Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2004, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2004, Blaðsíða 10
7 0 FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2004 Fréttir DV Bubbi Morthens er mikill karakter, skemmtilegur og hress. Bubbi erskáld, frjór og hugmyndaríkur. Bubbi Morthens er orkufrek- ur egóisti. Hann talar mikið. Hann ersvolítill bullukarl og ekki nógu fylginn sér. Hann er hálfheyrnarlaus og svolít- ið veiklyndur. „Einn aðalkostur Bubba er að hann er bróðir minn. Hann er Ijúf- menni, góðmenni og traustur vinur vina sinna. Hann er talandi skáld og skemmtilegur í góðra vina hópi. Svo getur hann sungið vel. Hann er gamalt partfljón sem er kostur. Góður pabbi og góður frændi barnana minna. Hann fer sko til himnaríkis. Mér finnst hann ofmikið I veiði úti á landi, maður mundi vilja sjá hann meira í bænum. Hann er llka hálfheyrnarlaus og heyrir ekkert þegar maður talar við hann." Tolli myndlistamaöur „Bubbi er mikill listamað- ur, mikill karakter, skemmtilegur og hress. Hann er góður maður. Hann var alveg rosalega myndarlegur þegar hann var ungur. Á pönktimabilinu var hann stjarna og enginn ruddi. Hann er svolítill egóisti, það get- ur verið kostur og galli. Hann er kannski svolftill bullukall, stað- hæfir alls konar hluti og talar svo í andstöðu við það eftir smástund. Hann er ekki nógu fylginn sjálfum sér og svolitið veiklyndur, hann er náttúrlega alki." Elínborg Halldórsdóttir (Ellý í Q4U), myndlistamaður „Bubbi erótrúlega frjór og hugmyndaríkur, duglegur, stundvís og örlátur. Ég kann mjög vel við hann í alla staði. Hann er llka mjög göð- ur kassagítadeikari. Hann er mikill orkubolti og mjög orku- frekur. Þess vegna er hann mjög góður I törnum. Hann talar mik- ið. I hópi þarfhann að láta mik- ið til sln koma, honum liggur svo mikið á hjarta. En maöur geturalltaflokað eyrunum efá þarfað halda." Rúnar Júlíusson tónlistarmaður Ásbjörn Kristinsson Morthens, Bubbi Morthens, fæddist í Reykjavík ó.júnl 1956, yngstur fjögurra bræðra. Móðir hans var dönsk, faðir hans hálfnorskur. Árið 1973 geristBubbi farandverkamaður og ver- búðaþræll fram til æarsins 1980.17. júní 1980 gafhann út slna fyrstu sólóplötu, ísbjarnarblús. Þær eru nú orðnar 30 talsins ásamt fjölda platna með hljómsveitunum EGÓ, Utangarðsmönnum, Das Kapital og fleirum. Nú er væntanleg blómynd um skrautlega og viðburðarlka ævi hans sem mun bera titilinn Blindsker. Byssumenn ógna útivist Starfshópur Akureyrar- bæjar um útivist segir óviðunandi aðstæður vera fyrir útivistarfólk á leið um Glerárdal vegna skotæf- ingasvæðisins norðan Glerár. Náttúruvemdar- nefhd bæjarins tekur undir gagnrýni útivistarshópsins og „beinir því til rekstrar- aðila skotsvæðisins og við- komandi yfirvalda að nú þegar verði gerðar full- nægjandi ráðstafanir á svæðinu til að tryggja ör- yggi þeirra sem leið eiga hjá. Jóhann Gunnarsson, skipstjóri á Sólbak, segir engan úr áhöfninni hafa verið neydd- an til að samþykkja sérsamning. Þvert á móti fagni mannskapurinn auknum fríum. Skipstjorinn á Sólbak kemst loksins í golfið Guðmundur Krist- jánsson gerði sérsamn- ing við Sólbaksmenn. bakur Skipstjórinn á Sólbak segir það vera af og frá að áhöfn hans hafi ver- ið beitt þrýstingi til að fallast á sérstakan kjarasamning við útgerð- ina. Hann segir áhöfnina hæstánægða með þá breytingu á kjörum sínum að fá reglubundið að vera heima hjá sér dögum saman. „Það verður allt annað líf fyrir mig að stunda sjómennsku á þess- um kjörum. Fjölskylda mín hlakkar mikið til nýrra tíma,“ segir Jóhann Gunnarsson, skipstjóri á Sólbak EA, um nýjan samning við útgerðina þar sem meðal annars er gert ráð fyrir skiptiáhöfn, og þar með reglu- bundnum lengri fríum, en 30 klukkustunda löndunarfrí verða af- numin. Mikil úlfúð hefur orðið vegna samningsins og eru forystu- menn sjómannasamtakanna æv- areiðir eins og marka má af þeim ummælum Sævars Gunnarssonar, forseta Sjómannasambandsins, að siðferði Guðmundar Kristjánssonar væri „niðri í rassgati”. Sævar sagði