Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2004, Side 29
DV Fókus
FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST2004 29
Knattspyrnulið lögfræðinga vann sannfærandi sigur á liði fanga á Litla-Hrauni í
fyrradag. Leikurinn fór 8-3 og var Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður
valinn maður leiksins. Hann skoraði þrjú mörk í þessum leik sem var kveðjuleik-
ur hans í fótboltanum því hnén hafa gefið sig. Lögfræðingarnir vilja að Litla-Hraun
splæsi grasvelli á fangana.
Jón Steinar Gunnlaugs-
son hæstaréttarlög-
maður Spilaðisinn slð-
asta leik við fangana og
var maður
leiksins.
Lögmannaliðið tók fang-
ana í kakaríið Jón
Stainar valinn mnöur eksms
„Þetta var kveðjuleikurinn minn,“
segir Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttarlögmaður. Hann var vai-
inn maður leiksins £ árlegum fót-
boltaleik milli stjörnulögfræðinga fs-
lands og fanga á Litla-Hrauni. Lög-
fræðingamir unnu sannfærandi sigur
8-3 og skoraði Jón Steinar þrjú mörk í
leiknum. Jón Steinar hefur nú sagt
skilið við fótboltann en stefnir á
frama í golfi.
„Ég er búinn að taka þátt í þessum
leikjum í ein 20 ár,“ segir Jón Steinar
spurður út í hinn árlega fótboltaleik
milli fanga og lögfræðinga. „Við erum
tveir sem höfum verið með frá upp-
hafi. Ég og Ólafur Garðarsson."
Gáfu föngunum kók og prins
Lögfræðingarnir unnu sannfær-
andi sigur. Eftir leikinn gáfu þeir
föngimum kók og prins og svo var
tekið við bikar. Jón Steinar segir þetta
skemmtilega hefð sem hann hafi ver-
ið partur af frá upphafi en áður en
leikurinn hófst tilkynnti Jón Steinar
að þetta væri hans kveðjuleikur.
„Ég lét þá vita af því að þetta væri
minn síðasti leikur," segir Jón Steinar.
„Ég er orðinn slæmur í hnjánum og
þetta er því miður ekki skynsamlegt
lengur. Annars hef ég mjög gaman af
fótbolta. Held með Fram og spilaði
með liðinu í yngri flokkum. Síðustu
árin hef ég verið að leika mér í kalla-
fótbolta. Er í hádegishópnum Lunch
United sem hittist þrisvar í viku í
Laugardalnum. Nú verður maður að
hætta því.“
Jón Steinar segir fylgja því mikinn
söknuð að hætta £ fótboltanum.
Hættur í boltanum
„Þetta snýst bara um léttleika
og skemmtilegheit. En ég verð að
sætta mig við að lappirnar þola
þetta ekki. í staðinn er ég nú að
þreifa fyrir mér f golfi," segir Jón
Steinar sem hrósar samherjum
sfnum f lögfræðingaliðinu. Jón
Steinar segir Gunnar Jónsson, for-
mann lögmannafélagsins, hafa
staðið sig afar vel og varið eins og
hann væri tilbúinn að láta lífið fyr-
ir hvern bolta.
„Við lögfræðingarnir viljum
einnig að það komi fram að okkur
finnst að fangelsisyfirvöld verði að
styðja fangana í að fá grasvöll,“ segir
Jón Steinar. „Eins og er spila þeir á
malarvelli en það ætti ekki að vera
mikið mál að láta þá fá grasvöll," seg-
ir Jón Steinar sem stendur nú á tíma-
mótum í lífi sfnu. Fótboltinn orðinn
fjarlægur draumur og hugsanlega
gæti embætti hæstaréttardómara
verið handan við homið.
simon@dv.is
Lið fögmanna:
Gunnar Jónsson
1ogfræðingur
JIXn,ÁrTnnGuðjónss°n
‘°gfi'æðingur
^H^rhMarkússon
•ogfræðingur
Steinar Cuðgeirsson
^aréttarlögmaður
Jóhannes Albert Saevarsson
^wéttarlögmaður
-
s
fjufurGarðarsson
'ögfræðingur
Litla-Hraun Fangarmr
biðu tægri hlut en lög-
fræðingarnir vilja að
þeir fái grasvöll.
Kastljósdrottningin heldur áfram aö
heilla stórstjörnurnar
Svanhildur tekur
Brown næst
Svanhildur Hólm og
James Brown Það var
Svanhildi llfsreynsla,jafnvel
raun, hversu mikinn áhuga
Lou Reed sýndi henni. Fróð-
legt verður að sjá hvernig
gamli kvennamaðurinn
James Brown lætur ínávist
hennar.
Tónleikahaldar-
ar þeir sem standa
fyrir hingaðkomu
James Brown,
guðföður sál-
artónlistar-
innar, hafa
lofað Kast-
ljósþaettin-
tim einka-
viðtali við
meistarann
og verður
það á dag-
skrá að
kvöldi föstu-
dags. Það
var þeim
minnisstætt sem sáu þegar Lou Reed
var í viðtali við Svanhildi Hólm og
sýndi henni takmarkalausan áhuga -
þó svo að sumir aðdáendur Reeds
vilji meina að það hafi verið í háði.
