Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ2004 Fréttir DV Brotist inn á bæjar- skrifstofu Skömmu fyrir helgina var brotist inn á skrifstofu Hveragerðisbæjar og þaðan stolið fartölvu. Að sögn lög- reglunnar á Selfossi mun vaktmaður hafa uppgötvað að gluggi var opinn á skrif- stofunni sem hafði verið lokaður rétt áður er hann átti þar leið um. Þrátt fyrir leit fannst enginn á ferli í nágrenni skrifstofunnar. Málið er í rannsókn. Hass í Hveragerði Lögreglan á Selfossi fann kannabisefni á manni sem var á ferð í Hveragerði skömmu fyrir helgina. Maðurinn sem er á fertugs- aldri, hafði ver- ið stöðvaður í hefðbundnu umferðareftirliti lög- reglu og þótti ástæða til að gera fíkniefnaleit hjá honum. Hann var síðan handtekinn og færður til yfirheyrslu og hann látinn laus að því loknu. Innbrot í þrjá sumarbústaði Um helgina var til lög- reglunnar á Selfossi tilkynnt um innbrot í þrjá samliggj- andi sumar- bústaði í landi Brjáns- staða í Gríms- nesi og þaðan stolið verk- færum, hljómtækjum og öðru smá- legu. Innbrotin hefðu átt sér stað á tímabilinu 2. til 15. maí. Að sögn lögreglunnar munu eigendur bústaðanna ekki hafa verið á ferli á því tímabili en lögreglan lýsir eftir upplýsingum um þessi innbrot og þá sérstaklega ef einhverjir hafa orðið varir við ijiannaferðir nálægt bústöðunum sl. tvær vikur. Höfuðborgarstofu „Það liggur á að ganga endan- lega frá dagskránni sem verður á Hátið hafsins á miðbakka Reykjavíkur- hafnar 5. til ö.júní næst- komandi og öllu því sem fylgir. Það þarftil dæmis að semja við Veðurstofuna um að veðrið verði gott og blltt þessa helgi og fólk geti skemmt sér við að sigla á seglskútum og árabát- um á innri höfninni. Það getur líka farið meö Sæbjörgu, gömlu Akraborginni, út á sundin og horft á Reykjavik frá öðru sjónarhorni en venjulega, sem er mjög hollt fyrir borgar- búa.“ Hvað liggur á? Nágrannar HM-Kaffis á Selfossi segja gesti staðarins halda fyrir þeim vöku og gera þarf- ir sínar i garða þeirra. Talsmaður hópsins, Sigríður Gréta Þorsteinsdóttir húsvörður, segist víbra í rúmi sinu þegar hæst lætur. Drukkinn gestur hafi hent flösku i gegnum stofurúðu hennar. Bæjaryfirvöld segja það hlutverk lögreglu að tryggja friðinn. tvsúkb Einar Guðni Njálsson Bæjar- stjórinn iÁrborg á að ræða við bæj- arlögmanninn um hugsanlegar lausnir á vanda ná- granna HM- Kaffis. hávaða. Stundum geri þeir þarfir sínar í og við lóðina. Keyrt hafi um þverbak um miðjan apríl. Þá hafi ekki verið vært í húsinu auk þess sem flösku hafi verið kastað í gegnum rúðu. Eðlilegu heimilislífi rústað Það var einmitt stofurúðan hjá Sigríði og eiginmanni hennar sem var brotin. „Það vantar að fólk sé siðmenntað og beri virðingu fyrir öðrum. Þetta nær ekki nokkurri átt. Svo er eins og það sé ekki klósett á staðnum. Þeir míga allsstaðar,“ seg- ir Sigríður. Nágrannarnar telja að sveitarfé- laginu beri skylda til þess að sjá til þess að á samþykktum skipulags- svæðum fyrir íbúðarhús sé hægt að hafa frið fyrir áreiti eins og því sem þau verði stöðugt fyrir. Ekki sé hægt að vísa til þess að gert sé ráð fyrir slíkum rekstri við Eyraveg ef hann „rústar eðlilegu heimilislífi í nær- liggjandi íbúðum." Nú