Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2004, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2004
Fréttir 33V
Sakaður um
svikáný
Sveitarstjórn Mýrdals-
hrepps telur heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið
brjóta tveggja ára gamalt
samkomulag um að ríkið
yfirtaki 15% kostnaðrahlut-
deild sveitarfélaga í stofn-
kostnaði heilsugæslu-
stöðva og sjúkrahúsa.
Ráðuneytið krefst
þess að sveitarfélög á
Suðurlandi greiði
15% af kostnaði við
byggingu hjúkrunar-
deildar við sjúkrahús-
ið á Selfossi. Þetta
segir sveitcirstjórnin furðu-
legt þar sem samið hafl
verið um að framlög ríkis-
sjóðs í Jöfnunarsjóð sveit-
arfélaga lækkuðu gegn því
á að ríkið yflrtæki kostnað-
arhlutdeild sveitarfélag-
anna.
Sjóðir vilja
sameinast
í tilkynningu frá Líf-
eyrissjóðnum Framsýn
og Lífeyrissjóði sjó-
manna segir að áfram
verði stefht að samein-
ingu sjóðanna tveggja.
Drög að samkomulagi
um sameiningu verða
kynnt fyrir aðildarfélög-
um og sjóðfélögum síðar
á þessu ári. Stjórnir sjóð-
anna gerðu með sér
samkomulag í apríl sl.
um að kanna hvort hag-
kvæmt gæti verið að
sameina sjóðina. Við-
ræðunefnd stjórna sjóð-
anna telur margt mæla
með sameiningu og því
var samþykkt að vinna
áfram að málinu.
Samstarf
við írland
Undirritað hefur verið
nýtt samkomulag um und-
irbúning samstarfs flug-
málastjórna írlands og ís-
lands um fjarskiptaþjón-
ustu á Norður-Atlantshafl.
Flugmálastjórn íslands hef-
ur komið á fót nýju hlutafé-
lagi, Flugfjarskiptum ehf.,
til að taka við öllum rekstri
flugfjarskiptamiðstöðvar-
innar í Gufunesi. Þetta gerir
íslendingum kleift að taka
upp samstarf við írsku flug-
málastjómina, sem rekur
samsvarandi ijarskiptastöð
í Ballygreen skammt frá
Shannon flugvelli. Sam-
kvæmt samkomulaginu er
gert ráð fýrir að samræmd-
ur rekstur þessara tveggja
fjarskiptastöðva hefjist í
apríl á næsta ári og verði á
tilraunastigi í eitt ár.
„Framundan eru spenn-
andi tímar en næsta
verk-
Hvað liggur á?
er aö Ijúka ritgerö í lög-
fræði sem setið hefur á
hakanum."
Svanhildur Hólm Vals-
dóttir, fráfarandi um-
sjónarmaður Kastljóss
Sirrý á Skjá einum skrifáöi nýjan kafla í íslenska sjónvarpssögu þegar hún, í
gærkvöldi, leiddi fram 21 árs gamla konu sem fæddi barn 1 byrjun mánaöarins
án þess að vita af því aö hún væri ófrísk. Þó hafði heimilislæknirinn skoðað
hana nokkrum dögum fyrir fæðinguna og taldi hana vera með bakverk. Ótrú-
legt en satt.
Sirrý, Jóna Guðrún
og Kristófer Snær
litli Saman rétt fyrir
útsendingu á Skjá
einum í gærkvöldi.
„Ég ætla að panta DNA-
rannsókn strax í dag. Ég
vil fá úr þvískorið hvort
ég á barnið eða ekki...
Mér brá alveg ofsalega og
er varla búin að ná mér
enn."
fyrir fæöingu
Þann 1. september síðastliðinn fékk Jóna Guðrún Kristins-
dóttir heiftarlega í bakið, svo illa að vinkona hennar taldi
ekki óhætt annað en hringja á sjúkrabíl. Farið var með Jónu
Guðrúnu á sjúkrahús þar sem hún fæddi barn skömmu síð-
ar. Jóna Guðrún hafði ekki hugmynd um að hún væri ófrísk.
