Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1875, Side 32
V. Leons hjarta lýðir sjá,
iitlu og stóru Geit ei ná,
Höggormsherinn herðir stjá,
Hundastjarna er skær.
VI. Kerrumanninn þrek ei þjá,
þrthyrníngi fyrir brá,
við Altari verður stá
Vatnsgýgurinn tær.
Skjólan, það er skjóla Vatnsberans.—Ausan (silula)
er stjarna í Vatnsberanum, sem stjörnufræðtngar kalla
Kappa Vatnsberans (BG 46**).
Hundsloppa ætti helzt að vera eptir þýðíngunni
stjarnan Mirzam á fremri löpp Stóra-Htmdsins(BG 46^4);
en nærri liggur að hugsa sér hér hina alkunnu stjörnu
á rófu Birnunnar hinnar minni, sem heitir Kynosura eða
Hundsróf a.eðabjástjörnufræðíngum A/p/iaBjarnarins,
það er Möndulstjarnan (leiðarstjarna, pólstjarna,
stella polaris, BG 4512), Stóri-Hundur er suðurmerki.
Ristin er ekki nefnd meðal stjörnumerkja svo kunnugt
sé; það virðist líkindalegast, að það sé stjörnumerkið
Kassiopea, sem er áþekkt tvöfaldri rist (BG 4518).
Haf skip er án efa Argo, sem hefir nafn af skipi Jasons;
það er suðurmerki (BG 4657).
Jata eða stallurinn (Prœsepe), stjörnuþyrpíng í Krabba-
merki (BG 4620).
Hvalurinn, stórt stjörnumerki í suðurmerkjunum, fyrir
sunnan Fiskana og Hrútinn (BG 46-t6).
Hnýsan,eðaHö.frúngurinn(De/p/nnJ,stjörnumerki nálægt
Erninum og Örinni (BG 4561).
V. Leons hjarta er skærasta stjarnan í Ljónsmerkinu,
Regulus eða Alpha ljónsins (BG 4Ó23).
Litla-Geit er einhver af hinum minni stjörnum á
Geitinni (capella), nálægt Kaupmannastjörnu (BG 4537).
Stóra-Geit er sú hin stóra stjarna, sem vér kölium
Kaupmannastjörnu, og gengur hérumbil ’nálfri annari
stund á eptir Sjöstirninu. Geitin heyrir til því
stjörnumerki, sem heitir Ökumaður (sbr. við VI), en
stjörnufræðíngar kalla Kaupmannastjörnuna Capella
eða Geitina, eða Alpha Ökumanns (BG 4537).
Höggormsberinn eða Naðurvaldi, heitir á Grísku
Ophiuchos, á Latlnu Serpeularius; hann er stjörnumerki
fyrirneðanHerkúlesogofan undirSporðdreka(BG4554).
Hundastjarna er hin bjartasta stjarna á himninum
og stendur í gini Stóra-Hunds, sern gengur á eptir
Orioni; hún er almennast kölluð Sirius, eða stundum
Lokabrenna, og hjá stjörnufræðíngum Alpha S/óra-
Hunds (BG 4654).
VI. Kerrumaðurinn er sama og Ökumaðurinn eða Vagn-
(30)