sé mælirinn fullur: „Þess er krafist af bæjarstjórn að nú þegar verði gripið til viðeigandi ráðstafana þannnig að við íbúarnir verðum ekki fyrir frekari áreiti frá gestum staðarins," segja íbúarnir. „Hér í húsinu er fólk á níræðisaldri. Það get- ur ekki sofið í hjóna- herberginu heldur verður að vera í litla herberginu sem snýr frá barnum." Bærinn kaupi íbúðina Bæjarráð Arborgar hefur falið Ein- ari Guðna Njálssyni bæjarstjóra að leita ráða hjá lögmanni bæjarins um það hvað bærinn geti gert í málinu. Helgi Helgason bæjarritari segir í samtali við DV að þó að sveitarfélagið veiti vínveitingaleyfl sé það ekki hlut- verk þess að halda uppi lögum og reglu. „Það er lögreglan sem á að hafa eftirlitsskyldu með þessum veitinga- stöðum og sjá til þess að fólk hafi frið," segir Helgi. „Ef þetta fer ekki að ganga vil ég fara fram á það að bærinn kaupi íbúð- ina okkar þannig að við getum komist á einhvem rólegan stað,“ segir Sigríð- ur Gréta Þorsteinsdóttir. gar@dv.is „Við förum oft upp í sumarbústað til að flýja djöflaganginn. Meira segja ungu hjónin við hliðina á okkur sem eru með tvö lítil börn fara líka burt til að fá frið,“ segir Sigríður Gréta Þorsteinsdóttir á Selfossi um nábýlið við bjórkrána HM-Kaffi á Eyravegi 15. í bréfi sem Sigríður og tíu aðrir íbúar á Heiðarvegi 4 og við Eyraveg á Selfossi hafa sent bæjaryfirvöldum segjast þeir sem nágrannar HM- Kaffis ekki lengur geta orða bundist. Það sé vegna síendurtekins hávaða og áreitis sem gestir HM-Kaffis valdi þeim á nóttunni. Húseigandinn sagði að kráin yrði fjarlægð HM-Kaffi er nokkra tugi metra frá fjölbýlishúsinu á Heiðarvegi 4 sem byggt var fyrir þremur árum. Veit- ingareksturinn á sér á hinn bóginn meira en tíu ára sögu. Sigríður segir að þegar hún og maður hennar keyptu íbúðina á jarð- hæðinni á Heiðarvegi hafi þau einmitt séð skemmtistaðinn sem helstu fyrirstöðuna fyrir kaupunum. „Þá sagði sá sem byggði húsið og við keyptum af að barinn yrði ekki lengi þarna áfram. Okkur finnst það nú orðið ansi lengi því það eru orðin þrjú ár í september á þessu ári,“ seg- ir hún. Nýir eigendur tóku við HM-Kaffi fyrir nokkru og hefur sveitarfélagið Arborg veitt þeim sex mánaða vín- veitingaleyfi til reynslu. Með leyfinu, sem rennur út 1. ágúst, fylgdi ábend- ing um að nágrannar hafi kvartað undan ónæði. íbúarnir segja fullljóst í bréfi sínu að þessari ábendingu sé alls ekki fylgt eftir. Víbrar í rúminu á nóttunni Sigríður segir að þegar verst hafi látið hafi hún saknað þess að það kæmi ekki einhver og mældi hávað- ann frá HM-Kaffi. „Því þegar maður víbrar í rúminu ér þetta orðið ansi hátt,“ segir hún og getur ekki annað en hlegið að ástandinu þótt þreytandi sé. „Ég skil ekki í bæjaryfirvöldum að gera fólki þetta. Sjálf erum við engin unglömb og hér í húsinu er fólk á ní- ræðisaldri. Það getur ekki sofið í hjónaherberginu heldur verður að vera í litla herberginu sem snýr frá barnum,“ segir Sigríður. HM-kaffi hefur leyfi til að hafa opið til klukkan þrjú á nóttunni um helgar og til klukkan eitt á virkum dögum. I bréfi sínu lýsa íbúarnir því að oft komi gestir HM-Kaffis í hóp- um að lóð þeirra með tilheyrandi rvum HV tiíböbí* HM-Kaffi Gluggi