Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1908, Side 89
undir jökli, sem aldrei bráönar, og svo eru þeir
88,100 □ kilóm. sem pá eru eptir, huldir snjó meiri
part ársins. Hafið kringum landiö er líka mestan
hluta ársins þakið lagís og rekís; landiö getur því
naumast heitiö byggilegt. Á stöku staö eru þó dalir
inn af löngnm fjörðum, sem hafáttin nær síöur til;
vex þar gras, lyng og smá birkirunnar, en fáar
skepnur hafa gagn af því, nema hreindýr, rjúpur og
farfuglar. Aðal lífsbjörg sína hafa landsbúar af sel-
Veiðum og öðrum sjávarafla.
* *
í Bulgarín fyrirskipaði stjórnin árið 1905, að
ekkert stúlkubarn, sem gcngi í skóla, mætti brúka
»korsett«, hvorki í skólanum nje utan hans. Væri því
hoði eigi hlýtt, þá sé í fyrsta skipti aðvörun, í annað
skipti fjesekt og í þriðja sinn burtrekstur úr skól-
anum, ásamt útilokun frá öllum öðrurn skólum
hmdsins. Svona skaðlegt þykir þar að börn og ung-
hngs stúlkur brúki »lífstykki« — (fjaðrabol).
* *
Maðurinn
§engur á morgni æfinnar á fjórum, um miðjan dag
a tveimur, en um kvöldið á þremur. Með öðrum
°rðum: barnið skríður fyrst á fótum og höndum, á
ungdóms og þroskáárum nægja tveir fætur, cn þegar
ellin kemur, þá þarf að bæta við priki eðahækjunni.
★
Spumingar og svör.
Hvað er það, sem eykur vellíðan manns?
Svar: Að vera hógvær, stunda vel stöðu sína og
vera skilvis.
Hvað á að kenna barninu fyrst?
Svar: Að hlýða og scgja satt.
Ilvað á hjúið fremst að ástunda?
Svar: Að vera trútt.
*
* *
Allt fæst fyrir peninga,
segja menn, en norska skáldið Árni Garborg segir
þetta sje ekki rjett, því: »fyrir peninga íæst matur
(79)