Sjónvarpsáhorfendur gátu
fylgst með Jónu Guðrúnu og
heyrt sögu hennar hjá Sirrý á Skjá
einum í gærkvöldi. Sjaldan fyrr
hafa áhorfendur setið jafn gáttað-
ir fyrir framan skjáinn og fylgst
með frásögn sem fæstir trúa. En
verða samt að gera. Jóna Guðrún
er alls ekki einsdæmi. Ekki einu
sinni hér á landi.
Fitnaði bara
„Ég get ekki sagt annað en að
allt var þetta röð tilviljana. Ég fann
aldrei fyrir barninu og mér er sagt
að það hafl verið vegna þess að
fylgjan var framan á. Svo var ég
vön að fítna svona og þá mest á
maganum," sagði Jóna Guðrún í
gær og undir það tekur móðir
hennar, Erla Haraldsdóttir: „Hún
var alltaf að fima en ég spurði
hana þó oftar en tvisvar hvort hún
væri viss um að hún væri ekld
ófrísk. Síðan ekki söguna meir.“
Núna eru þær báðar himinlif-
andi með barnið sem braggast
vel. Jóna Guðrún er staðráðin í að
eignast fleiri börn „...þó ekki væri
nema til að fá að njóta meðgöng-
unnar sem ég missti af,“ segir
hún.
Faðirinn í vafa
Faðirinn þó tvístígandi enda
bjóst hann aldrei við þessu. Hann
heitir Hjalti Már Kárason og er
ekkert viss um að hann eigi barn-
ið:
„Ég ætla að panta DNA-rann-
sókn strax í dag. Ég vil fá úr því
skorið hvort ég á barnið eða ekki.
Við Jóna Guðrún vorum saman í
stuttan tíma og svo vissi ég ekk-
i fyrr en allt í einu var hringt í
mig. Mér brá alveg ofsalega og er
varla búin að ná mér enn,“ sagði
Hjalti Már sem er að læra hár-
greiðslu.
„Þó þetta hafi borið svona
Með ömmu Erla
Haraldsdóttir skiptir
á barnabarninu sem
kom svo óvænt í
heiminn.
snöggt og óvænt að
þá get ég vitnað um
að bamið er inni-
lega velkomið í
heiminn og býr við
gott atlæti. Það er
milcil lukka í kringum það,“
sagði Sirrý skömmu fyrir út-
sendingu í gær þar sem spennt-
ir áhorfendur biðu eftir því sem
verða vildi. Og fenguð þó
nokkuð fyrir sinn snúð.
Læknir á villigötum
Jóna Guðrún er þannig vaxin
að ólétta hennar var ef til vill ekki
eins sýnilega hjá henni og öðrum
sem öðruvísi eru í laginu. Og
blæðingarnar geta blekkt eins og
allar konur sem eru á pillunni og
hætta snögglega í líkamsrækt
geta borið vitni um. Einu ein-
kennin sem Jóna Guðrún fann
fyrir var bakverkur sem sífellst
ágerðist og sendi hana að lokum
á sjúkrahús fimmtán mínútum
fyrir fæðingu. Á meðgöngunni
hafði hún heimsótt heimilis-
lækni sinn oftar en einu sinni og
síðast skoðaði hann hana
nokkrum dögum fyrir fæðing-
una. Á þess að merkja óléttu
hennar.
Ekkert
einsdæmi
Jóna Guðrún er 21 árs og eins
og gefur að skilja varð hún ótrú-
lega hissa þegar bakveiki hennar
breyttist í barnsfæðingu á sjúkra-
húsinu. Hún var lengi að átta sig
og hefur vissulega ekki farið var-
hluta af fordómum þeirra sem
frétt hafa en bera ekki skynbragð
á. Fæðingar sem þessar eru al-
þekktar um allan heim og eiga sér
stað hér á landi oftar en almenn-
ingur gerir sér grein fyrir.
Jóna Guðrún eignaðist tíu
marka strák sem hefur fengið
nafnið Kristófer Snær.
Þessu óvænta barni líður vel
og er umvafið ást á heimili for-
eldra Jónu Guðrúnar á Selfossi
þar sem hún býr nú. Hún kom
fram í þætti Sirrýjar á Skjá einum
í gærkvöldi til að segja sögu sína
og ekki síst að slá á fordóma sem
hún vill ekki búa við. Þetta var
eitthvað sem gerðist. Hún hafði
bara ekki hugmynd um það.