bjónaherbergis húsvarðarinsgiÍBÍoarvegi4snýr út að HM-Kaffi. Hávaðinn Wað 'ri; gera út af við hjóniþ'-gfiviþegar maður vibrar í rúminu erþetta orðið ansi hátt," segir Sigríður Gréta Þorsteinsdóttir. Húsmoúir á Selfossi víbrar í hiónarúminu Karlmaður sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gagnvart konu á áttræðisaldri Koníak gegn því að bera brjóstin Héraðsdómur Reykjavíkur sýkn- aði í gær karlmann á fimmtugsaldri af ákærum um líkamsárás og kyn- ferðisbrot gagnvart konu á áttræðis- aldri. Dóttir fórnarlambsins átti í kynferðislegu sambandi við ákærða og var viðstödd meinta árás. Ákærði er hálffimmtugur Reykvík- ingur. Forsaga málsins er sú að hann kynntist konu á vefnum einkamál.is og hófu þau reglubundið samband - sem fólst í því að þau snæddu saman tvisvar í viku og stunduðu kynlíf. Á einum slíkum fundi í september síðastliðnum blandaðist móðir kon- unnar, 71 árs, í málið en í ákæru rík- issaksóknara er manninum gefið að sök að hafa ráðist að konunni, rifið hana úr bol, brjóstahaldara og bux- um. Hann er síðan sagður hafa fleygt henni ofan í rúm, afklætt sjálfan sig, sogið og bitið í brjóst hennar og þvingað hana til að handleika getn- aðarlim sinn. Maðurinn neitaði sakargiftum bæði fyrir lögreglu og dómi. Hann viðurkennir þó að hafa strokið létt um brjóst konunnar og smellt á þau kossi. Hann viðurkennir einnig að hafa komið með koníak og að hafa fyrr umræddan dag sent ástkonu sinni nokkur klúr sms-skeyti þar sem hugsanlegt kynlíf með móðurinni bar á góma. Dóttirin kveðst hafa svarað sms-skilaboðunum og kveðst hafa verið síst betri en ákærði í orða- vali. Konan leitaði til neyðarmóttöku eftir atvikið og kemur fram í skýrslu sem þar var gerð að hún kvaðst vera veik fyrir víni. Hún hafði því fallist á að fara í kjallaraíbúð dóttur sinnar, sjálf býr hún ásamt eiginmanni á efri hæð, og bera á sér brjóstin fyrir ást- Veik fyrir víni Konan segir loforð um kon- iak hafa ráðið því að hún sýndi ástmanni dóttur sinnar brjóstin. manninn. Hafði hún dmkkið tvo bjóra þegar hér var komið og var heitið kom'aki ef hún kæmi niður. Mæðgumar segja ákærða hafa geng- ið beint til verks og byrjað að rífa fórnarlambið úr fötunum. Ákærði neitar þessu og segir ástkonu sína hafa sótt móðurina í þeim tilgangi að hún beraði á sér brjóstin og síðar um kvöldið hafi hún aftur sótt gömlu konuna, afklætt hana og haft uppi kynferðislega tilburði gagnvart henni. Ástkonan hafi hvatt ákærða til að hafa samræði við móður sína. Dómurinn telur frásögn ákærða á atburðarásinni „ótrúlega" en ekkert komi ff am í málinu sem hnekki frarn- burði hans og á sama tíma verði að líta til þess að mæðgumar þykja hafa orðið tvísaga um nokkur veigamikil atriði í málinu. Gegn eindreginni neitun ákærða telur Héraðsdómur að það sé varhugavert að telja sannað að hann hafi gerst sekur um kynferðis- brot og líkamsárás. Hann hafi viður- kennt að hafa komið við brjóstin og kysst laust á geirvörtuna en slfk hátt- semi telst ekki brot á blygðunarsemi. Kröfu fórnarlambsins um miska- bætur að upphæð 800 þúsund krón- ur var vísað ffá dómi og sakarkostn- aður felldur á ríkissjóð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.