í stofu sinni. Lögreglan var kölluð til og í ljós kom að maðurinn hafði komið inn um svala- hurðina á húsinu og lagst til svefns. Sökum ölvunar mun hann lítið hafa munað eftir nótt- unni og fékk að fara sína leið eftir að lögreglan hafði rætt við hann. Veitingar í jarðhýsi Innbrotsþjófar rændu tölvuskjám og miðaldra ræstitækni af skrifstofu Flugfélags íslands í fyrrinótt. Þeir tóku hann í bílferð og slepptu honum Qarri íbúðabyggð við Ártúnshöfða. Starfsmenn ISS Starfsmaður hreingern- ingaþjónustunnar ISS var numinn á brott frá Flugfélagi islands i fyrrinótt. Myndin er frá ræstitæknum á Landakotsspitala. Desform ehf. sem á gömlu kartöflugeymslurnar í Ártúnsbrekku vill fá að breyta geymslunum í versl- anir, veitingastað og gallerí. Reyndar er þegar gallerí í húsunum. Desform vill leyfi borgaryfirvalda til að byggja geymsluhúsnæði neðanjarðar á vesturhluta lóðarinnar og lækka gólf undir öllum sjö einingum byggingarinnar. Þá á að byggja millipall í fimm hús- anna. Eldur í eldvörn Um helgina barst lög- reglunni í Reykjavík til- kynning um að kviknað hafi í steikarpotti með feiti í íbúð í Hólahverfi. Þar hafði olía í potú of- hitnað og kviknað í. Að sögn lögreglu reyndist húsráðandi einstaklega seinheppinn við að slökkva eldinn. Fyrst reyndi hann að slökkva með eldvarnarteppi en það kviknaði líka í því. Þá dældi hann úr slökkvitæki og slökkú eldinn en tækið stóð síð- an á sér og hvítt duft sprautaðist um alla íbúðina hans. ira Mugieianinu „Þetta er með dlíkindum," segir Jón Karl Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Flugfélags íslands, um mannrán á miðaldra ræsti- tækni frá skrifstofu flugfélagsins. Ræstitæknirinn var að þrífa hús- næðið þegar ræningjamir bmtust inn. Þeir mku beint í ræsútækninn og yfirbuguðu hann. Honum var haldið föstum á meðan fimm flatir tölvu- skjáir og sjónvarpsskjáir voru hreins- aðir út. Ræningjarnir yfirgáfu svæðið með góss og ræstitækninn og héldu áleiðis í átt að Ártúnsbrekkunni. Þar var ræsútækninum sleppt og var hans saknað í nokkra stund þar sem hann hafði engin úrræði til að láta vita af sér. „Við héldum í barnaskap okkar að það dygði að hafa mann á svæðinu," segir Jón Karl. Ræstitæknirinn er starfs maður hrein- gerninga- þjónustunn- ar ISS. Til allrar ham- ingju eru starfsmenn tengdir öryggis- kerfi Securitas og uppgötvaðist innbrotið því fljótlega. „Við vorum komnir í málið snemma í gærmorgun og fór- um að leita eftir honum. Það tók tíma fyrir hann að komast til baka,“ segir Guðmundur Guð- mundsson, framkvæmda- stjóri ISS á íslandi. „Við starfsmannastj órinn buðum honum áfalla- hjálp. Hann var ekkert meiddur eða neitt svo- leiðis og er í ágætu jafn- vægi og vildi bara halda áfram að vinna. Hann tekur þessu með jafnaðargeði, en er auðvitað brugðið. Honum var hótað og þeir tóku hann með sér og menn geta ímynd- að sér að það er óþægileg reynsla," segir hann. 500 ræstitæknar starfa hjá ISS á „Við héldum í barna- skap okkar að það dygði að hafa mann á svæðinu" íslandi og hefur fyrirtækið vaxið hratt síðustu ár. Ræstitæknirinn sem numinn var á brott er talinn hafa gert allt rétt í stöðunni. Hann var samvinnuþýður ræningjunum og lét lítið fyrir sér fara. Hann þykir hlé- drægur maður, lítt mannblendinn og góður starfsmaður. Ræningjarnir eru ekki fundnir en þeir sáust á eftirlitskerfi sem farið verður vandlega yfir. jontrausti@dv.is Er hann bjáni, þessi Birgir? Svarthöfði veltist um af hlátri þegar hann las grein eftir Birgi Her- mannsson stjórnmálaffæðing í tímariti Máls og menningar nýlega. Hann var að skrifa um „bolludags- málið" fræga sem upp kom í fyrra og stjórnmálafræðingurinn skildi hvorki upp né niður í því hvers vegna málið var svo skammlíft í fjöl- miðlum á sínum tíma. Það tók eigin- lega bara örfáa daga að fjara út, þá var aldrei meira á það minnst. Og þetta fannst Birgi skrýtið og tróð svo upp aftur jafn furðu lostinn í Silfri Egils á sunnudaginn. I öllum þeim löndum þar sem hann þekkti til hefði svona mál, um meintar mútu- Svarthöfði greiðslur til forsætisráðherra, hvorki meira né minna, ekki vikið af síðum blaðanna vikum og mánuðum sam- an og þingið hefði skipað rannsókn- arnefnd og löggan sett í málið. En hér á íslandi kom Davíð bara í KasÚjós og talaði eitthvað um verð á jarðarberjum í London og málinu var lokið. Þetta fannst Birgi skrýtið. Er hann bjáni, þessi Birgir? Veit hann ekki hvar hann býr? Nei, lík- lega ekki, enda kom það fram hjá honum að hann hefði verið lengi er- Hvernig hefur þú það? „Ég hefþað bara flnt. Er svolítið svekkturyfir þvl hvernig veðrið lék okkur á iaugardag- inn. Það er ekki auðvelt að hanga I köðlum og gera áhættuatriði I strekkingsvindi. En það gerði atriðin bara hættulegri og á endanum gekk þetta alveg upp. Annars er ég á fullu að undirbúa Rómeó og Júlíu sem fer aftur afstað I vikunni. Það er eiginiega svo mikið að gera að ég sé ekki fram á að komast I neitt annað I sumar. lendis. Og það er nú sök sér, en að ímynda sér að stjórnarhættir í út- löndum ættu að viðgangast hér á Is- landi. Það var skrýtin og fyndin til- hugsun. Og svona dæmalaust kjána- leg. Hann á heima á íslandi, íslandi, íslandi, hann á heima á íslandi, ís- landinu góða. Og hér tíðkast ekki að blaka við Davíð. Þetta ætti jafnvel maður sem hefur verið lengi erlendis að vita, sérstaklega þar sem hann skartar nafnbót stjórnmála- fræðings. Við vissum öll hvern ig málið var vaxið. Dav- íð hljóp á sig með einhverju bulli. Og við erum svo kurteis við Davíð, af hann er svo góður drengur, að við erum ekkert að vekja of mikla at- hygli á því þegar hann hleypur á sig. Ef við hefðum haldið áfram með málið, þá hefði fljóúega komið úr kaf- inu að þetta var allt tómt bull, og við vildum ekki þurfa að horfa upp á Davíð þurfa að horfa upp á sann- leikann. Því sannleikurinn snerist um hann sjálfan. Sannleikur- inn er hann sjálfur. Þetta átú Birgir að vita. Þess vegna hló Svarthöfði. Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.