áhöfnina vera neydda til að gangast undir samninginn. Jóhann skipstjóri botnar ekkert í þessum hamagangi þar sem nýja kerfið sé mjög til hags- bóta fyrir áhöfnina. Hann staðfestir að útgerðin hafi átt frumkvæði að breyttum samningi. „Út- gerðin vildi sérhæfa skipið og hagsmunir okkar og þeirra fóru saman. samningi er ekkert nýtt og ávinning- urinn af fækkun mannskapsins um borð skiptist á milli áhafnar og út- gerðar," segir hann. Menn Jóhanns koma víða að af landinu og segir hann þá ekki eiga gott með að fara heim í 30 klukku- stunda landlegu en nú horfi málin allt öðru vísi við. „Sjálfur bý ég á Húsavík en mennirnir eru frá Seyðisfirði, Reykjavík og Akureyri. Skipið er búið að vera stopp í tvo mánuði eða frá því að uppsagnir tóku gildi. Það hefur enginn í áhöfninni verið neyddur til eins eða neins. Þvert á móti eru menn ánægðir með þetta,“ segir hann. Jóhann hefur verið skipstjóri á Sólbak allt frá því árið 1995. Starfi hans hafa fylgt miklar fjarvistir en nú sér hann fram á reglubundnar stundir með fjölskyldunni. „Fram að þessu hef ég oftast ver- ið að heiman í ■. sssb tnc. un;! ri . • emmir ir r- IPI Skipstjórinn f brúnm Jó- hann Gunnarsson horfir með tilhlökkun til nýrra tlma og þess að eiga meiri tíma með fjölskyldunni. Hann mun væntanlega eyða drjúgum tíma á golfvellinum. dv-myndþorri segja gengið í golfklúbbinn," segir Jóhann sem á næstu dögum fer í fyrsta túrinn á nýjum kjörum. n@dv.is 25 til 40 ^ daga í ■ senn. Nú I verð ég ■ heima í W 10 daga í I hverjum ' mánuðiog það mun breyta miklu. Nú get ég meira að I þess um Sævar Gunnarsson Hundskammaði útgerð Solbakur EA Heldurúr höfn á næstu dögum með skiptiáhöfn. armanninn Vandamál með steypu BM Vallár á Reyðarfirði Léleg jarðefni voru í reyðsfirskri steypu Vandamál hafa komið upp varðandi steypu ffá steypustöð BM Vallár á Reyðarfirði. Að sögn Krist- ins ívarsson, starfandi bygg- ingarfulltrúa í Fjarðabyggð, hefur verið komist fyrir vandann. „Það er ekkert að þessari steypu, hún er bara mis- jafhlega sterk," segir Krist- inn. „Menn hafa verið að framleiða steypu úr jarðefni úr svonefndri Odd- nýjarhæð. Efnið hefur verið misjafrit að gæðum en það er allt í lagi með það. Þetta er sandur, möl, leir og allur fjand- inn. En svo er þetta bara þvegið. Það er auðvitað misgott úr þessu en steypan Á Reyðarfirði Mikil upp- bygging er hafin í álvers- bænum Reyðarfirði.Jarð- efni sem tekið var á staön- um reyndist vont til steypu- gerðar. stendur alveg sinn styrk eins og hún á að gera. Það er bara misjafnlega gott að leggja hana niður en það eru menn búnir að laga. Þeir eru hættir að nota ákveðna hluta af efninu, það var bara ekki nógu gott." Þótt að á tímabili hafi að sögn Kristins ekki verið gott að leggja steypuna niður þar sem hún rann illa segir hann það ekki vera neitt einsdæmi: „Það kemur fyrir ann- að slagið hjá öllum. Það á að vera allt í lagi með það sem sett hefur verið nið- ur. En gæðin em misjöfn. Það er auð- vitað alls staðar." Fatlaður en fær í flestan sjó Hjólastólamaður rændi banka Lögreglan í Miami handtók nýlega mann bundinn við hjólastól en hann mun hafa rænt bankaútibú í borginni. Aðspurður um hvemig hann hafhaði í hjólastól sagði Larry við lögregluna að hann hefði orðið fyrir skoti í öðm ráni fyrir nokkmm ámm. Hinn rúmlega fertugi Larry Miller rúllaði inn í útibú Pan American bank- ans í Miami og krafðist þess að gjald- kerinn afhenti sér 1.500 dollara. Gjald- kerinn tók eftir því að Larry var ekki vopnaður og afhenti honum tvo 100 dollara seðla. Er Larry sá, á leiðinni út úr bakanum, að fengur hans var aðeins 200 dollara varð hann svo reiður að hann grýtti seðlunum í götuna. Lögreglan kom og handtók Larry. Larry Miller „Það getur verið að ég sé fífl en ég er ekki erkifífl." Við yfirheyrslur spurðu þeir þennan bankaræningja hvort það væri ekki fi'flalegt að ætía sér að ræna banka bundinn við hjólastól. Larry svaraði: „Það getur verið að ég sé fi'fl en ég er ekki erkifífl.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.