Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1875, Side 23
ohægra að skoða hana, sökum þess hún nálgast þá sólina
næstu mánuði á eptir. Hún kemst síðan í sólnánd 23.
oeptember, en þaðan dregur hún sig smásaman frá sólinni
austur á við, og verður í árslokin sýnileg um stutta stund
ePtir sólarlagið.
Mars er í byrjun árs á austurferð inn í vogarmerki, og
rennur þá upp kl. 3 um nóttina. í Februar, Marts og April
fer hann gegnum sporðdreka rnerki, og seinkar þá ferð sinni,
Þar til hann staðnæmist í miðjum Mai. í miðjum Juni er hann
í þverstefnu móti sól, og heflr því um þetta mund náð mest-
skærleik sínum, en hann verður ekki sýnilegur vegna
Þess, að hann kemst ekki upp yíir sjóndeildarhríng á þessum
tlnia. Fyrir þá sök, að hann er svona lágt á lopti er hann
sýnilegur þángað til seinast í Oktober, en þá er hann í há-
gaungu sinni kl. 6 ept. midd. Upp frá þessu hækkar hann sig
á loptinu, og fer þá í November og December gegnum stein-
Reitarmerki og vatnsbera; verður hann þá sýnilegur eptir
sólarlag þángað til kl. er rnilli 9 og 10.
Jnpitcr er í byrjun ársins sýnilegur á morgnana fyrir
sólar uppkomu. Um þetta mund er hann á hreyfíng austur
á við í meyjarmerki, og nemur þar staðar í miðjum Februar.
Pá tekur hann á rás vestur á við, og fer að flýta uppkomu
sinni á kvöldin. f miðjum April er hann í þverstefnu gegn
sól, er hann þessvegna skærastur um þetta mund og er þá
sýnilegur alla nóttina. Hann er þá á rás vestur á við um
meyjarmerki þángað til í miðjum Juni, en eptir það kemst
hann í hreyfíng austur á við. Um þetta mund má sjá hann
svosem um tvær stundir eptir sólarlag, en hann gengur undir
hérumbil um miðnætti. Munurinn á niðurgaungu hans og
sólarinnar fer þó allt jafnt mínkandi, svo að hann hverfur
öldúngis að sýn og kemur ekki í ljós urn þá þrjá mánuði:
September, Oktober og November. I December verður hann
sýnilegur hérumbil um tvær stundir fyrir sólar uppkomu, og
er þá á rás í vogarmerki austur á við.
Satnrnns má sjá i byrjun árs um svosem tvær stundir
eptir sólarlag, en hann er mjög lágt á lopti, og er á austur-
ferð í steingeitarmerki; nálgast hann með þeim hætti sólina,
og hverfur innan skamms tíma úr augsýn. Vegna þess hann
er svo lágt á Iopti kemur hann fyrst í ljós í Juni, skömmu
fyrir sólar uppkomu. Um miðjan Juni kemur hann upp um
fniðnætti og um miðjan Juli kl. 10 um kvöldið. Um miðjan
August er hann f þverstefnu móti sólinni, og sést þessvegna
alla nóttina. Þaðan af til ársloka verður hann sýnilegur um