Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1875, Page 37

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1875, Page 37
Það er hérumbil zo rd. í vorum peníngum og þó rfflega. Einnig gánga þar silfurpenfngar, sem gilda hálft milreis, eða neilt, eða tvö milreis, en ekki meira. Milrels samsvarar hér- umbil einum ríkisdal í vorum peníngum. BRAKÚNAR. 1 þeim borgum, þar sem mikil verzlan er, kaupa kaupmenn *kki ætíð sjáifir vöru sína, eða víxlbréf, eða taka skip á leigu, eða selja þau, heldur hafa þeir til þess meðalgaungumenn, sem brakúnar (á Ensku broker) heita, en nú eru optast nefndir Heglarar, eða miðlarar (á dönsku Mceglef). Þessir meðal- gaungumenn fá borgun fyrir frammistöðu sína og störf, eptir þvf sem orðið er að nokkurnveginn fastri reglu. Vöru-brakúnar fá fyrir að selja vörur: upp að 1000 dölum..............5/6 af hundraði frá iooo til 2000 dala.........3/4 — frá 2000 til 4000 dala.........“/3 — yfir 4000 dala ................V* — ag borga þá jafnt kaupandi og seljandi, að sínum helmíngi hvor þeirra. Ef vörurnar verða seldar á uppboðsþíngi, þá borgar seljandi allt, ef ekki er annað til tekið í uppboðs skilmálunum. Víxla-brakúnar fá 1 af 1000 hverju (r pro mille) af hlutað- eiganda hvorjum um sig. — Fyrir sölu á hlutbréfum fá þeir V* af hundraði, þegar summan er ekki yfir 10,000 rdala; en sé hún fneiri, þá V4 af hundraði; greiðir kaupandi og seljandi þar helmínginn sinn hvor. — Fyrir ríkisskuldabréf er borgað 1 af looo hverju, hversu há sem summan er. Abyrgðar-brakún (Assúrans-meglarar) fær V4 af hundraði, þegar ábyrgðargjaldið er minna en 4 af hdr., en 3 af þúsundi í innstæðunum fær ltann, ef ábyrgðargjaldið er tiltekið hærra en 4 af hdr. — Fyrir hvert ábyrgðarbréf er honum borgað þar að auki ef það hljóðar uppá 1000 rd. eða meira, fær hann 1 rd. frá 5000 rd. til 1000 rd. íær hann 48 sk., en sé ábyrgðarbréfið uppá minna en 500 rd.. fær hann ekkert. Skipa brakúnar fá fyrir að semja um leigu á skipum: 2 af hundraði af leigunni, ef það er um part úr skipi, en 1 af hundraði af leigunni ef samið er um heilt skip. Fyrir að fáða kaupskipi með farmi til hafnar og sjá um lögskil þess (Klarering) fær hann: af 50 lesta skipi og minna: 16 sk. af hverri farmlest; af stærri skipum en 50 lesta: 12 sk. af lestinni; fyrir skip með seglfesti (barlest) 8 sk. íyrir hvert Iestarrúm Upp að 50 lestum, en 6 sk. fyrir lestarrúmið af stærri skipum; fyrir að útvega leiðarbréf og skýrteini, ásamt með leigu- samningnum skipsins, fær hann fyrir skip upp að 50 lestum 3 rd. og fyrir stærri skip 5 rd. Fyrir að heimta skipsleigu (frakt) ábyrgðarlaust I r/.» af hundraði í leigunni. Um ábyrgðina verður að semja áður en skipið er afiérmt. (35)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.