Nú, sem sagt, stefnir allt í að Svan-
hildur muni spjalla við James Brown.
Taki Brown næst tali heimsfrægra
tónlistarmanna. Nú vita þeir það sem
vita vilja að kóngur sálartónlistarinn-
ar er alræmdur kvennabósi og kéurl-
rembusvín. Má f því sambandi rifja
upp að hann söng og syngur mesta
karlrembulag allra tíma: „It’s a Man’s,
Man’s, Man’s World.” Verður spenn-
andi að sjá hvort karlinn verður ekki á
hjólum og hvernig Svanhildi gengur
að eiga við það.
Stjörnuspá
Ævar Kjartansson útvarpsmaður er 54
ára í dag. „Oft á tíðum virðist maðurinn
hafa það á tilfinningunni
að hann sé læstur inni
án þess að vera fær um
að njóta stundarinnar.
Honum er ráðlagt að
skoða öll þau smáatriði
sem kunna að verða á
vegi hans með
opnum huga,"
segir í stjörnu-
spá hans.
Ævar Kjartansson
\/\ Vatnsberinn (20.jm.-1s. febr.)
w ---------------------
Ekki halda aftur af þér en fólk eins og
þú er fært um að taka eigin rökhugsun
yfir tilfinningalegar þrár. Ef þér líður
ekki vel í félagsskap sem tengist þér
töluvert þessa dagana væri hyggilegast
fyrir þig að losa þig við hann sem fyrst.
X
Fiskarnir (19. febr.-20. mars)
Þú munt án efa ná langt í
starfi ef þú velur meðvitað framhaldið í
lok ágúst varðandi eitthvað mál. Ef þú
lifir óábyrgu lífi um þessar mundir er
skynsamlegt að þú gerir eitthvað í þeim
málum sem fyrst. Manneskjur eins og
þú eflast á þessum árstíma og áætlanir
standast samhliða andlegum hæfileik-
um þínum.
T
Hrúturinn (21.mars-l9i
Þú ert minnt/ur á að þegar við
erum fullviss um að við erum Ijós sann-
leika og fegurðar, eftirsóknarverð og
ágæt, afhjúpum við okkur með ánægju
fremur en skelfingu og hið persónulega
samband getur þá dýpkað æ meir uns
dásamleg eining næst. Þú upplifir hér
góða reynslu sem býr í sköpun þinni
um þessar mundir.
ö
NaUtÍð (20. april-20. mal)
n
Umtalsverðar breytingar
munu fyrr en síðar eiga sér stað. Hér eru
á ferðinni breytingar til batnaðar. Nýtt
starf eða flutningar gætu verið svarið
en mundu að breytingar geta verið erf-
iðar til að byrja með og aðlögunarhæfni
þín gæti komið sér vel.
Tvíburarnir 01.
Vertu aldrei hræddur við að
setja markið hátt kæri tvfburi því þú
getur gert hvað sem er þegar þú treyst-
ir og trúir á eigin getu. Hættu að vera
áhyggjufullur og varpaðu kvíða þínum
sem birtist hér burtu úr huga þínum hið
fyrsta.
faábbm (22júnl-22.júh)_________
þér er ráðlagt að gleyma
aldrei þínum innstu þrám ef þú tilheyrir
stjörnu krabbans en einnig skaltu átta
þig á þeirri staðreynd að þú verður að
þrá að upplifa drauma þfna áður en þeir
verða að veruleika. Allt er mögulegt.
Ljóniðffl .júlí-22.ágúst)
H5
Leyfðu öllum að finna sína
leið og reyndu aldrei að trufla leið ann-
arra kæra Ijón. Blóm langana þinna
opnast innan tíðar.
Meyjan (22. ágúst-22. sept.)
Þú ert fær um að endurmeta
verðmæti alls í tilveru þinni þessa dag-
ana og einnig kemur fram að þú ert
meðvituð/meðvitaður um að þegar þú
býst við hinu besta, dregur þú það að
þér.
Q Vogin (2lsept.-22.okt.)
Umberðu náungann eins og
hann birtist þér kæra vog? Hér ertu af
einhverjum ástæðum beðin/n um að
líta vel í eigin barm hvað það varðar.
ni
Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0v.)
Þú ættir ekki að nota heiðar-
leika þinn gegn þér þessa dagana kæri
sporðdreki. Þú ættir eingöngu að láta
eðlislægt umburðarlyndi þitt ráða för
en ekki óttann.
/
Bogmaðurinn (22.n6v.-21.des.)
Þú ættir að hlusta betur á lík-
ama þinn ef þú ert fædd/ur undir
stjörnu bogmanns sem mun fyrr en síð-
ar láta þig vita að komið er að því að þú
gefir eftir og hugir betur að eigin
áhugamálum.
Steingeitino/.rfa.-fP.janj
Gefðu þértfma með sjálfinu
og leyfðu þér að njóta tilverunnar. Þú
eflist fjárhagslega á sama tfma og stolt
þitt eykst með hverjum deginum.
SPÁMAÐUR.IS