Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1890, Qupperneq 75
Lægsta verð hefnr aldrei farið yfir 1,13 a., í 2 ár frá 1,10 til 1,00,
11 *r frá 1,00 til 80 a., 8 ár frá 80 til 60 a., 17 ár frá 60 til
50 a., 8 ár frá 50 til 40 a. og 5 ár frá 40 til 35 a.
Frá 1837 til 1852 var verðið á tólgar pd. frá 36 til 50 a.,
en á 2 árum frá 1852 til 1854 liækkar verðið í 63 a. það er
hæsta verð sem fengist hefur fyrir tólg, en eptir það fer verðið
smátt og smált lækkandi þar til 1885 að liæsta verð komst ekki
yfir 24 a. og lægsta verð 22 a. því miður mun lítillar upp-
reistar von með verð á þessari vöru. Hæsta verð á pd. af tólg
var 1 ár yfir 60 a., í 9 ár 60 til 50 a., 18 ár 50 tíl 40 a., 19 ár
frá 40 til 30 a. og 4 ár frá 30 til 24 a. Lægsta verð var 1 16
ár frá 50 til 40 a., 30 ár frá 40 til 30 a., 5 ár frá 30 til 22 a.
Árið 1849 var verðið á kjðti lægst 32 kr. tn. en fer svo smá
hækkandi þartil 1861 að t.n. seldist 61 kr., árið 1863 fellur það
aptur í 50 kr. en hækkar þar á eptir af og til þar til 1883 að
það komst í hæsta verð 64 kr., eptir það fer verðið lækkandi.
Hæsta verð á tn. af kjöti hefur í 2 ár farið yfir 60 kr., í 24 ár
var það frá 60 til 50 kr., 10 ár 50 til 40 kr., 4 ár 40 til 32 kr.
Lægsta verð var í 7 ár 60 til 50 kr., 23 ár 50 til 40 kr. og 10
ár 40 til 30 kr.
Frá 1837 til 1852 er hæsta verð fyrir tn. af lýsi frá 48 kr.
til 60 kr.. að 2 árum undanskyldum, en frá 1852 til 1855 komst
lýsi í 96 kr., sem er hæsta verð er það nokkurntíma mun ná.
1858 er það aptur komið í 60 kr. og er svo að 3 árum undan-
skyldum þar til 1874 frá 60 til 70 kr., en upp frá því fer verðiö
smá lækkandi. Vegna þess að á síðari tínium er fundið rafur-
magnsljós, gas og steinolía til lýsingar, og ýmsar olíur til
smyrsla, sem lýsi var áður notað til, er hætt við, að þessi vara
aldrei komist í hátt verð aftur.
í 23 ár, frá 1837 til 1860, var hæsta verð á skpp. af salt-
fiski seldum í Danmörku frá 30 til 50 kr. að undanskildum 3
árum, sem það var hærra og 2 árum sem það var lægra, 1861
hækkaði verðið í 63 kr. og komst hæst 1875 o'g 1876 í 81 kr.
Flest árin milli 1860 og 1888 var verðið frá 58 til 68 kr.
Hæsta verð á skpp. af saltfiskinum var í 5 ár frá 80 til
70 kr., 11 ár frá 70 til 60 kr., 10 ár frá 60 til 50 kr., 13 ár
frá 50 til 40 kr. og 11 ár frá 40 til 25 kr. Lægsta verð var 3
ár frá 60 til 50 kr., 7 ár frá 50 til 40 kr., 21 ár frá 40 til 30 kr.
og 19,ár frá 30 til 19 kr.
A saltfiskinum er meiri munur á lægsta og hæsta verði en
nokkurri annari vörutegund í skýrslu þessari, eiuta er engin þeirra
jafn ólík að gæðum, því verkun er víða talsvert áhótavant ennþá.
þó cr eigi talið hjer annað en það sem á að heita fullgild vara,
en ekki úrgangur eða fiskur, sem að einhverju leyti var álitin
skemd vara. Hæsta verðið er flest árin aðeins fyrir svo nefndan
»Jagtafisk«, svo minnsti hlutinn af fiskinum er selt fyrir það verð.
í ýfirliti þessu er til fært hæsta og lægsta verð vegna þess,
að rjett meðalverð var ekki hægt að finna.
Tr. G.