Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ2004 Fréttir DV Sigurbjörg Árnadóttir formaöur Islenska vitafélagsins Sautján ára gamall drengur var handtekinn í gær, grunaður um að hafa rænt úti- bú Spron í Mjódd um miðjan dag. Fjöldi fólks sá hann hlaupa á brott og lögreglan náði honum í Seljahverfinu. Ræninginn ruddist inn í bankann og hótaði starfs- mönnum með búrhnífi. Davíðsmál í dómi „Það næsta sem gerist er að kveðinn verður upp dómur í málinu," segir Sigríður Rut Júlíusdóttir, lög- maður Jóns Ólafs- sonar. Jón höfðaði í janúar meiðyrða- mál á hendur Davíð Oddssyni varðandi ummæli Davíðs um að hann væri að kaupa og selja þýfl. Þessi ummæli og önnur sætti Jón sig ekki við og krefst þriggja milljóna í skaðabætur. Davíð neitaði að mæta í réttarsal; sendi í staðinn frá sér greinargerð. Sigríður segir að í gær hafl verið lagt fram andsvar við greinargerð forsætisráð- herra og málið dómtekið. Vitna óskað íKeflavík Maðurinn sem slasað- ist á höfði eftir að hafa fallið niður stiga á veit- ingastaðnum Casino að- faranótt sunnudagsins 9. maí, er enn á gjörgæslu- deild Landspítalans þar sem honum er haldið sofandi í öndunarvél. Lögreglan í Keflavík óskar eftir vitnum að atvilcinu og er þeim sem geta gefið upplýsingar um málið bent á að hafa samband við Rúnar Árnason rann- sóknarlögregiumann í síma 420-2469, og skilja eftir skflaboð ef ekki er svarað. Nýrforstjóri hjá EimsKÍp Ákveðið hefur verið að ráða BaJdur Guðnason sem forstjóra Eimskipafélagsins og mun núverandi forstjóri þess, Er- lendur Hjaltason, láta af störfúm. Baldur sat í stjóm Hf. Eimskipafélags fslands (nú Burðar- ás) síðan í október á síðasta ári þar tfl hann tók sæti í stjórn Eim- skipafélgs fslands ehf. í kjöl- far aðalfundar Burðaráss í mars. Hann hefur starfað við flutningastarfsemi í flmmtán ár, m.a. sem framkvæmda- stjóri hjá Samskipum. Bankarán í Spron Fjöldi fólks vará ferli nærri útibúi Spron I Mjóddinni á meðan bankinn var rændur. Bankaræninni gripinn Nokkrum mínútum seinna kom blaðamaður DV á vettvang, því næst Sjónvarpið, svo Fréttablaðið, Morg- unblaðið og að síðustu Stöð 2. Hóp- ur fólks sem erindi átti í Mjóddina safnaðist saman fyrir utan aflokaðan bankann og fjölmiðlamenn söfnuð- ust að sjónarvottum. Kristján B. Þór- arinsson vitni fór í viðtal hjá flestum. „Ég sá hann hlaupa í burtu og hefði Maður vopnaður hnífi rændi Sparisjóðinn í Mjódd skömmu fyrir klukkan tvö í gær. Hann kom askvaðandi inn í bankann með búr- hníf, hótaði starfsmönnum og hljóp síðan í burtu. Lögreglunni var tilkynnt um ránið klukkan 13:54 og var vaskur mótorhjólalög- reglumaður kominn á staðinn um mínútu síðar að sögn vitnis. Næstu mínútur fylgdu fleiri lögreglumenn í kjölfarið og lokuðu þeir fyrir flæði upplýsinga og fólks til og frá bankanum. „Bankinn er lokaður," svaraði lögreglumaður þeim sem vildu inn. eflaust getað náð honum. En mér fannst þetta vera eins og grín,“ sagði hann. „Er þetta leikxit?" spurði eldri kona í mannsöfnuðinum. Önnur kona spurði hvert þetta þjóðfélag væri að fara. Starfsmenn blómabúð- arinnar og gleraugnabúðarinnar sem eru sitt hvoru megin við bank- ann sáu ekkert. „Ég sá í rassgatið á þeim," sagði Kjartan Björnsson, sem „Ég gat ekki séð betur en þeir væru tveir. Annar beið hins á horninu og hljóp með honum upp eftir í Breiðholt." staddur var á bílastæðinu í þeim er- indagjörðum að kaupa merki fyrir fótboltabúninga sem hann hugðist selja í Sportbúð Grafarvogs. „Ég gat ekki séð betur en þeir væru tveir. Annar beið hins á horninu og hljóp með honum upp eftir í Breiðholt. Sjálfur fór ég ekki á eftir og stóð á planinu áður en ég fór í bílinn, því maður er ekkert að elta svona gæja, maður getur verið drepinn eða skot- inn,“ sagði Kjartan. Á flótta sínum fór ræninginn framhjá Kaffi Strætó og biðstöðinni við Mjóddina. Á Kaffi Strætó sat heyrnarlaus maður með reikninga frá Landsbankanum sem staðfesti skriflega að hann hefði séð ræningja hlaupa á brott. Lögreglan segist hafa náð ræningjanum í Seljahverflnu í Breiðholti. Hann var tekinn til yfir- heyrslu. Samkvæmt upplýsingum lögreglu seinni partinn í gær var ekki gert ráð fýrir að fleiri hefðu staðið að ráninu en sá sem handtekinn var. Hann er sautján ára gamall. Ekki lá fyrir í gær hversu mikið fé hann hafði tekið með sér úr bankanum. Starfsmenn hlutu áfallahjálp eins og venja er eftir rán. jontrausti@dv.is Bullandi ágreiningur um sóknardaga smábáta Stjórnarliðar krefja Árna um breytingar „Núna sit ég og skrifa skýrslu fyrir aöalfund Vitafélagsins sem er á laugardaginn, “ segir Sigurbjörg Árnadóttir, formaö- urlslenska vitaféiagsins.„Þaö verður mikið aö gera hjá fé- laginu i sumar. Viö veröum með dagskrá i tengslum viö hátíöarhöld á Siglufirði. Bæj- arfélagið er aö halda upp á að hundraö ár __________ Landsíminn Norðmenn kenndu Islendingum að veiöa og verka síld. Viö tengjum vit- ann inn í það enda hafa ís- lenskir vitar mikil tengsl viö söguna. Annars er ég að und- irbúa mig fyrir ferö þar sem ég verö leiösögumaður i Suöur- Finnlandi og Sviþjóð. Svo verð- ur maður að minnast á póli- tikina sem er náttúrlega hálf hlægileg i dag.“ Veruleg óánægja er á meðal bæði stjórnarliða og stjórnarandstæðinga vegna frumvarps Árna Mathiesen sjávarútvegsráðherra um sóknar- daga og kvóta á smábáta. f frum- varpinu er gert ráð fyrir að smábáta- menn geti valið á milli kvótakerfis sem byggir á veiðireynslu eða 18 sóknardaga „gólfs“, en smábátaút- gerðarmenn telja að fyrir kosningar hafl því verið lofað að „gólfið" yrði að lágmarki 23 dagar. Meginatriði frumvarpsins eru að leyfllegum sóknardögum fækki um 10% á næsta fiskveiðiári og verði 18 miðað við að viðmiðunarfjöldi sókn- ardaga á yfirstandandi fiskveiðiári er 19 sóknar- dagar. Út- gerðum báta sem leyfi hafa til handfæra- veiða með dagatak- mörkunum verður jafn- framt gefinn kostur á að stunda veiðar samkvæmt kvóta, en tak- markanir settar á leyfilegan fjölda handfærarúlla um borð í hverjum báti og jafnframt ákveðið að aukn- ing á vélar- stærð hafi áhrif á ijölda sóknardaga. „Þetta eru svik á kosn- ingaloforð- um, ef þetta fer svona í gegn óbreytt. Annað hvort standa stjórnarliðar við kosninga- loforð eða hlýða ráðherra, það kem- ur í ljós. Ráðherra boðar umturnun og svik,“ segir Magnús Þór Haf- steinsson Frjálslyndum, sem sæti á í sjávarútvegsnefnd. Einar Oddur Kristjánsson Sjálfstæðisflokki, kann- ast ekki við kosningaloforð um lág- mark 23 sóknardaga. „Maður segir sína skoðun og síðan er það spurn- ing hverju maður fær áorkað. Ég er langt í frá sáttur við 18 daga og ég á von á málamiðlun við meðferð málsins. Við skulum sjá til hvernig þetta fer,“ segir Einar Oddur. Sam- kvæmt heimildum blaðsins munu hann og sjávarútvegsnefndarmenn- irnir Einar Kr. Guðfinnsson og Krist- inn H. Gunnarsson berjast hart fyrir breytingum á frumvarpi sjávarút- vegsráðherra. Magnús Þór Hafsteins- son Ráðherra boðarum- turnun og svik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.